fréttamaður

Kristján Már Unnarsson

Kristján Már er einn reynslumesti fréttamaður landsins og hefur verið á vettvangi í þrjátíu ár. Hann er einnig með þættina Um land allt og Landnemana á Stöð 2.

Nýjustu greinar eftir höfund

Eitt­hundrað ár frá fyrsta flugi til Ís­lands

Eitthundrað ár eru í dag, 2. ágúst, frá því flugvél var í fyrsta sinn flogið yfir úthafið til Íslands. Flugmaðurinn sem það afrekaði var Svíinn Erik H. Nelson, sem orðinn var bandarískur ríkisborgari, en flugið var hluti af hnattflugi bandaríska flughersins, fyrsta flugi sögunnar umhverfis Jörðina.

Haraldur spyr hvort gosum sé lokið í Sund­hnúks­gíga­röðinni

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir vísbendingu um að kvikustreymi upp í lárétta kvikuinnskotið undir Svartsengi hafi verulega minnkað eða að því sé lokið. Hann spyr: „Goslok í Sundhnúksgígaröðinni?“ í fyrirsögn nýs pistils á eldfjallabloggi sínu.

Hreyflarnir hrika­legir á nýju Boeing 777-þotum Atlanta

Flugfélagið Air Atlanta byggir nú upp farþegaflota sinn á ný eftir hrun í covid-faraldrinum og er þessa dagana að bæta við sig tveimur Boeing 777-breiðþotum til viðbótar við tvær sömu gerðar sem félagið fékk í fyrra.

Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu

Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta.

Karfa loftbelgsins valt á hliðina í lendingunni

Þeir sem sáu loftbelginn hverfa upp í háloftin yfir Rangárvöllum í beinni útsendingu Stöðvar 2 í gærkvöldi vilja eflaust margir vita hvernig flugferðin endaði. Hér sjáum við þá sögu.

Sjáðu Kristján Má takast á loft í beinni

Þýskur loftbelgur hefur sést á flugi yfir Rangárvöllum í dag en hann er hingað kominn vegna flughátíðarinnar Allt sem flýgur sem haldin verður á Helluflugvelli um næstu helgi. Kristján Már Unnarsson fréttamaður klöngraðist um borð og tókst á loft í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Arki­tektinn sem mótaði útivistarperlurnar látinn

Landslagsarktitektinn Reynir Vilhjálmsson er látinn, 89 ára að aldri. Fáir hafa á ferli sínum haft jafn rík áhrif og hann á mótun mannngerðra útivistarsvæða hérlendis, bæði innan borgarlandsins sem og í bæjum víða um land.

Loft­belgur á flugi yfir Suður­landi í morgun

Stærðarinnar loftbelgur er þessa stundina á flugi yfir Rangárvöllum. Byrjað var eldsnemma í morgun að blása hann upp á Helluflugvelli. Sást hann taka flugið upp úr klukkan sex og hefur hann svifið yfir nágrenni Hellu og Ytri-Rangá síðustu klukkustund.

Reykspúandi flugsveit veltir sér yfir Akur­eyri

Flugsýning á Akureyrarflugvelli milli klukkan 14 og 16 á morgun, laugardag, verður hápunktur flughátíðar sem haldin er í Eyjafirði um helgina. Þar verður meðal annars sýnt listflug af ýmsu tagi, þyrluflug, rafmagnsflug, svifflug og gírókoptaflug.

Sjá meira