Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Undir­búa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála

Veitur hafa stöðvað borun í Skammadal og vinna nú að undirbúningi upplýsingafundar fyrir íbúa og hagaðila í kjölfar umræðu um mengun í Varmá. Leit að heitu vatni í dalnum, sem er í Mosfellsbæ, hefur valdið litabreytingum á vatninu í ánni. Á vef Veitna segir meðal annars að áhrif á ánna hafi orðið meiri en áætlað var við upphaf framkvæmdanna.

Líkams­á­rás á veitinga­stað í mið­borginni og um­fangs­mikill þjófnaður

Lögreglustöð eitt barst tilkynning um líkamsárás og eignaspjöll á veitingastað í miðborginni í dag en gerandinn var farinn af vettvangi er lögreglu bar að garði. Þá sinnti lögreglustöð þrjú, sem fær tilkynningar um mál í Kópavogi og Breiðholti, útkalli þar sem tveir menn áttu að hafa verið að stela miklu magni þýfis úr matvöruverslun. Rannsókn stendur enn yfir í báðum málum.

Skjálfta­hrina á Hellis­heiði hófst í morgun

Rétt fyrir klukkan sjö í morgun hófst skjálftahrina á Hellisheiði en alls hafa um hundrað og tuttugu skjálftar mælst síðan þá. Sá stærsti, óyfirfarin stærð, var um 3,2 að stærð nú klukkan 17:15 og það voru nokkrir aðrir sem náðu nánast 3 að stærð.

Mennta­skólanum í Reykja­vík slitið í 180. sinn

Menntaskólinn í Reykjavík (MR) brautskráði í gær 195 stúdenta við hátíðlega athöfn í Háskólabíói. 35 af máladeildum, 36 af eðlisfræðideildum og 124 af náttúrufræðideildum. Var skólanum formlega slitið í 180. sinn við lok athafnarinnar.

Fleiri ferðir felldar niður og ekkert sam­komu­lag í sjón­máli

Kjaradeila Icelandair og flugmanna er orðin að stærri umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni. Meðal stærstu hluthafa eru íslenskir lífeyrissjóðir sem eiga saman stærri hlut en stærsti einstaki hluthafinn.

Mugison þakkar inni­lega fyrir sig

Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, vann til verðlauna í gær en hann hlaut Eddu fyrir tónlistina í þáttunum Felix & Klara. Hann segist ekki hafa verið að búast við verðlaununum en að það hafi verið algjör unun að geta unnið ásamt Ragnari Bragasyni og þakkar einnig fjölda fólks sem kom að verkinu.

Hæsta ein­kunn sem hefur verið gefin á stúdents­prófi í skólanum frá upp­hafi

Benedikt Fazakerley Richardsson á tölvubraut var dúx Fjölbrautarskólans í Breiðholti nú á dögunum með einkunnina 9,83 sem er hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum. Erlendur Stefán Gíslason var semídúx með einkunnina 9,78 en þeir eru góðir vinir og kepptust um að vera með bestu meðaleinkunnina við útskrift.

„Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum á­hyggjur af því“

Ríflega þúsund hafa þegar skrifað undir undirskriftalista sem ber yfirheitið Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð en í tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir íbúðabyggð við vatnið. Á vef Hafnarfjarðar segir að „Hvaleyrarvatn og umhverfi sé eitt það fallegasta á höfuðborgarsvæðinu" og eru þar fjölmargar gönguleiðir.

Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen

Norskur maður á sextugsaldri hefur fengið stöðu sakbornings í máli Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018 og hefur verið skráð myrt daginn sem hún hvarf í kerfum lögreglu síðan í janúar 2020.

Sjá meira