Tillaga um kaupréttarkerfi fékkst ekki samþykkt eftir andstöðu frá Gildi Áform stjórnar Regins um innleiðingu á kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur hlaut ekki samþykki nægjanlega mikils meirihluta hluthafa á aðalfundi fasteignafélagsins sem lauk fyrr í dag. Lífeyrissjóðurinn Gildi, fimmti stærsti hluthafi félagsins, hafði lagt fram bókun í aðdraganda fundarins og lagst gegn tillögu stjórnarinnar. 12.3.2024 21:31
Bið á vaxtalækkun meðan óvissa er um fjármögnun á kjarapakka stjórnvalda Nýgerðir samningar á almennum vinnumarkaði fela í sér launahækkanir við neðri mörk þess sem sést hefur í kjarasamningum síðustu fimmtán ár og lengd þeirra ætti að minnka verðbólguáhættu og auka fyrirsjáanleika, að mati viðmælenda Innherja á fjármálamarkaði, en ólíkar skoðanir eru um áhrifin á verðbólguhorfur. Miklu máli skiptir fyrir vaxtalækkunarferlið að stjórnvöld skýri hvernig þau hyggjast fjármagna tugmilljarða útgjaldaaðgerðir sínar sem eru „óhjákvæmilega“ sagðar vera eftirspurnarhvetjandi. 12.3.2024 11:48
Sala á Íslandsbanka myndi auka líkur á uppfærslu hjá vísitölufyrirtækjum Verði af áformum stjórnvalda um að hefja að nýju söluferli á hlutum ríkisins í Íslandsbanka ætti það að hjálpa íslenska hlutabréfamarkaðinum við að færast hærra upp í gæðaflokkunarstiga hjá alþjóðlegum vísitölufyrirtækjum, að sögn Kauphallarinnar. Stjórnendur hennar viðurkenna að almennt útboð við söluna, eins og lagt er til í þetta sinn, sé „flóknara í framkvæmd“ heldur en tilboðsfyrirkomulag en hafi á móti þann kost að auka frekar þátttöku almennings í hlutabréfaviðskiptum. 7.3.2024 12:18
LSR setti öll sín atkvæði á Guðjón í stjórnarkjörinu hjá Festi Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi, greiddi fráfarandi forstjóra Reita öll atkvæði sín í stjórnarkjöri smásölurisans á hitafundi sem fór fram í morgun. Djúpstæð gjá hefur myndast milli stærstu einkafjárfestanna í hluthafahópi Festar og sumra lífeyrissjóða, sem beittu sér gegn því að fulltrúi þeirra færi í stjórn, en hlutabréfaverð félagsins féll um þrjú prósent í dag og hefur ekki verið lægra á þessu ári. 6.3.2024 20:20
„Aldrei orðið vitni að öðrum eins vinnubrögðum og beinni íhlutun lífeyrissjóða“ Frambjóðandi til stjórnar úr röðum stærstu einkafjárfesta Festar fór hörðum orðum um starfshætti tveggja stórra lífeyrissjóða, sem höfðu lýst yfir óánægju sinni með tilnefningu hans til stjórnar, í ræðu á aðalfundi og sagðist aldrei hafa upplifað önnur eins vinnubrögð og beina íhlutun af hálfu stofnanafjárfesta. Sakaði Þórður Már Jóhannesson, sem dró framboð sitt til baka á fundinum, sjóðina meðal annars um nýta sér glufu í lögum um kynjakvóta sem tæki í „valdabaráttu“ sinni við stjórnarkjörið. 6.3.2024 13:18
Lögmaðurinn John Van De North bætist í hóp eigenda BBA//Fjeldco Íslenska lögmannsstofan BBA//Fjeldco, sem starfrækir meðal annars skrifstofu í Mayfair í London, hefur stækkað teymi sitt þar í borg með því að fá til liðs við sig bandaríska lögmanninn John Van De North. Hann er með áratuga reynslu af ráðgjöf við stór fjármögnunarverkefni og var áður einn eiganda alþjóðlegu lögmannsstofunnar Goodwin í London. 5.3.2024 19:56
Hætta á að kosning á grundvelli aðeins hæfismats skili „of einsleitri“ stjórn Tilnefningarnefnd Arion varar við því að farin sé sú leið, sem meðal annars framkvæmdastjóri LSR hefur kallað opinberlega eftir, að einvörðungu sé framkvæmt hæfismat á frambjóðendum til stjórnarkjörs enda sé hætta á því að kosning myndi þá ekki skila nauðsynlegri fjölhæfni og þekkingu innan stjórnar. Hún segist hins vegar hafa skilning á því ef stórir hluthafar, sem „ekki hafa fylgst með“ tilnefningarferlinu, finnist skorta á gagnsæi þegar ítrekað sé sjálfkjörið í stjórnir félaga. 5.3.2024 14:04
Búast við að Alvotech nái „verulegri“ markaðshlutdeild eftir samþykki FDA Erlendir og innlendir greinendur hafa hækkað talsvert verðmat sitt á Alvotech eftir að félagið hlaut markaðsleyfi í Bandaríkjunum og vegna tímabundins einkaréttar er líftæknilyfjafyrirtækið, ásamt samstarfsaðila sínum Teva, sagt vera í stöðu til að ná „verulegri“ markaðshlutdeild þar í landi í nálægri framtíð með sölu á hliðstæðu við Humira, að mati fjárfestingabankans Barclays. Með blessun FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech er talið að félagið muni í framhaldinu eiga auðveldara um vik að fá samþykki fyrir fleiri lyf á mikilvægasta markaði heims. 4.3.2024 15:55
Útkoma kjarasamninga „langstærsti“ óvissuþátturinn fyrir vaxtalækkunarferlið Þrátt fyrir hátt aðhaldsstig peningastefnunnar þá þarf „allt að falla með okkur“ til þess að hægt verði að hefja vaxtalækkunarferlið í maí, meðal annars að niðurstaða kjarasamninga fái grænt ljós frá Seðlabankanum, að mati skuldabréfamiðlara. Hagfræðingar Arion banka segja hækkun matvöruverðs mestu vonbrigðin í nýjustu verðbólgumælingum en benda á að undirliggjandi verðbólga virðist enn vera að hjaðna. 29.2.2024 10:15
Mælir með kaupum í Play og telur útboðsgengið „vel undir“ sanngjörnu virði Virðismatsgengi Play, sem vinnur núna að því að klára að lágmarki fjögurra milljarða króna hlutafjáraukningu, er rúmlega tvöfalt hærra en útboðsgengið, samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu. Talið er að Play muni skila lítillegum rekstrarhagnaði á þessu ári og það náist jafnvægi milli einingatekna- og kostnaðar í rekstri flugfélagsins. 28.2.2024 17:20