Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag vegna tengsla sinna við hluta innbrota sem séu í rannsókn hjá lögreglu. Yfir sextíu innbrot hafa verið tilkynnt á höfuðborgarsvæðinu frá mánaðarmótum og lögregla segir greinilegan topp vera í innbrotum. 14.7.2026 19:46
Lítil bjartsýni á úrslitastundu Olíuverð hefur hækkað um rúm níu prósent í dag eftir að átök Bandaríkjanna og Írans hörðnuðu og óvissa jókst um Hormússund. Hækkunin getur skilað sér í íslenskt verðlag einmitt þegar úrslitamæling vegna kjarasamninga er handan við hornið. 13.7.2026 23:16
Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Ísland gæti orðið hálfrar milljónar þjóð strax árið 2037, samkvæmt hæsta spáafbrigði Hagstofunnar. Á sama tíma breytist samsetning mannfjöldans hratt. Innflytjendur og börn innflytjenda eru nú rúmlega fimmtungur landsmanna, fæðingarmynstur hefur breyst og til lengri tíma er gert ráð fyrir að þjóðin eldist. 13.7.2026 09:02
Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Áfengisgjöld verða til skoðunar við gerð næstu fjárlaga, að sögn fjármálaráðherra. Veitingamenn segja gjöldin íþyngjandi og benda á að ríkið innheimti tvöfalt meira með þeim en veiðigjöldum. Ráðherra segir hins vegar að erfið áfengissala geti sýnt að gjöldin þjóni tilgangi sínum. 11.7.2026 12:11
Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Lögregla réðst í húsleit víða á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á 106 kílógrömmum af kókaíni sem fundust í álflutningaskipi við álverið í Straumsvík í síðustu viku. Níu hafa verið handteknir. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu en virði fíkniefnanna er metið á hátt í þrjá milljarða króna. 30.6.2026 16:22
Boðar frekari niðurskurð Hildur Björnsdóttir borgarstjóri boðar frekari niðurskurð í borginni til viðbótar við hópuppsagnir sem greint var frá í dag. Hún segist ekki fara í uppsagnir af léttúð en sviðsstjórar borgarinnar eigi nú að fara yfir rekstur sinna sviða. 25.6.2026 18:32
„Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki. 27.5.2026 12:03
Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Formaður Miðflokksins útilokar að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB muni hljóta skjóta afgreiðslu á þingi. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir dagsetninguna henta frasakenndri stefnu ríkisstjórnarinnar en ekki þjóðinni. Þeir segja utanríkismálanefnd hafa verið hundsaða með öllu og segja ekkert að marka fyrri orð forsætisráðherra. 6.3.2026 19:13
Verulega ólíklegt að af fullri afléttingu verði 18. nóvember Heilbrigðisráðherra telur verulega ólíklegt að sóttvarnatakmörkunum innanlands verði aflétt að fullu 18. nóvember líkt og stjórnvöld höfðu boðað. Ráðherra hefur verulega áhyggjur af stöðunni þó enn sé ekki hugað að hertum aðgerðum. 28.10.2021 18:31
Þeir sem ætla að halda stóra viðburði um helgina íhugi málið alvarlega Sóttvarnalæknir segir þjóðina nú þurfa að líta í eigin barm og reyna að takmarka eins og hún getur sína hegðun til að ná þessari bylgju niður. Þau fyrirtæki og aðilar sem stefna að því að halda stóra viðburði um komandi helgi ættu að íhuga málið alvarlega að mati sóttvarnalæknis. 28.10.2021 11:06