Segir lögreglumann hafa brotið tölvuskjá sinn á bjórkvöldi í sal Gróttu Rapparinn Ísleifur Eldur Illugason segir lögreglumann hafa brotið skjá tölvu sinnar síðastliðið föstudagskvöld. Ísleifur var að skemmta á bjórkvöldi menntaskólanema í sal Gróttu á Seltjarnarnesi. Fjölmennt lið lögreglu mætti á svæðið með mikinn viðbúnað og leysti upp samkvæmið. 28.11.2022 18:56
Fyrirtæki Kristjáns í Samherja framleiðir Áramótaskaupið í ár Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri og stofnandi Samherja, er eigandi framleiðslufyrirtækisins S800 ehf. Fyrirtækið sér um framleiðslu Áramótaskaups Ríkisútvarpsins í ár. 25.11.2022 17:01
Ferðum í Hrísey verður ekki fækkað Ferðum Hríseyjarferjunnar Sævars verður ekki fækkað í nýju útboði Vegagerðarinnar. Engin slík breyting er fyrirhuguð en Vegagerðin vill auka svigrúm til að ekki þurfi að sigla að óþörfu með tóma ferju. 25.11.2022 14:28
Diego slasaður eftir að hafa orðið fyrir bíl Kötturinn Diego, sem margir þekkja úr Skeifunni í Reykjavík, varð fyrir bíl í morgun og er þónokkuð slasaður. Hann var fluttur á dýraspítala til aðhlynningar en ekki hafa fengist nánari upplýsingar um líðan hans. 25.11.2022 10:03
Bankastræti Club hafi gert allt rétt í krísustjórnun Í umfjöllun um hnífaárásina í síðustu viku hefur ítrekað verið rætt um Bankastræti Club í því samhengi, og réttilega, þar sem árásin fór jú fram á staðnum. Sérfræðingur í vörumerkjastjórnun telur ekki að málið komi til með að hafa áhrif á skemmtistaðinn til lengri tíma og eigendur hafi gert allt rétt í krísustjórnun. Hann hefur hins vegar meiri áhuga á að skoða málið út frá vörumerkinu Ísland. 25.11.2022 07:48
Hættir hjá Samtökunum 78 eftir ásakanir um misnotkun Rúmlega þrítug kona, fyrrverandi starfsmaður í grunnskóla og fyrrverandi formaður félagaráðs Samtakanna 78, hefur verið sökuð um kynferðislega misnotkun og áreiti gegn börnum. Hún hætti störfum fyrir samtökin í vikunni en félagið var nýlega upplýst um ásakanirnar. 24.11.2022 19:06
Samtök reykvískra skemmtistaða fordæma allt ofbeldi og vopnaburð Samtök reykvískra skemmtistaða hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna atburða síðustu viku. Vísað er til árásarinnar á Bankastræti Club þegar hópur manna réðst inn á staðinn og beittu eggvopnum. 24.11.2022 16:30
Flutti inn kókaín frá Mallorca í skósólum Litháenskur karlmaður hefur verið dæmdur til sjö mánaðar fangelsisvistar fyrir innflutning á kókaíni. Efnin voru falin í skósólum skópars í ferðatösku, en maðurinn kom til landsins frá Mallorca á Spáni í september síðastliðnum. 24.11.2022 11:52
Sigríður Sía í framkvæmdastjórn Advania Sigríður Sía Þórðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania. Hún fer fyrir öflugu teymi sérfræðinga sem aðstoða fyrirtæki á sinni skýjavegferð. 24.11.2022 09:19
Bandaríkjamönnum ráðlagt að fara varlega í miðbæ Reykjavíkur Bandaríska sendiráðið biður Bandaríkjamenn að fara varlega í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Í tilkynningu sem sendiráðið birti á Facebook fyrr í dag eru ferðamenn beðnir um að forðast mannmergð og flýta sér í burtu ef þeir verða vitni að einhverju óeðlilegu. 23.11.2022 14:33
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf