Brúðhjón og fyrirtæki flykkjast til útlanda Brúðarkjólameistari finnur fyrir því að fleiri en áður kjósi að halda brúðkaup erlendis og segir það geta verið ódýrara en að halda veisluna hér á landi. Þá virðist lítið hafa dregið úr árshátíðarferðum fyrirtækja til útlanda þrátt fyrir verðbólgu. 12.6.2023 22:01
Börnin tala lítið en eru á batavegi Börnin fjögur, sem fundust í Amazon regnskóginum eftir fjörutíu daga leit, hittu ættingja sína á sjúkrahúsi í Bogotá í gærkvöldi. Þau eru veikburða og tala lítið sem ekkert en hafa greint frá því að týndur hundur hafi veitt þeim félagsskap í skóginum. 11.6.2023 20:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Reykjavíkurborg brýtur lög með verklagi sínu í kringum biðlista einstaklinga eftir sértækum húsnæðisúrræðum að sögn lögmanns Landssamtakanna Þroskahjálp. Á annað hundrað manns eru á biðlista og enginn veit hvenær röðin kemur að þeim. 11.6.2023 17:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Rafiðnaðarsamband Íslands reiknar fastlega með því að til verkfalla komi í lok mánaðar að sögn varaformanns sambandsins, þar sem ekki hefur tekist að semja um kjarasamning við Landsnet. Verkfall muni hafa áhrif á raforkudreifingu á landinu öllu. 11.6.2023 11:37
Hádegisfréttir Bylgjunnar Eftir fjórtán klukkustunda formlega samningalotu var kjarasamningur undirritaður í kjaradeilu BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga og öllum verkföllum aflýst. Við fjöllum um málið. 10.6.2023 11:44
Fáir úti á götu og heimsendabragur yfir borginni Íslendingur sem staddur er í New York segir heimsendabrag yfir borginni. Fáir eru á ferli og varla sést til sólar vegna þykks reykmakkar sem hefur legið yfir austurhluta Bandaríkjanna síðustu daga. 9.6.2023 20:59
Segir verðbreytingar eðlilegar og til marks um mikla samkeppni Framkvæmdastjóri Krónunnar hafnar því að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð eftir að ný verðgátt fór í loftið. Verðbreytingar séu eðlilegar og til marks um mikla samkeppni. Samkeppniseftirlitið mun fylgjast með framvindu mála. 9.6.2023 20:01
Alvarleg staða ríki á fákeppnismarkaði Alvarleg staða ríkir á fákeppnismarkaði og samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja lítil að sögn formanns VR sem segir vísbendingar um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt nokkrum dögum áður en ný verðgátt var opnuð almenningi, óásættanlegar. Auka verði samkeppni. 9.6.2023 13:30
Viðbrögð starfsmanna hafi verið alvarleg, ómarkviss og ámælisverð Viðbrögð starfsmanna sumarbúðanna í Reykjadal voru ómarkviss, ámælisverð og alvarleg þegar níu ára stúka með fötlun sagði þroskaskertan starfsmann hafa brotið á sér kynferðislega. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála þar sem úrbætur eru boðaðar. 1.6.2023 19:01
Ákvörðunin skiljanleg en breyti ekki viðfangsefninu Formaður VR telur að afsögn Aðalsteins Leifssonar, fyrrverandi ríkissáttasemjara, muni ekki hafa áhrif á komandi kjaraviðræður. Enginn þrýstingur hafi verið frá hans armi verkalýðshreyfingarinnar um afsögn. 1.6.2023 13:01