Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Þó nokkrir hafa sett sig í samband við Bjarkarhlíð í kjölfar umdeilds sýknudóms í nauðgunarmáli að sögn teymisstýru úrræðisins. Niðurstaðan dragi úr vilja þeirra til þess að leita réttar síns. 25.10.2026 11:39
Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Edda Pétursdóttir sigraði keppni um skelfilegasta graskerið sem fram fór í dag. 24.10.2026 16:27
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd segir landsbyggðina brjálaða vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Samgönguráðherra hafi lofað samráði um málið í óundirbúnum fyrirspurnartíma í apríl og því sé samráðsleysi í málinu sérstaklega alvarlegt. 24.10.2026 15:05
Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Tveir smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð í Sjanghæ í Kína fyrir helgi. Vegtálmum var komið upp til að tryggja öryggi fólks á meðan hestarnir ráfuðu um en þeir voru gómaðir fyrir rest. 24.10.2026 14:39
„Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina. 24.10.2026 11:44
Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Tveir sem dæmdir voru fyrir kynferðisbrot gegn börnum hafa sloppið við refsingu á síðustu árum vegna þess að þeir komust ekki að í afplánun. 23.10.2026 08:00
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Logi Einarsson ætlar að flýta gerð nýs þjónustusamnings við Ríkisútvarpið þar sem miðlinum verða settar frekari skorður á samkeppnismarkaði. Nýr samningur átti að líta dagsins ljós í lok næsta árs en verður gerður á fyrri hluta ársins. Á svipuðum tíma boðar hann fyrstu háskólastefnu Íslands. Logi segir að það sem þar verður kynnt verði örugglega umdeilt en í stefnunni verði ekki að finna skipanir um sameiningu skóla. 22.10.2026 07:01
Stefna á að hefja leit í nóvember Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að í næsta mánuði verði mögulega hægt að hefja leit að jarðneskum leifum manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík árið 2024. Nú sé unnið að mótvægisaðgerðum. 20.10.2026 14:52
Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Nítján lögmenn sem starfa á sviði skaðabótaréttar segja að nýlegur dómur Hæstaréttar feli í sér tilmæli til Alþingis um að uppfæra þurfi skaðabótalög og færa þau til nútímans. Boltinn sé hjá dómsmálaráðherra. 20.10.2026 13:00
Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Það er umhverfisvænna að vera ókurteis við gervigreindina þar sem hver fyrirspurn kostar orku. Gervigreindarsérfræðingur segir óþarfi að bjóða spjallmenni góðan daginn – betra sé að koma sér beint að efninu í fyrirspurnum. 18.10.2026 22:02