Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Unn­endur hamsatólgar geta andað léttar

Fyrirtækið Stóruvellir ehf. í Bárðardal hefur verið selt en fyrir einungis mánuði síðan var útlit fyrir að það myndi hætta framleiðslu á tólg, hamsatólg, hangifloti og útikertum eftir rúma þrjá áratugi. Stofnandi fyrirtækisins segir söluna vera hið besta mál og að hann muni aðstoða nýjan eiganda við að læra handtökin enda sé um mikilvæga íslenska matarhefð að ræða.

Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið

Eitt þekktasta, og að margra mati mikilvægasta, tímarit sem birti og skrásetti fréttaljósmyndir 20. aldarinnar, snýr nú aftur en það kom fyrst inn á sjónarsviðið fyrir níutíu árum. Útgáfu blaðsins var hætt upp úr 1970 þegar sjónvarpið ruddi sér rúms en það var svo endurvakið átta árum síðar og gefið út einu sinni í mánuði þar til um aldamótin.

Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum

Vináttufélag Íslands og Kúbu stóð fyrir mótmælum vegna refsiaðgerða Bandaríkjanna gegn Kúbu en þau fóru fram á sjötta tímanum við bandaríska sendiráðið. Þá var vegna þessa gefin út sérstök öryggisviðvörun fyrr í dag og sendiráðinu lokað snemma.

Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman

Þrír menn hafa hlotið dóm fyrir að hafa í ágúst 2023 kveikt í Teslu-bifreið lögreglumanns gegn greiðslu sem hljóðaði upp á hundrað þúsund krónur. Málinu hafði verið vísað frá dómi í desember síðasta árs en þá hafði ekki fengist leyfi frá Ríkissaksóknara til þess að Héraðssaksóknari gæti farið með málið.

Birta gott upp­gjör og hnýta í ríkis­stjórnina

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi er í samræmi við markmið að sögn bankastjóra. Hann segir áform stjórnvalda um að hækka bankaskatt um ríflega 75 prósent þó vera skammsýna ráðstöfun og það sé nauðsynlegt að til staðar sé framtíðarsýn um starfsumhverfi fyrirtækja. Skattahækkunin muni í tilfelli Arion banka nema um 1.700 milljónum á ári.

Kerfisvilla og mann­leg mis­tök leitt til slyssins

Þriggja daga þjóðarsorg stendur yfir næstu þrjá daga í Andalúsíu en hið minnsta 68 manns létu lífið þegar tvær hraðlestir rákust á í morgun. Samgönguráðherra Spánar hefur greint frá því að tvennt hafi leitt til slyssins, fyrst kerfisvilla og því næst ákvörðun um að önnur lestin mætti keyra áfram þrátt fyrir að vera á rauðu.

Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“

Ný yfirlýsing sem snýr að áhrifum nýrrar tækni á börn og ungmenni var undirrituð á fundi forsætisráðherra Norðurlanda í dag, þann 27. október, sem er í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs sem fram fer í Helsinki þessa dagana. Kristrún Frostadóttir segir jákvætt að þjóðirnar, sem hafi oft verið frumkvöðlar þegar kemur að velferðarmálum, taki höndum saman um að bjóða tæknirisum birginn.

Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám

Metfjöldi Ísraela gekk að kjörborðinu í dag en reiknað var með því að ríflega sjö milljónir manns greiddu atkvæði. Miðað við fyrstu útgönguspár mun hvorki fylking Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra né stjórnarandstaðan ná þeim 61 þingsætum sem þarf til að mynda meirihluta á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti.

Guð­ný Helga tekur við af Haraldi

Stjórn Skaga hefur samið við Harald I. Þórðarson, forstjóra félagsins, um starfslok en hann mun áfram gegna stjórnarstörfum innan samstæðunnar. Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS trygginga, verður æðsti stjórnandi samstæðunnar og mun leiða hana frá og með deginum í dag, samhliða því að stýra áfram VÍS tryggingum.

Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuð­högg

Lögreglan á stöð eitt fékk tilkynningu í dag vegna vinnuslyss í hverfi 102 þar sem kona féll úr stiga og hlaut höfuðhögg. Hún var flutt með sjúkrabíl á bráðamóttökuna til athugunar en ekki liggja frekari upplýsingar fyrir um líðan hennar að svo stöddu.

Sjá meira