Fréttamaður

Elín Margrét Böðvarsdóttir

Elín Margrét er fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.

Nýjustu greinar eftir höfund

Alræmdi njósnarinn George Blake er látinn

George Blake, fyrrum njósnari bresku leyniþjónustunnar MI6 og einn alræmdasti „tvöfaldi útsendarinn“ á tímum Kalda stríðsins er látinn, 98 ára að aldri. Á yfir níu ára tímabili starfaði Blake sem njósnari fyrir Sovétríkin en hann afhenti upplýsingar sem leiddu til þess að upp komst um að minnsta kosti fjörutíu útsendara MI6 í Austur Evrópu.

Alvarlega særðir eftir skotárás í Berlín

Fjórir eru alvarlega særðir eftir skotárás í Kreuzberg-hverfi í Berlín í Þýskalandi í dag. Þungvopnaðir sérsveitarmenn hafa verið kallaðir út vegna málsins. Þeir sem særðust eru karlar á aldursbilinu 30 til 42 ára og hafa þeir allir verið fluttir á sjúkrahús.

Fundu örplast í fylgju ófæddra barna

Í fyrsta sinn hefur örplast hefur fundist í fylgju ófæddra barna sem vísindamenn segja vera „gríðarlegt áhyggjuefni.“ Ekki liggur þó fyrir á þessu stigi hverjar heilsufarslegar afleiðingar af völdum örplasts í fylgju kunna að vera að því er fram kemur í umfjöllun Guardian um málið.

Bólu­efnið kom í lög­reglu­fylgd til Dan­merkur: „Til hamingju við öll“

Klukkan 05:58 í morgun komu fyrstu skammtarnir af bóluefni gegn covid-19 í hús til dönsku sóttvarnastofnunarinnar Statens Serum Institut (SSI) á Amager í Kaupmannahöfn. Eftir að hafa verið flutt yfir landamærin til Danmerkur í lögreglufylgd verður bóluefninu nú dreift milli landshluta. Stefnt er að því að bólusetning hefjist í fyrramálið klukkan níu.

„Sólin gerir lítið sem ekkert gagn“

Búist er við norðan hvassviðri eða stormi með snjókomu og rigningu á morgun og taka gular veðurviðvaranir gildi um land allt í kring um miðnætti í kvöld. Hressileg suðvestanátt sem blés á landinu í gær er nú að ganga niður og tekið að draga úr éljum að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.

„Þið eruð ekki ein“

Elísabet Englandsdrottning nýtti tækifærið í jólaávarpi sínu í gær til að fullvissa þau sem hafa átt erfitt, fjarri vinum sínum og fjölskyldu á þessu ári, um að þau séu ekki ein. Hún sagði að það sem marga langi í um jólin sé „einfalt faðmlag eða þétt handtak,“ en að „jafnvel dimmustu um nætur fylgi von með nýjum degi.“

Gömul blogg­færsla kom upp um „leyni­legt vitni“ sem reyndist vera stuðnings­maður Trump

Lögmaðurinn Sidney Powell vitnaði til vitnisburðar „leynilegs vitnis“ þegar hún fór þess á leit við Hæstarétt Bandaríkjanna að snúa við ósigri Donalds Trump í forsetakosningunum vestanhafs. Vitnið leynilega er sagt vera fyrrverandi verktaki hjá leyniþjónustunni sem búi yfir upplýsingum um erlent samsæri um að grafa undan lýðræði. Nú hefur aftur á móti komið í ljós að ónefnda vitnið reyndist vera hlaðvarpsstjórnandi og stuðningsmaður Trump sem áður hefur komist í kast við lögin fyrir að villa á sér heimildir.

Vonbrigði að heyra af sóttvarnabrotum dag eftir dag

Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir það vonbrigði að heyra af sóttvarnabrotum dag eftir dag og óttast stóra bylgju eftir hátíðirnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar hugsanlegt brot á sóttvarnalögum í Landakotskirkju.

Sjá meira