Átta handteknir og tugir taldir þolendur mansals Lögreglan handtók átta einstaklinga í umfangsmiklum aðgerðum sínum í gær sem teygðu anga sína frá höfuðborgarsvæðinu til Suðurnesja, Suðurlands og Norðurlands. Meintir þolendur mansals telja nokkra tugi. 6.3.2024 11:23
Aðgerðum lauk í kringum miðnætti Umfangsmiklum lögregluaðgerðum vegna gruns um mansal, peningaþvætti, og skipulagða glæpastarsemi lauk um miðnætti. Úrræði sem grípa fórnarlömb meints mansals hafa verið virkjuð. 6.3.2024 08:28
Opnar Blush-verslun á Akureyri Gerður Huld Arinbjarnardóttir, betur þekkt sem Gerður í Blush, hyggst opna kynlífstækjaverslun á Akureyri á næstu vikum. Verslunin verður staðsett á Glerártorgi en þó í svolitlu næði. 5.3.2024 14:36
„Samræðurnar sem ég hef átt við sumt fólkið eru algjörlega fáránlegar“ Eigendur húss í Grindavík sem eyðilagðist í eldgosinu í janúar þurfa sjálf að hreinsa járn og rusl af húsgrunninum til að geta leyst út förgunargjald frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Þau þurfa sárlega á fjármununum að halda til að geta gengið frá kaupum á nýju húsnæði. Bæjaryfirvöld ætlast til þess að lóðin sé hreinsuð en vilja á sama tíma ekki að eigendur séu á staðnum, þar sem Grindavík er skilgreint hættusvæði. 5.3.2024 13:43
Sammæltust um starfslok í kjölfar rasískra ummæla Samkomulag um starfslok hefur verið gert við Helga Helgason, kennara við Menntskólann að Laugarvatni, vegna ummæla hans á samfélagsmiðlum. Helgi kallaði Bashar Murad meðal annars „grenjandi illa skeindan Palestínuaraba.“ Skólameistari segir starfsfólk og nemendur afar slegna vegna málsins og að Helgi hafi viðurkennt að hafa orðið á mistök. 5.3.2024 10:48
Play tekur flugið til Afríku Flugfélagið PLAY hefur hafið miðasölu til tveggja nýrra áfangastaða. Annars vegar til Marrakesh í Marokkó og hins vegar Madeira í Portúgal. Flug Play til Marrakesh verður áætlunarflugið milli Íslands og Afríku. 5.3.2024 10:45
Rennsli af kviku svipað og í Elliðaánum Kvika streymir inn undir Svartsengi á svipuðum krafti og Elliðaárnar. Prófessor í jarðeðlisfræði segir hugsanlegt að atburðurinn í þessari lotu á Reykjanesskaga sé hálfnaður. Mikilvægt sé að að skipuleggja umhverfi þannig að þol gegn náttúruvá sé sem mest, meðal annars með því að byggja ekki á svæðum sem útsett eru fyrir hraunrennsli. 5.3.2024 09:01
Bashar gersigraði fyrri umferð Söngvakeppninnar Lagið Scared of Heights í flutningi Heru Bjarkar Þórhallsdóttur hlaut flest heildaratkvæði á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar á laugardagskvöld. Samtals hlaut Hera 100.835 atkvæði en Bashar Murad, sem hafnaði í öðru sæti með lagið Wild West, hlaut 97.495 atkvæði. Athygli vekur að Bashar vann fyrri umferð kosninganna með miklum mun en Hera gjörsigraði hann síðan í einvíginu. 4.3.2024 15:04
Bláa lónið opnað á ný Allar starfsstöðvar Bláa lónsins hafa verið opnaðar á ný eftir lokun og rýmingu síðdegis á laugardag þegar allt benti til þess að eldgos væri yfirvofandi. 4.3.2024 13:08
Boðað til fundar með börnum frá Grindavík Umboðsmaður barna býður 6-17 ára börnum frá Grindavík til fundar í Laugardalshöll á fimmtudag. Markmið fundarins er að heyra hvað börnunum liggur á hjarta og átta sig á því hvernig stjórnvöld geta með sem bestum hætti staðið vörð um réttindi þeirra við þær aðstæður sem nú eru uppi. 4.3.2024 11:23