Leit að byssumanni í Maine ekki enn borið árangur Lögreglan í Maine leitar enn mannsins sem skaut 18 til bana í gærkvöldi í Lewiston. Leitarsvæðið er um 1.800 ferkílómetrar. Sá grunaði er fyrrverandi hermaður og er þjálfaður í notkun skotvopna. Þingmaður hefur kallað eftir banni á sjálfvirkum vopnum eins og Card notaði í gær. 26.10.2023 23:02
„Við erum búin að bíða lengi eftir þessu“ Ísak Sigurðsson formaður FSMA segir að hann og aðrir í félaginu séu gríðarlega ánægð með endurskoðun Lyfjastofnunar á greiðsluþátttöku á lyfinu hjá fullorðnum á lyfinu Spinraza. 26.10.2023 21:05
Fleiri en einn leitað til Stígamóta vegna séra Friðriks Fleiri en einn hafa leitað til Stígamóta vegna Sr. Friðriks Friðrikssonar, stofnanda KFUM, KFUK, Vals og Hauka. Talskona Stígamóta segir að sagan hafi kennt okkur það að gerendur leiti ekki bara á eitt barn heldur séu þau oftast fleiri sem hafi verið brotið á. 26.10.2023 21:05
Gekk örna sinna á fjallstoppi í Nepal í mínus 27 Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir, náði því í morgun að standa á tindi Imje Tse í Nepal. Ferðin upp gekk vel að hans sögn. Hann þurfti þó að glíma við magapest í um 5.900 metra hæð og segir það ekki hafa farið fram hjá öðrum á leið upp. 26.10.2023 20:01
Leita réttar síns vegna aðfarar sýslumanns í gær Edda Björk Arnardóttir og sambýlismaður hennar ætla að leita réttar síns vegna aðgerða sýslumanns og lögreglu við heimili þeirra í gær. Þar fór fram aðfaraaðgerð á vegum sýslumanns en flytja átti þrjá drengi hennar í forsjá föður þeirra í Noregi. Aðgerðinni var frestað eftir um þrjár klukkustundir. 26.10.2023 19:09
Lyfið Spinraza samþykkt fyrir fullorðna líka Lyfið Spinraza hefur nú verið samþykkt til notkunar fyrir fullorðna sem glíma við mænuhrörnunarsjúkdómnum Spinal Muscular Atrophy (SMA). Lyfið hefur hingað til aðeins verið til notkunar fyrir börn. Fólk með sjúkdóminn hefur barist fyrir þessari breytingu. 26.10.2023 17:38
Hafa áhyggjur af takmörkuðum framförum Íslands í mansalsmálum Íslenska ríkið ætti að bera betur kennsl á fórnarlömb mansals, rannsaka slík mál betur og lögsækja fleiri sem grunaðir eru um slík brot. Þetta kemur fram í nýjustu úttekt sérfræðihóps Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali, GRETA. 26.10.2023 08:02
Segir séra Friðrik hafa leitað á dreng og káfað á honum Guðmundur Magnússon sagnfræðingur greinir í nýrri bók sinni um séra Friðrik Friðriksson, stofnanda KFUM, Hauka og Vals, frá því að séra Friðrik hafi leitað á og káfað á ungum dreng. Þá lýsir fjöldi drengja því að hafa ekki líkað við atlot hans. Hann segist næstum hafa hætt við verkið, honum hafi þótt þetta svo óþægilegt. 25.10.2023 21:53
Flutningi þriggja íslenskra drengja til Noregs frestað Flytja átti þrjá íslenska drengi til föður síns í Noregi í kvöld. Hann fer með forsjá þeirra samkvæmt úrskurði íslenskra og norskra dómstóla. Fjölmennt lögreglulið var á vettvangi í kvöld á vegum sýslumanns og nokkuð umstang. Móðir drengjanna var handtekin en síðar sleppt og aðgerðinni frestað. 25.10.2023 20:11
Aðkoma stjórnvalda nauðsynleg fyrir gerð langtímakjarasamninga „Við greiðum allt með krónum ekki prósentum,“ sagði Vilhjálmur Birgisson á þingi SGS sem sett var í dag. Hann sagði að í næstu kjarasamningum yrði áfram lögð áhersla á krónutöluhækkanir og að aðkoma stjórnvalda væri nauðsynleg til að ná að gera langtímakjarasamninga. Samningar sambandsins renna út eftir um þrjá mánuði. 25.10.2023 18:52