Veruleg röskun á umferð í miðbænum næstu vikur Framkvæmdir sem áætlaðar eru við Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur koma til með að hafa veruleg áhrif á umferðarflæði. Í næstu viku stendur til að hefja framkvæmdir við gönguþverun þar sem Reykjastræti þverar Geirsgötu. 10.7.2024 19:47
Ætlar að hætta eftir uppistandstúrinn Skemmtikrafturinn Ellen DeGeneres virðist tilbúinn til að kveðja sviðsljósið, en hún segir að uppistandið sem hún flytur nú víða um Bandaríkin verði hennar síðasta. Hún kveðst vera „búin“ í skemmtanabransanum og hún muni ekki koma fram á nýjan leik, þegar ferðalaginu er lokið. 10.7.2024 17:37
Þyrla kölluð út vegna bílslyss á Holtavörðuheiði Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna áreksturs á Holtavörðuheiði og er hún á leið á vettvang. Lögregla hefur lokað fyrir umferð í báðar áttir á meðan aðgerðir standa yfir. 10.7.2024 16:47
Talinn hafa myrt fjölskyldu íþróttafréttamanns BBC Fréttastofa BBC hefur staðfest að konurnar þrjár sem Kyle Clifford er talinn hafa drepið fyrr í dag, eru fjölskylda starfsmanns þeirra, John Hunt. Þrjár konur fundust alvarlega særðar á heimili í Ashlyn Close í Bushey í Herfordshire í Englandi í gær, og eru nú látnar. Lögregla leitar enn árásarmannsins. 10.7.2024 16:47
Festi festi kaup á Lyfju Í dag fór fram uppgjör á greiðslu kaupverðs á öllu hlutafé Lyfju hf. til seljanda og er félagið þar með orðinn hluti af samstæðu Festi. Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi, segir þetta mikilvæg tímamót í vegferð Festis. Kaupverð nam 7.116 milljónum króna. 10.7.2024 16:06
Ye sagðist vera hættur í tónlist Fyrr í kvöld birti rapparinn Rich the kid skjáskot af skilaboðum sem hann hafði fengið frá Ye, áður Kanye West, þar sem hann sagðist ætla hætta hafa tónlist að atvinnu. Kvaðst hann ekki vita hvað tæki við. Nokkrum klukkustundum síðar tilkynnti Rich the kid svo um það að Ye væri meðflytjandi á plötu hans sem kemur út á föstudaginn. 9.7.2024 22:44
Hagræðing í rekstri sé bændum og neytendum til heilla Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, segir öllum ljóst að gríðarleg tækifæri séu til hagræðingar í rekstri kjötafurðastöðva. Hagræðingin gangi út á að geta greitt bændum hærra afurðaverð, án þess að það þýði hækkun á verði til neytenda. Hún telur samruna Kaupfélags Skagfirðinga og Kjarnafæðis Norðlenska jákvætt skref í rétta átt. 9.7.2024 22:39
Fagnar umræðu um kynfæralimlestingar barna Silja Dögg Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, fagnar nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um ofbeldi gegn börnum, sem tók kynfæralimlestingar á börnum meðal annars til umfjöllunar. Silja lagði fram frumvarp árið 2018 þar sem banna átti umskurð á drengjum, sem náði ekki fram að ganga. 9.7.2024 20:48
Sérsveitaraðgerð í Árbænum í dag Sérsveitin var kölluð til um kl 13:30 vegna gruns um að maður í Árbænum væri vopnaður hnífi. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvernig fór. 9.7.2024 18:07
Lök staða í lónum Landsvirkjunar Staðan í lónum Landsvirkjunar er frekar lök, en vorleysing byrjaði seint, og júní var kaldur og þurr. Vonast er til þess að jökulbráð og haustrigningar bæti úr áður en nýtt vatnsár hefst þann 1. október. 9.7.2024 17:23