Bandaríkjamenn þurfa að greiða gjald áður en komið er til Íslands Til stendur að taka upp nýtt ETIAS-ferðaheimildakerfi á Schengen-svæðinu sem gerir það að verkum að handhafar vegabréfa sem þurftu áður ekki vegabréfsáritun munu þurfa að sækja um ferðaheimild áður en lagt er af stað til Íslands. 31.7.2023 07:54
Eldur kviknaði hjá Geymslusvæðinu Eldur kviknaði í rusli utandyra í Hafnarfirði í gærkvöldi. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en svartan reyk lagði yfir hluta bæjarins. 31.7.2023 06:49
Veittist að fólki með stórum hníf Lögregla handtók einstakling grunaðan um að hafa veist að fólk með stórum hníf á höfuðborgarsvæðinu. Sá var handtekinn fyrir brot á vopnalögum og er sagður hafa verið í annarlegu ástandi. 31.7.2023 06:19
Alvarlegir öryggisveikleikar í Tetra hafi lítil áhrif hérlendis Ekki er talið að öryggisveikleikar sem fundust í Tetra talstöðvakerfinu hafi áhrif hér á landi en kerfið er notað af lögreglunni og flestum öðrum viðbragðsaðilum á Íslandi. Þetta segir framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar sem annast rekstur Tetra kerfisins. 28.7.2023 17:27
Deila magnaðist þegar spennistöðin hvarf Landeiganda í Svartárdal í Austur-Húnavatnssýslu brá heldur í brún þegar heil spennistöð hvarf skyndilega af landi hennar fyrr í mánuðinum. Málið tengist langvarandi deilum um jörðina Stekkjarlæk en hún sakar nágranna sína á bænum Bergsstöðum um að eiga hlut að máli. Hún segist langþreytt á stöðunni og íhuga að krefjast nálgunarbanns. 28.7.2023 15:38
Íslandsbanki hagnaðist um 12,4 milljarða Íslandsbanki hagnaðist um 12,4 milljarða króna á fyrri helmingi ársins og þar af um 6,1 milljarða á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður eykst milli ára en hann nam 11,1 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2022. Bankastjóri segir rekstur bankans hafa gengið vel á ársfjórðungnum sem hafi einnig einkennst af stórum áskorunum í tengslum við sölu á hlutum ríkisins í bankanum. 27.7.2023 16:22
Búið að aflétta öllum takmörkunum á sölu íslenskra upprunaábyrgða Umhverfisstofnun Þýskalands (UBA) hefur aflétt banni við sölu upprunaábyrgða raforku frá Íslandi til Þýskalands. Bannið var sett á vegna gruns um að vinnsla grænnar orku væri tvítalin hér á landi en athugun stofnunarinnar hefur leitt í ljós að svo sé ekki. 27.7.2023 14:40
Lögbrotið kom í ljós þegar tveimur körlum var skipt út fyrir aðra Of margir karlmenn hafa setið í stjórn og varastjórn Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal nær sleitulaust í tíu ár. Framkvæmdastjóri segir stjórn hafa verið kjörna í góðri trú og stjórnendur talið ákvæði laga um hlutföll kynja í stjórnum vera uppfyllt. Til standi að laga hlutfallið sem fyrst. 27.7.2023 14:14
Arion banki hagnaðist um 13,4 milljarða króna Arion banki hagnaðist um 13,4 milljarða króna á fyrri helmingi þessa árs. Þar af nam hagnaður 7,1 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 10,1 milljarða á sama tímabili í fyrra. Bankastjóri segir uppgjörið vera í takt við væntingar. 26.7.2023 17:00
Neytendastofa slær aftur á hendur Nýju vínbúðarinnar Neytendastofa hefur sektað Nýju vínbúðina um 750 þúsund krónur fyrir að brjóta gegn ákvörðun stofnunarinnar. Rekstraraðili verslunarinnar brást ekki við fyrri tilmælum um að gera breytingar á vefsíðu sinni sem Neytendastofa taldi veita villandi upplýsingar um verð og framboð. 26.7.2023 14:35