Wenger segist hafa átt að hætta miklu fyrr hjá Arsenal Arsene Wenger viðurkennir að hann hafi verið of lengi í starfi hjá Arsenal. Þetta kemur fram í nýrri heimildamynd um kappann. 8.11.2021 13:30
Framherji danska landsliðsins með sykursýki Kasper Dolberg, framherji danska landsliðsins og Nice í Frakklandi, hefur greinst með sykursýki eitt. 8.11.2021 12:30
Friðrik Ingi tekur við ÍR Friðrik Ingi Rúnarsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍR í körfubolta. Hann tekur við liðinu af Borche Ilievski. 8.11.2021 11:52
„Þetta gerist ekki betra“ Saga Sif Gísladóttir átti frábæra innkomu í mark Vals þegar liðið vann Fram, 24-25, í dag. Hún tók stöðu Söru Sifjar Helgadóttur í hálfleik og varði tíu skot, eða helming þeirra skota sem hún fékk á sig. 6.11.2021 18:47
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Valur 24-25 | Valur á toppinn Valur tyllti sér á topp Olís-deildar kvenna með eins marks sigri á Fram, 24-25, í Safamýrinni í dag. Valskonur eru með fullt hús stiga. 6.11.2021 18:44
Svava og Sigurlaug hita upp fyrir stórleikinn í Safamýrinni Svava Kristín Grétarsdóttir og Sigurlaug Rúnarsdóttir hituðu upp fyrir 6. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í aukaþætti Seinni bylgjunnar. 5.11.2021 16:30
Stakk upp á því að Van de Beek myndi skíra barnið Ole Gunnar Donny van de Beek, leikmaður Manchester United, á von á barni með kærustu sinni, Estelle Bergkamp. Fyrrverandi landsliðsmaður Hollands kom með áhugaverða tillögu að nafni á barnið. 5.11.2021 15:31
Segir að gagnrýni Jóhanns Bergs hafi ekki beinst gegn sér Arnar Þór Viðarsson telur að gagnrýni Jóhanns Bergs Guðmundssonar á störf KSÍ hafi ekki beinst gegn sér. 5.11.2021 14:00
Ætlaði að hætta eftir leikinn gegn Englandi: „Fór að hágrenja í klefanum“ Hannes Þór Halldórsson ætlaði að hætta með landsliðinu síðasta haust. Hann ákvað hins vegar að reyna að hjálpa landsliðinu að komast á eitt stórmót í viðbót. 5.11.2021 13:31
Emil þakkar fyrir sig: „Væri ekki á lífi án starfsfólks Sogndal“ Emil Pálsson, sem fór í hjartastopp í leik Sogndal og Stjørdals/Blink í norsku B-deildinni, setti inn færslu á Twitter þar sem hann þakkar læknateymi og starfsfólki Sogndal fyrir að vera á lífi. 5.11.2021 12:44