Þjóðaröryggisstefnan uppfærð eftir innrás Rússa Forsætisráðherra segir þjóðaröryggisstefnu Íslands hafa sannað gildi sitt og væri í uppfærslu eftir innrás Rússa í Úkraínu. Framlög til varnarmála hafi verið aukin á undanförnum árum og náið samstarf sé haft við bandalagsríki. Ekki hafi verið óskað eftir varanlegri herstöð á Íslandi. 29.9.2022 19:20
Skemmdir á gasleiðslum færa átökin nær Íslandi Forsætisráðherra segir stjórnvöld fylgjast grannt með atburðarás stríðsins í Úkraínu og nú síðast skemmdarverkum á gasleiðslum í Eystrasalti sem færi átökin nær Íslendingum. Framlög til varnarmála hefðu verið aukin og mikilvæt væri að tryggja netöryggi. 29.9.2022 13:10
Staðan í Evrópu helsta ógnin við íslenskan efnahag Íslensku efnahagslífi stafar helst ógn af mikilli óvissu í alþjóðamálum. Seðlabankastjóri telur að vaxtahækkanir og aðrar aðgerðir Seðlabankans séu farnar að skila árangri. Horft verði til þess við ákvörðun vaxta í næstu viku. 28.9.2022 19:22
Börn Jóakims prins svipt titlum sínum Margrét Þórhildur Danadrottning hefur ákveðið að börn Jóakims prins beri í framtíðinni ekki titlana prins og prinsessur. Breytingin tekur gildi þann 1. janúar 2023. Breytingin nær bæði til barnanna tveggja sem hann á með fyrrverandi eiginkonu sinni Alexöndru greyfynju og þeirra tveggja sem hann á með Marie prinsessu, núverandi eiginkonu. 28.9.2022 14:09
Rannsóknin sé ítarleg og muni taka af allan vafa Seðlabankastjóri segir að rannsókn Fjármálaeftirlits bankans á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka muni taka af allan vafa hvort innherjaupplýsingar hafi verið nýttar í tengslum við yfirvofandi útboð bankans. Allir þættir málsins verði skoðaðir. 28.9.2022 13:09
Öfugmæli að aðgerðir Seðlabankans komi heimilunum illa Seðlabankastjóri segir að þeir sem gagnrýnt hafi aðgerðir Seðlabankans til að ná niður verðbólgu fari með öfugmælavísur. Verðbólga sé mesti óvinur þeirra verst settu í þjóðfélaginu og nú bendi margt til að aðgerðir til á ná henni niður séu farnar að virka. 28.9.2022 12:23
Verðbólga, lögregla og leigubifreiðar á Alþingi Þingmaður Flokks fólksins segir öfugsnúið að berjast gegn verðbólgu með hækkun vaxta sem auki greiðslubyrði heimilanna og verðbólguna. Fjármálaráðherra segir vaxtahækkanir Seðlabankans hins vegar hafa dregið úr hækkun húsnæðisverðs og nú fari verðbólga minnkandi. 27.9.2022 19:42
Skrúfað fyrir húsnæðislán og búist við miklum vaxtahækkunum Húsnæðislánafyrirtæki í Bretlandi hafa brugðist við efnahagsaðgerðum bresku ríkisstjórnarinnar með því að hætta tímabundið útlánum eða með því að fækka lánamöguleikum. Reiknað er með að Englandsbanki hækki meginvexti sína og að þeir verði jafnvel komnir í sex prósentustig á næsta ári. 27.9.2022 11:45
Svona var dagurinn: Elísabet Bretlandsdrottning borin til grafar Útför Elísabetar II Bretlandsdrottningar fór fram í dag og var glæsileg útsending frá London sýnd á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Heimir Már Pétursson fréttamaður lýsti því sem fyrir augu bar í útsendingunni sem stóð í sex klukkustundir. 19.9.2022 08:00
Tekist á um ríkiseign á bönkunum á Alþingi Þingmaður Viðreisnar telur enga ástæðu fyrir ríkið að halda áfram að eiga hlut í Íslandsbanka og Landsbanka. Hægt væri að leysa út allt að fjögur hundruð milljarða með sölu þeirra til greiðslu skulda. Forsætisráðherra vill hins vegar að ríkið haldi ráðandi eign í Landsbankanum. 16.9.2022 19:21