660 skjálftar frá miðnætti Um 660 jarðskjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga frá miðnætti. Sá stærsti var 1,8 að stærð. Flestir skjálftarnir hafa verið í kringum Hagafell en þónokkrir hafa mælst við kvikuganginn undir Grindavík. 15.1.2024 10:09
Vaktin: Lítil virkni í einu gosopi Eldgos hófst norðan Grindavíkur, suðsuðaustan Hagafells, rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun, sunnudag. Fyrst opnaðist sprunga sem lá að stærstum hluta norðan varnargarða, en síðar opnaðist önnur rétt norðan byggðarinnar. 15.1.2024 04:17
Horfði á framtíðarheimilið fuðra upp í beinni útsendingu Eigandi fyrsta hússins sem varð hrauninu að bráð í Grindavík í dag, segir það hafa verið óraunverulegt að horfa upp á húsið sitt fuðra upp í beinni útsendingu. Hann hafði talið húsið vera á einum öruggasta staðnum í bænum. 14.1.2024 17:09
Ríkisstjórnin fundar vegna eldgossins Ráðherranefnd ríkisstjórnar Íslands mun funda klukkan fimm í dag vegna eldgossins sem hófst í morgun. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra er á leið til landsins, en hún hefur verið erlendis undanfarna daga. 14.1.2024 14:00
Hætta á fleiri gossprungum í Grindavík Veðurstofan metur aukið kvikuflæði í kvikuganginum undir Grindavík. Fleiri gossprungur gætu opnast inni í bænum. 14.1.2024 13:05
Hraun runnið yfir Grindavíkurveg Hraunrennslið úr eldgosinu sem hófst í morgun hefur náð yfir Grindavíkurveg. Þetta sést á vefmyndavélum. 14.1.2024 12:49
Ný sprunga hefur opnast rétt norðan bæjarins Ný sprunga hefur opnast rétt norðan byggðar í Grindavík. Sprungan opnaðist um klukkan 12:10, norðan götunnar Efrahóps. 14.1.2024 12:14
Nýjar sprungur hafa opnast í Grindavík „Við sjáum í Grindavík að það eru nýjar sprungur búnar að opnast. Við erum með dróna yfir bænum og við erum að sjá nýjar sprungur. Við erum að sjá gufu sem þýðir að heita vatnið er farið í sundur á einhverjum stöðum. Það er eitt og annað sem á eftir að koma í ljós.“ 14.1.2024 11:47
„Þetta er bara alveg hrikaleg staða“ „Þetta er bara alveg hrikaleg staða. Mikið áfall,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra um yfirstandi eldgos sem hófst nálægt Grindavík í morgun. Hún segir hug sinn hjá íbúum Grindavíkur en biðlar til allra að halda ró sinni. 14.1.2024 11:31
„Vinsamlegast gefið okkur vinnufrið“ Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir fjölda fólks hafa þyrpst að Reykjanesskaga til að berja eldgos sem hófst í morgun augum. Hann biður fólk um að vera heima og gefa viðbragðsaðilum vinnufrið til að bjarga því sem bjargað verður. 14.1.2024 10:28