Fréttamaður

Kjartan Kjartansson

Kjartan er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ekki hægt að flytja dauðvona dreng í Páfagarð

Utanríkisráðherra Bretlands segir best að fela sérfræðingum og dómstólum að taka ákvarðanir um örlög dauðvona drengs. Sjúkrahús Páfagarðs hafði boðist til að taka við drengnum og halda meðferð áfram.

Varað við hvassviðri á Suðurlandi annað kvöld

Veðurstofan varar við allhvassri austanátt syðst á landinu seint annað kvöld og fram á fimmtudagsmorgun. Slíkur vindur geti verið varasamur fyrir farartæki sem eru viðkvæm fyrir vindi eins og húsbíla og hjólhýsi. Hiti gæti náð 17 stigum í innsveitum norðaustantil á morgun.

Þrettán kynlífsþrælar leystir úr prísund á Spáni

Á fjórða tug meðlima alþjóðlegs glæpagengis sem neyddi fátækar konur frá Búlgaríu út í vændi á suðurströnd Spánar hefur verið handtekinn. Lögreglan frelsaði þrettán konur sem voru kynlífsþrælar í aðgerðinni.

Lýst eftir karlmanni á sjötugsaldri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Jóhannssyni. Hann er 67 ára gamall, fæddur árið 1950. Guðmundur er um 175 sm á hæð, með grátt hár og var klæddur í svartar gallabuxur og svartan jakka. Hann fór að heiman frá sér á bifreiðinni MM-A05, sem er Nissan E-NV200, hvít sendibifreið.

Leiðrétting á gervihnattamælingum slær vopn úr höndum afneitara

Gervihnattamælingar sýna nú örlítið meiri hlýnun en hitamælar á jörðu niðri eftir að vísindamenn leiðréttu fyrir skekkjum í þeim. Afneitarar loftslagsvísinda hafa lengi bent á mun á gervihnattamælingum og yfirborðsmælingum til að fullyrða að engin hnattræn hlýnun hafi átt sér stað síðustu 19 árin.

Sjá meira