Borgaði 100 þúsund fyrir hárlokk úr Hauki Holm Tvíeykið Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson héldu „live show“ í Austurbæ á laugardagskvöld. Strákarnir halda úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins. 11.5.2026 13:02
Fljúgandi furðuhlutir, leyndarhyggja yfirvalda og samsæriskenningar Saga mannkyns er vörðuð frásögnum af torkennilegum fyrirbærum á himnum. Allt frá því að rómverski sagnaritarinn Titus Livius lýsti „glitrandi skjöldum“ yfir Róm árið 217 fyrir Krist, hafa menn reynt að rýna í dularfull ljós og form í háloftunum. En það var ekki fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina, í andrúmslofti taugatitrings og nýrrar tækni, sem þessi fyrirbæri fóru að snúast um ríkisleynd og meint samráð yfirvalda. 11.5.2026 12:02
Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Harmleikurinn Óresteia eftir ástralska verðlaunaleikstjórann Benedict Andrews, sem sló í gegn í Þjóðleikhúsinu í vetur, er á leið á erlendar leiklistarhátíðar. Andrews mun sömuleiðis snúa aftur í Þjóðleikhúsið með nýja sýningu haustið 2027. 11.5.2026 09:32
Jenner segist hafa veikst af Ozempic Athafnakonan Kris Jenner segist hafa orðið veik af notkun þyngdarstjórnunarlyfsins Ozempic. Hún hafi í kjölfarið farið að sprauta sig með annars konar peptíðum samhliða því að neyta lýsis og ómega-3-fitusýra. 8.5.2026 17:02
Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn Náttúrufræðingurinn og fjölmiðlamaðurinn David Attenborough fagnar hundrað ára afmæli í dag. Fáir hafa lagt jafnmikið á vogarskálar náttúruverndar í sögunni en hamingjuóskum hefur rignt inn til Attenborough og afmæli hans fagnað víða um heim. 8.5.2026 16:01
Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er ekki sátt við að Þjóðleikhúsið óski eftir því að hún gangist undir starfshæfismat frá einkafyrirtæki áður en hún snýr til baka á fjalirnar eftir eitt og hálft ár í veikindaleyfi. Samstarfskona hennar í leikhúsinu segist sjálf hafa gengist undir slíkt mat og segir það hag starfsfólks að gera slíkt. 8.5.2026 14:43
Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof Velsku tónlistarkonunni Bonnie Tyler er haldið sofandi meðan hún jafnar sig eftir bráðaaðgerð á þörmum. Tyler var flutt með hraði á spítala í Faro í Portúgal á miðvikudag vegna garnarofs og gekk aðgerðin vel fyrir sig. 8.5.2026 13:43
Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Tónleikum Yasiin Bey, áður þekktur sem Mos Def, sem áttu að fara fram í Gamla bíó á morgun, laugardaginn 9. maí, hefur verið frestað til 10. september næstkomandi. Óviðráðanlegar aðstæður hjá rapparanum eru ástæðan fyrir frestuninni. 8.5.2026 13:02
Fögnuðu sjötíu árum og heiðruðu félaga Íþróttafréttamenn fögnuðu sjötíu ára afmæli Samtaka íþróttafréttamanna í sal á efri hæð Parliament Hotel við Austurvöll í gær. Gamlir haukar voru heiðraðir með silfur- og gullmerkjum, kollegar báru saman bækur sína og Ari Eldjárn skemmti mannskapnum. 8.5.2026 11:52
Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Breski fatahönnuðurinn, fyrirsætan og fyrrverandi raunveruleikastjarnan Jake Hall er látinn, aðeins 35 ára að aldri. Hann lést af sárum sínum eftir að hafa hlotið höfuðáverka á Mallorca þar sem hann var í fríi. Lögregla telur hann hafa barið höfði sínu í gegnum glerhurð í ölæði. 8.5.2026 10:48