Gæslan sækir veikan farþega skemmtiferðaskips Skemmtiferðaskipið er nánast miðja vegu á milli Íslands og Jan Mayen. 3.8.2018 21:10
Rússar leita samstarfs við Bandaríkjastjórn um endurreisn Sýrlands Þrátt fyrir stirð samskipti undanfarin ár reyna Rússar að fá Bandaríkjamenn til að vinna með sér að endurreisn Sýrlands eftir áralangt stríð sem enn er ekki lokið. 3.8.2018 20:37
Verjendur Weinstein vilja að máli gegn honum verði vísað frá Lögmennirnir hafa lagt fram pósta á milli Weinstein og konu sem sakar hann um nauðgun sem þeir fullyrða að sýni að samband þeirra hafi verið innilegt og með vilja þeirra beggja. 3.8.2018 19:22
Hlaupið gæti haft áhrif á fjarskiptasamband Míla hefur lýst yfir óvissustigi vegna hlaupsins í Skaftá. 3.8.2018 18:50
Tveir bifhjólamenn slasaðir eftir slysið á Suðurlandsvegi Bifhjól og jepplingur lentu saman. Annar bifhjólamannanna var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús en hinn með sjúkrabíl. 3.8.2018 18:40
Telja ekki að göngufólk sé í hættu vegna hlaupsins Um 30-40 björgunarsveitarmenn vinna að því að hafa uppi á göngufólki og rýma svæði vegna Skaftárhlaups. 3.8.2018 17:46
Sitjandi forseti lýstur sigurvegari kosninganna í Simbabve Sex liggja í valnum eftir að herinn lét til skarar skríða gegn stjórnarandstæðingum sem hafa mótmælt meintu kosningasvindli. 2.8.2018 23:20
Hitamet fyrir Evrópu gæti fallið í hitabylgjunni á Íberíuskaga Metið er rúmlega fjörutíu ára gamalt, 48°C í Aþenu, höfuðborg Grikklands. 2.8.2018 22:42
Rússar sagðir reyna áfram að grafa undan kosningum í Bandaríkjunum Helstu yfirmenn þjóðaröryggismála í Bandaríkjunum segja að þeir vinni að því að tryggja traust bandarísku þjóðarinnar á þingkosningum sem fara fram í haust í skugga tilrauna Rússa til afskipta. 2.8.2018 21:29
Vegagerðin spáir áfram vaxandi umferðarþunga Á höfuðborgarsvæðinu og hringveginum jókst umferð um 2,9% í júlí frá sama mánuði í fyrra. 2.8.2018 20:14