Leggur til framlengingu samkomubanns út apríl Sóttvarnalæknir ætlar að leggja til við heilbrigðisráðherra að samkomubann og aðrar aðgerðir til að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins verði framlengdar út apríl. 1.4.2020 14:11
Telja sig á spori viðsjálla svarthola Röntgenblossi sem tvö gervitungl komu auga á fyrir fjórtán árum gæti verið skýrasta vísbendingin um tilvist meðalstórra svarthola sem stjörnufræðingum hefur reynst erfitt að finna í alheiminum. Uppgötvunin gæti varpað frekara ljósi á hvernig risasvarthol þróast og verða til. 1.4.2020 13:09
Fjöldi smitaðra kominn yfir 1.200 Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur COVID-19-sjúkdómnum eru nú alls 1.220 hér á landi. Þeim hefur fjölgað um 85 frá því að síðustu tölur birtust á covid.is klukkan eitt í gær. 1.4.2020 12:59
Landlækni tilkynnt um andlát konu skömmu eftir útskrift af bráðadeild Alvarlegt atvik þar sem 42 ára gömul kona lést innan við sólarhring eftir að hún var útskrifuð af bráðadeild Landspítalans hefur verið tilkynnt til embættis landlæknis, að sögn Páls Matthíassonar, forstjóra spítalans. Landlæknir segir að alvarleg atvik tengist oft álagi en ekki í öllum tilfellum. 31.3.2020 15:58
Aðstandendur fá ekki að fylgja með í keisaraskurð Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítalans ákvað í dag að taka fyrir að aðstandendur fái að fylgja konum á skurðstofu í keisaraskurð vegna kórónuveirufaraldursins. Yfirlæknir fæðingarþjónustu segir að íþyngjandi aðgerðir sem þessar séu nauðsynlegar til að vernda viðkvæma starfsemi spítalans. 31.3.2020 15:45
Þörf á úthaldi og þolgæði næstu vikurnar Sóttvarna- og landlæknir vara við því að reyna muni á úthald og þolgæði allra í aðgerðum til að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins næstu vikurnar. Afar líklegt er að framlengja þurfi aðgerðir sem nú eru í gildi en er búist við því að tilkynnt verði um framhaldið öðru hvoru megin við helgina. 31.3.2020 15:15
Ferðalög um páskana gætu sett enn meira álag á heilbrigðiskerfið Almannavarnir hafa verulegar áhyggjur af því að ferðalög fólks yfir páskana geti valdið auknu álagi á heilbrigðiskerfi sem sé þegará þönum vegna kórónuveirufaraldursins. Ekki stendur þó til að herða á samkomubanni sem nú er í gildi yfir páskana. 31.3.2020 14:54
Fleiri en 1.100 manns nú smitaðir og einn bætist við á gjörgæslu Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur COVID-19-sjúkdómnum eru nú alls 1.135 hér á landi. Þeim hefur fjölgað um 49 frá því að síðustu tölur birtust á covid.is klukkan eitt í gær. 31.3.2020 13:00
Umferðin dróst saman um fimmtung í mars Rúmlega 35.000 færri bílum var ekið um götur höfuðborgarsvæðisins að meðaltali á dag í mars en á sama tíma í fyrra og er það rúmlega fimmtungs samdráttur. Mest dróst umferð um Hafnarfjarðarveg saman. 31.3.2020 12:43
Ósannindum þjóðarleiðtoga um veiruna eytt af samfélagsmiðlum Samfélagsmiðlarnir Facebook og Twitter hafa tekið upp á því að eyða færslum þjóðarleiðtoga á þeim forsendum að þeir dreifi rangfærslum um kórónuveirufaraldurinn. Fyrirtækin hafa fram að þessu verið afar hikandi við að hafa afskipti af færslum þjóðarleiðtoga jafnvel þegar þeir fara með rakin ósannindi. 31.3.2020 12:28