Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 6. september 2026 23:30 Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskólann í Malmö. Aðsend Ýmislegt bendir til þess að stjórnarskipti verði í Svíþjóð eftir þingkosningarnar sem fram fara þann 13. september. Þetta segir stjórnmálafræðingur. Mjótt er á munum og velferðarmál helsta kosningamálið.
Tiltölulega jafnt er á milli stjórnarandstöðuflokkanna og ríkisstjórnarflokkanna samkvæmt skoðanakönnunum. Gunnhildur Lilý Magnúsdóttir, dósent í stjórnmálafræði, er búsett í Malmö. Hún segir allt stefna í spennandi kosningar. „Hérna í Svíþjóð þá er hefðin sú að við höfum minnihlutastjórnir. Hefðin er líka sú að við höfum tvær blokkir, annars vegar blokk hægra megin við miðju þar sem við höfum borgaralega flokka og svo höfum við hina blokkina sem núna situr í stjórnarandstöðu sem við köllum rauðgrænu blokkina, sem eru flokkar frá miðju og út á vinstri ásinn. Það er sem sagt stjórnarandstöðublokkin, þessi rauðgræna, sem er með forystu núna en sú forysta hefur minnkað á undanförnum tveim vikum. Þannig að þetta verða mjög spennandi kosningar.“ Jafnt á milli Jafnaðarmannaflokkurinn er stærsti flokkurinn í Svíþjóð. Hann er í stjórnarandstöðu sem stendur en Gunnhildur segir ýmislegt benda til þess að það verði stjórnarskipti. „En eins og ég sagði er mjög jafnt á milli og minnstu flokkarnir í núverandi ríkisstjórn hafa verið að gefa í, til dæmis Frjálslyndi flokkurinn sem hefur verið í mikilli hættu á að detta út af þingi. Þeir liggja nálægt því að halda sér inni á þingi, þannig að þetta verður mjög spennandi. En það bendir samt meira til þess að við munum sjá ríkisstjórnarskipti eftir kosningar miðað við tölurnar núna.“ Kosningarnar snúist um velferðarmál, sér í lagi heilbrigðis- og menntamál. „Það sem er kannski athyglisvert er að mál sem voru mjög ofarlega á baugi fyrir kosningarnar fyrir fjórum árum eins og málefni flóttamanna og innflytjendamál, þau eru mun neðar á lista núna og hafa fengið minni athygli.“
Þingkosningar í Svíþjóð Svíþjóð Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira