Alvarlegri og þyngri vinnumansalsmál en áður Alvarlegri vinnumansalsmál eru að koma upp nú en áður hjá aðildarfélögum ASÍ. Verkefnastjóri segir þrjú fyrirtæki hafa verið tilkynnt til lögreglu á síðasta ári þar sem grunur sé um vinnumansal, það stefni í að málin verði mun fleiri í ár. Lögreglan hefur lagt fram kæru í nokkrum málum á þessu ári. 27.10.2023 13:00
Þolendum mansals fjölgar stöðugt og þörf á vitundarvakningu Íslensk stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir lélegan árangur í mansalsmálum í nýrri úttekt. Á sama tíma eru tilkynningar um mansal orðnar þriðjungi fleiri á þessu ári en samanlagt síðustu tvö ár. Teymisstjóri fyrir þolendur ofbeldis grunar að málin séu miklu fleiri. 26.10.2023 19:00
Boðar aðgerðir í baráttu við mansal Ísland stendur sig illa í baráttunni gegn vinnumansali samkvæmt eftirlitsnefnd Evrópuráðsins sem hefur áhyggjur af takmörkuðum árangri í málaflokknum. Þá er bent á ýmsa vankanta í baráttunni gegn mansali barna. Dómsmálaráðherra boðar nýja aðgerðaráætlun í málaflokknum. 26.10.2023 13:01
Stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og við Samfylkingu Stuðningur við Samfylkinguna mælist nú nærri samanlögðu fylgi stjórnarflokkanna þriggja samkvæmt nýrri könnun. Forsætisráðherra segir fylgistap Vinstri Grænna áhyggjuefni og telur ágreininginn sem verið hefur milli stjórnarflokkanna ekki falla þjóðinni í geð. 25.10.2023 19:16
Sjö ár í fullt jafnrétti hér en þrjú hundruð í heiminum öllum Forsætisráðherra vonar að sú athygli sem kvennaverkfallið hér á landi vakti hjá erlendum fjölmiðlum hafi jákvæð áhrif á jafnréttisbaráttu um allan heim. Þó enn séu stórar áskoranir í jafnréttismálum er hún vongóð um að jafnrétti kynjanna verði náð hér á landi árið 2030. 25.10.2023 13:46
Seðlabankinn beri skýra ábyrgð á grafalvarlegri stöðu á húsnæðismarkaði Gríðarlegur samdráttur er í framboði á nýju húsnæði hér á landi. Formaður borgarráðs segir ekki hægt að kenna lóðaskorti í Reykjavík um en hvetur önnur sveitarfélög til að auka lóðaframboð. Formaður fasteignasala bætist í hóp þeirra sem telur Seðlabankann halda fasteignamarkaðnum niðri. 23.10.2023 20:00
Náttúruhamfarir eyði byggðum frumbyggja í Kanada Ráðherra norðurslóðamála í Kanada segir loftslagsbreytingar sjaldan hafa valdið öðrum eins náttúruhamförum í norðurhluta landsins og síðustu ár. Þjóðir heims verði að sameinast í baráttunni gegn loftslagsvánni. Mótmælendur kölluðu eftir aðgerðum í stað umræðu á ráðstefnunni Hringborði norðurslóða í dag. 20.10.2023 21:11
Efling tekur þátt í útfararkostnaðinum Formaður Eflingar segir að ákveðið hafi verið að taka þátt útfarakostnaði manns sem lést í eldsvoða á Funahöfða í vikunni þó hann hafi ekki verið búinn að ávinna sér þau réttindi hjá félaginu. Eigendur Funahöfða 7 hafa sömuleiðis boðið fram fjárhagsaðstoð. 20.10.2023 10:41
Friður sé forsenda framfara í loftslagsmálum Utanríkisráðherra Danmerkur segir stríðsátök í heiminum geta haft neikvæð áhrif á samstarf þjóða í loftslagsmálum. Hringborð norðurslóða hafi því sjaldan verið eins mikilvægt. Forsætisráðherra er á sama máli. Friður sé forsenda framfara. 19.10.2023 23:40
Gríðarlegur fjöldi þátttakenda á stærstu ráðstefnu um norðurslóðir Loftslagsbreytingar og tengsl þeirra við bráðnun jökla og framtíð úthafanna eru megin viðfangsefni þings Hringborðs norðurslóða, (Arctic Circle) sem hófst í Hörpu í morgun. 19.10.2023 12:01