Bóndinn í borginni minnir á hvar stór hluti landbúnaðarvara er framleiddur Bóndi sem stundar landbúnað á lögbýli í einu af nýjustu hverfum Kópavogs segir fólk almennt ekki átta sig á því hversu stór hluti af landbúnaðarvörum Íslendinga sé framleiddur á Reykjavíkursvæðinu. 11.11.2022 22:44
Þeysa um Þorlákshöfn á þríhjóli með gamla fólkið Eldri borgarar í Þorlákshöfn sjást þessa dagana þeysa um götur bæjarins á þríhjóli. Þannig rúnta þeir um bæinn, hitta annað fólk og hafa gaman af. 10.11.2022 22:11
Býður fundarlaun þeim sem getur bent á brennuvarg við Elliðavatn Guðmundur Unnsteinsson, sem varð fyrir því um síðustu áramót að kveikt var í bústaðnum hans á Þingnesi við Elliðavatn, býður hverjum þeim fundarlaun sem veitt getur upplýsingar um brennuvarginn. Tveir bústaðir við vatnið brunnu til grunna í kringum síðustu áramót og virðist sem um vel skipulagðan ásetning hafi verið að ræða en ekki óviljaverk óreglufólks. 10.11.2022 18:04
Talsmenn Súðavíkur- og Fljótaganga segja ekki boðlegt að bíða í áratugi Talsmenn sveitarfélaga sem þrýsta á Súðavíkurgöng fyrir vestan og Fljótagöng fyrir norðan segja þessi verkefni það brýn að ekki sé hægt að bíða eftir því að jarðgangagerð klárist á Mið-Austurlandi. Áformað er að samgönguáætlun verði endurskoðuð á Alþingi eftir áramót. 8.11.2022 22:01
Skógariðnaður vex upp af trjánum í Heiðmörk Sjötíu árum eftir að fyrstu trén voru gróðursett í Heiðmörk er svæðið farið að gefa af sér umtalsverðar skógarnytjar. Borðviður, veggklæðningar og gólffjalir eru meðal afurða sem verða til í sögunarmyllu Skógræktarfélags Reykjavíkur. 7.11.2022 21:21
Fólk sem býr og starfar við Elliðavatn lýsir dásemdum útvistarperlunnar „Það er alveg dásamlegt að vinna hérna. Þessi kyrrð og nánd við náttúruna. Þetta er ólýsanlegur vinnustaður. Þetta eru forréttindi að fá að vinna á þessum stað,“ segir Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, en skrifstofa félagsins er í Elliðavatnsbænum. Auður býr auk þess í Norðlingaholti, en hún segir það meðal lífsgæða hverfisins hvað það er nálægt Heiðmörk. 7.11.2022 14:53
Grænlendingar opna fyrsta hluta nýs alþjóðaflugvallar Hluti nýju flugbrautarinnar í Nuuk var opnaður flugumferð í vikunni. Þetta er fyrsti stóri áfanginn sem næst í þeirri miklu flugvallagerð sem Grænlendingar hófu fyrir þremur árum en hún er mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslendinga. 6.11.2022 10:10
Átta barna móðir ekur daglega um veg sem er að síga í sjóinn Samgöngur brenna á Fljótamönnum. Þeirra heitasta ósk er að fá jarðgöng milli Siglufjarðar og Fljóta. 6.11.2022 06:45
Áhugavert fyrsta rekstrarár eftir að hafa opnað hótel í upphafi faraldurs Hún var ferðamálastjóri í áratug áður en hún keypti aflagðan sveitaskóla nyrst í Skagafirði og breytti í hótel með ærnum kostnaði. Sama dag og Ólöf Ýrr Atladóttir og maður hennar opnuðu var hins vegar öllu skellt í lás vegna covid. 2.11.2022 22:55
Framkvæmdir við Þorlákshöfn þær stærstu á Íslandi frá Kárahnjúkum Framkvæmdir sem sagðar eru þær stærstu í landinu frá Kárahnjúkum eru hafnar við Þorlákshöfn. Íslenskir fjárfestar reisa þar eina stærstu landeldisstöð heims fyrir lax, þá fyrstu af þremur sem áformaðar eru á svæðinu. 1.11.2022 21:41