Umfjöllun: Frakkland - Ísland 39-32 | Ólympíumeistararnir of stór biti fyrir strákana okkar Ólympíumeistarar Frakklands voru of stór biti fyrir strákana okkar í öðrum leik liðanna í milliriðli á EM karla í handbolta. Lokatölur 39-32 og íslenska liðið hefur nú tapað þremur leikjum í röð. 20.1.2024 16:05
„Alls ekki mín ákvörðun, heldur ákvörðun stjórnar“ Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, kveðst ánægð með að Åge Hareide verði áfram landsliðsþjálfari karla. Hún segir að uppsagnar- og framlengingarákvæði hafi verið sett í samning Hareides sem eftirmaður hennar í starfi geti nýtt sér. 20.1.2024 08:00
Ólympíuvonin veiktist eftir sigur Portúgals Portúgal sigraði Slóveníu, 30-33, í fyrsta leik dagsins á EM karla í handbolta. Portúgalir eru þar með komnir með fjögur stig í milliriðli 2 sem eru vondar fréttir fyrir Íslendinga í baráttunni um að komast í forkeppni Ólympíuleikanna. 19.1.2024 16:11
Sigurmark Þjóðverja kolólöglegt: „Í fyrsta lagi er augljóst tvígrip og svo skref“ Síðasta mark Þýskalands gegn Íslandi í leik liðanna á Evrópumótinu í gær var kolólöglegt. Dómarar leiksins höfðu tvær ástæður til að dæma boltann af Þjóðverjum. 19.1.2024 15:35
Klopp hefur rætt við Salah eftir að hann meiddist: „Hann fann fyrir þessu“ Knattspyrnustjóri Liverpool, Jürgen Klopp, hefur rætt við Mohamed Salah eftir að hann fór meiddur af velli í leik Egyptalands og Gana á Afríkumótinu í gær. 19.1.2024 14:30
Skelfileg hornanýting og níu víti farið í súginn Íslensku hornamennirnir og vítaskytturnar hafa engan veginn náð sér á strik á Evrópumótinu í Þýskalandi. Tölfræðin sýnir það svart á hvítu. 19.1.2024 14:01
Selma Sól til Nürnberg Selma Sól Magnúsdóttir, landsliðskona í fótbolta, er gengin í raðir Nürnberg í Þýskalandi. Hún hefur leikið með Rosenborg í Noregi undanfarin ár. 19.1.2024 13:30
Bollasúpan Knorr átti ekki möguleika í Ými Einar Jónsson, þjálfari Fram, hreifst mjög af frammistöðu Ýmis Arnar Gíslasonar í leik Íslands og Þýskalands í gær. Þjóðverjar unnu leikinn, 26-24. 19.1.2024 13:02
Umfjöllun: Þýskaland - Ísland 26-24 | Færanýtingin kostaði sitt Ísland mátti þola grátlegt tap gegn Þýskalandi á EM karla í handbolta eftir mjög góða frammistöðu varnarlega. Því miður fyrir strákana okkar var færanýtingin enn og aftur skelfileg. Má segja að leikur dagsins hafi tapast þar. 18.1.2024 17:30
Austurrískur sigur skellur fyrir Íslendinga Austurríki vann Ungverjaland, 29-30, í fyrsta leik dagsins á Evrópumótinu í handbolta. Úrslitin eru slæm fyrir Ísland í baráttunni um að komast í forkeppni Ólympíuleikanna. 18.1.2024 16:10