Stjórnarandstaðan segir Ísrael stefna að stórslysi Ísraelska þingið, Knesset, samþykkti í dag fyrstu breytingarnar á dómskerfi landsins sem miða að því að auka vald þings og framkvæmdavalds og draga úr valdi Hæstaréttar í umdeildum málum. 24.7.2023 19:51
Stjórnarkreppa að loknum kosningum á Spáni Stjórnarkreppa blasir við á Spáni eftir að hvorugri blokkinni til hægri og vinstri í spænskum stjórnmálum tókst að vinna hreinan meirihluta á spænska þinginu í kosningum sem fram fóru í gær. 24.7.2023 19:47
Þúsundir ferðamanna flýja Grikkland Þúsundir ferðamanna reyna að komast heim til sín frá Rhodes eyju í Grikklandi vegna stjórnlausra skógarelda þar. Eldar loga á tugum staða í Grikklandi og hefur fjöldi ríkja sent Grikkjum aðstoð undanfarna daga. 24.7.2023 19:40
Stjórnarflokkarnir sækja á og Samfylkingin dalar Stjórnarflokkarnir bæta lítillega við sig fylgi og Samfylkingin dalar samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna dugar ekki til myndunar meirihluta á Alþingi. 24.7.2023 19:22
Rússar sprengdu sögulegar byggingar í Odessa Einn lést og um tuttugu særðust í fjölbreyttum loftárásum Rússa á hafnarborgina Odessa í gærdag. Um fimmtíu byggingar skemmdust þeirra á meðal margar sögufrægar byggingar eins og dómkirkja rétttrúnaðarkirkjunnar. 24.7.2023 11:47
Rússar fá enn íhluti í vopn frá Vesturlöndum Á innan við sólarhring frá því Rússar sögðu sig frá samkomulagi um útflutning á korni frá Úkraínu gerðu þeir öflugar loftárásir á Odessa, helstu útflutningshöfn landsins. Forseti Úkraínu segir Rússa enn fá íhluti til vopnasmíði frá Vesturlöndum og herða þurfi refsiaðgerðir gegn þeim. 19.7.2023 20:15
Að minnsta kosti mánuður í bráðabirgðaskýrslu vegna flugslyssins Bráðabirgðaskýrslu um flugslysið við Sauðahnjúka fyrir austan fyrir rúmri viku er ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi eftir mánuð. Áætluðum flugtíma flugvélarinnar í hinni örlagaríku ferð var við það að ljúka þegar slysið átti sér stað. 19.7.2023 19:41
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum sýnum við stórkostlegar myndir frá því þegar gígurinn á Reykjanesi brast og glóandi hraunið streymdi fram. Einnig myndir af fólki sem stóð upp við gíginn skömmu áður en hann brast en lögregla náði með harðfylgi að reka burt frá gígnum. Hraunflóðið tekur nú nýja stefnu og spurning hvaða áhrif það hefur. 19.7.2023 18:00
Brotthvarf Rússa frá kornsamkomulaginu byggt á rússneskri lygi Rússar gerðu mikla eldflauga- og drónaárás á hafnarborginna Odessa í Úkraínu í nótt. Fjöldi eldflauga og dróna náðu alla leið og ollu miklum skemmdum aðallega á hafnarsvæði borgarinnar. Úkraínumenn gerðu einnig eldflaugaárás á rússneska herstöð á suðurhluta Krímskaga. 19.7.2023 11:54
Brotthvarf Rússa frá kornsamkomulagi fordæmt um allan heim Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna auk leiðtoga fjölmargra ríkja hafa í dag fordæmt ákvörðun Rússa um að segja sig frá samkomulagi um kornútflutning frá Úkraínu. 18.7.2023 19:41