Væntanlegur samruni við Samkaup mun breyta dagvörumarkaðinum mikið Boðaður samruni Heimkaupa, sem opnaði nýlega verslunina Prís, og Orkunnar við Samkaup mun breyta miklu fyrir dagvörumarkaðinn en hann ætti að hafa í för með sér verulega stærðarhagkvæmni í innkaupum og betri nýtingu á rekstrarfjármunum, að sögn hlutabréfagreinanda. Verðmatsgengi fjárfestingafélagsins SKEL er nokkuð yfir núverandi markaðsgengi, samkvæmt nýrri greiningu, og áætlað er að velta Prís á þeim ríflega fjórum mánuðum sem hún verður starfrækt á þessu ári muni nema um þremur milljörðum. 29.9.2024 13:10
Gjaldeyriskaup lífeyrissjóða skreppa saman um fjórðung Talsvert hefur hægt á kaupum lífeyrissjóðanna á erlendum gjaldeyri á undanförnum mánuðum samhliða meðal annars því að fjármagnsinnflæði í íslensk hlutabréf og ríkisskuldabréf var nánast hverfandi. Eftir að hafa veikst nokkuð í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, hefur gengi krónunnar styrkst undanfarið og er að nálgast að nýju gildið 150 á móti evrunni. 27.9.2024 15:51
Markaðir rjúka upp eftir að verðbólgan lækkaði meira en væntingar voru um Hlutabréfaverð flestra félaga hefur rokið upp í Kauphöllinni og verðbóluálagið á skuldabréfamarkaði lækkað skarpt vegna væntinga fjárfesta um að það sé að styttast í vaxtalækkunarferli Seðlabankans eftir nýjar verðbólgutölur sem birtust í morgun. Tólf mánaða verðbólgan hjaðnaði niður í 5,4 prósent í september, mun meira en spár gerðu ráð fyrir, en peningastefnunefnd mun birta næstu vaxtaákvörðun sína eftir fimm daga. 27.9.2024 10:35
Vaxandi verðtryggingarmisvægi gæti reynst „áskorun“ fyrir fjármálakerfið Þótt fjármálakerfið standi traustum fótum, sem birtist meðal annars í því að álagspróf sýna að það myndi standast „umtalsvert“ álag, þá gæti þrálát verðbólga samtímis minnkandi umsvifum í efnahagslífinu skapað áskoranir fyrir bankana, að mati fjármálastöðugleikanefndar. Hún sér ástæðu til að vara við hratt vaxandi verðtryggingarmisvægi sem gæti valdið erfiðleikum fyrir fjármálakerfið. 25.9.2024 09:12
Fjöldi á vinnualdri á hvern eftirlaunaþega mun fara ört lækkandi Hlutfallsleg aukning mannfjölda á Íslandi undanfarin ár hefur verið gríðarleg, mun meiri en þekkist í flestum öðrum Evrópulöndum, drifin áfram af aðfluttu vinnuafli umfram brottflutta samtímis eftirspurn eftir starfsfólki með uppbyggingu ferðaþjónustunnar og byggingargeirans. Í nýrri lýðfræðigreiningu Stefnis er meðal annars vakin athygli á því að með lækkandi fæðingartíðni og öldrun þjóðarinnar þá sé ljóst að fjöldi fólks á vinnualdri á hvern eftirlaunaþega muni fækka verulega í náinni framtíð. 25.9.2024 06:02
Arkitekta- og verkfræðistofur merkja mikinn samdrátt í verkefnum Allt útlit er fyrir minna framboð íbúðarhúsnæðis á næstu árum sem birtist meðal annars í því að meira en sextíu prósent arkitekta- og verkfræðistofa segja að verkefnum hjá sér hafi fækkað, samkvæmt nýrri könnun sem Samtak iðnaðarins hafa gert. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að áherslur stjórnvalda í húsnæðisstuðningi, sem beinast núna í meira mæli til leigjenda, séu til þess fallin að magna vandann enn frekar í stað þess að auka hvata til íbúðaruppbyggingar. 24.9.2024 17:16
Stærsti lífeyrissjóðurinn lagðist gegn tillögum Gildis að kaupréttarkerfum Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti lífeyrissjóður landsins, studdi ekki breytingartillögur sem Gildi vildi ná fram á kaupréttarkerfum fyrir stjórnendur Heima og Haga á hluthafafundum í lok síðasta mánaðar. Tillögur stjórna félaganna voru þess í stað samþykktar af LSR og meirihluta fjárfesta. 23.9.2024 15:34
Framtakssjóður Stefnis fjárfestir í Örnu og eignast kjölfestuhlut Framtakssjóðurinn SÍA IV í rekstri Stefnis hefur ákveðið að leggja mjólkurvinnslunni Örnu til nýtt hlutafé og jafnframt kaupa eignarhluti af tilteknum hluthöfum félagsins. Fjárfesting sjóðsins á að tryggja uppbyggingu og vöxt Örn en fyrirtækið, sem var með fremur lítil eigið fé um síðustu áramót, velti nærri tveimur milljörðum króna á liðnu ári. 23.9.2024 13:00
Eftir hækkun Moody´s er lánshæfi Íslands einum flokki neðar en Bretlands Náist samkomulag við lífeyrissjóðina um úrvinnslu skulda ÍL-sjóðs og salan á Íslandsbanka klárast ætti það að leiða til meiri lækkunar á skuldahlutfalli ríkissjóðs en núverandi áætlun Moody´s gerir ráð fyrir, en lánshæfismatsfyrirtækið hefur hækkað einkunn Íslands í A1, einum flokki neðar en hjá löndum á borð við Bretland og Írland. Vaxtabyrði íslenska ríkisins í hlutfalli af tekjum er umtalsvert meiri í samanburði við önnur ríki með sama lánshæfismat en Moody´s telur að það muni lækka nokkuð á komandi árum. 22.9.2024 14:09
Skagi þarf frekari ytri vöxt til að ná tekjumarkmiðum af fjármálastarfsemi Með kaupum Skaga á Íslenskum verðbréfum eykst stöðugleiki í þjónustutekjum af fjármálastarfsemi en eigi tekjumarkmið til næstu tveggja ára að nást þarf markaðshlutdeild félagsins að aukast „verulega,“ að mati hlutabréfagreinanda. Samkvæmt nýrri greiningu lækkar verðmatsgengi Skaga nokkuð frá fyrra mati, einkum vegna útlits um minni hagnað á árinu en áður var talið, en afkoman ætti að batna mikið þegar það kemst á „eðlilegt“ árferði á fjármálamörkuðum. 21.9.2024 13:01
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent