Viðbrögð við meirihlutaslitum, flugbraut lokað og ummæli þingmanns Oddviti Samfylkingarinnar segist fyrst hafa lesið um það í fjölmiðlum að borgarstjóri væri farinn að ræða við flokka borgarminnihlutans um samstarf. Ákvörðun hans um að slíta samstarfinu kasti stórum skugga á samstarf síðustu ára. Við ræðum við hana og stjórnmálafræðing um næstu skref. 8.2.2025 11:47
Vígðu bleikan bekk við skólann Bleikur bekkur var vígður í Verzlunarskóla Íslands í morgun til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, sem lést eftir stunguárás á menningarnótt. Bryndís Klara hefði orðið átján ára í gær og voru að því tilefni styrkir veittir úr minningarsjóði hennar í fyrsta sinn. 3.2.2025 20:02
„Þetta er einhver samfélagsmiðlasýki“ Sérfræðingur í forvörnum segir mikilvægt að foreldrar ræði við börn sín um hætturnar sem fylgt geta tálbeituaðferðum. Myndbönd sem sýna ungmenni ganga í skrokk á meintum barnaníðingum eru í dreifingu á samfélagsmiðlum. 25.1.2025 21:03
Íhugar formannsframboð Guðrún Hafsteinsdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, íhugar alvarlega að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á næsta landsfundi flokksins. Fyrrverandi ráðherrar liggja undir feldi á meðan klukkan tifar. 24.1.2025 21:09
Maðurinn hafi talið sig vera að fara að hitta stúlku á fermingaraldri Karlmaður á Akranesi, sem varð fyrir hrottalegri líkamsárás af hálfu hóps ungmenna, taldi sig vera að fara að hitta stúlku við fermingaraldur þegar ráðist var á hann. Þetta herma heimildir fréttastofu. Nokkrir hafa verið handteknir og yfirheyrðir vegna málsins. 24.1.2025 12:02
Fjölskyldur fögnuðu þegar gíslum var sleppt Fjölskyldur fögnuðu þegar þremur konum var sleppt úr haldi Hamas samtakanna eftir fimmtán mánaða gíslingu. Vopnahlé tók gildi á Gasasvæðinu í morgun. 19.1.2025 19:23
Rýmingar á Austfjörðum, vopnahlé og dýramessa Á annað hundrað íbúar á Austfjörðum þurftu að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu. Við rýnum í stöðuna í beinni. 19.1.2025 18:01
Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráðabirgðalögum Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður, telur niðurstöðu Héraðsdóms um Hvammsvirkjun efnislega ranga. Líkt og fjallað hefur verið um var virkjunarleyfi Landsvirkjunar fellt úr gildi í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni og ríkir mikil óvissa um framhaldið. 19.1.2025 12:16
Vopnahlé og ákvörðun tekin um rýmingu á Austfjörðum Vopnahlé er hafið milli Ísraelsmanna og Hamas samtakanna. Fyrstu gíslum verður sleppt úr haldi í dag. Við ræðum stöðuna í beinni útsendingu. 19.1.2025 11:44
Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Fjögurra manna fjölskylda var drepin í loftárásum Ísraelsmanna á Gasasvæðið í nótt, sólarhring áður en umsamið vopnahlé tekur þar gildi. 18.1.2025 19:01