Breska þingið samþykkir viðskiptasamning við ESB Breska þingið samþykkti nú rétt í þessu viðskiptasamning breskra stjórnvalda og Evrópusambandsins. 521 þingmaður greiddi atkvæði með samningnum en 73 gegn honum. 30.12.2020 15:02
Mengunin sérstaklega skaðleg fólki sem glímir við eftirköst COVID-19 Á gamlárskvöld er útlit fyrir talsverða svifryksmengun af völdum flugelda því hægviðri er spáð annað kvöld um land allt. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir að mengunin sé skaðlegust þeim sem veikir eru fyrir líkt og fólk sem glímir við eftirköst COVID-19 sem er sjúkdómur sem herjar á öndunarfærin. Mengunin verður þó slík að flestir ættu að finna fyrir óþægindum. 30.12.2020 14:22
Fimm létust í jarðskjálftanum í Króatíu Fimm létust í kröftugum jarðskjálfta sem varð nærri Zagreb í Króatíu um hádegisbil og þar af 12 ára stúlka. Nýjustu mælingar sýna að skjálftinn hafi verið um 6,4 að stærð samkvæmt frétt Reuters. 29.12.2020 17:52
Stúlka lést í stóra skjálftanum í Króatíu og fjöldi fastur í húsarústum Tólf ára stúlka lést í kröftugum jarðskjálfta sem varð nærri Zagreb í Króatíu um hádegisbil. Skjálftinn mældist 6,4 að stærð. Adrej Plenkovic, forsætisráðherra, ávarpaði landsmenn í borginni Petrinju sem varð verst úti í skjálftanum. 29.12.2020 15:27
Hreinsunarstarf hefst með krafti fyrir austan Hreinsunarstarf hófst á Seyðisfirði í morgun en bærinn er ekki nema svipur hjá sjón eftir eyðileggingu af völdum aurskriða. Borist hefur liðstyrkur að norðan við hreinsun og verðmætabjörgun. Yfirlögregluþjónn bindur vonir við að hægt verði að hleypa fleiri bæjarbúum heim til sín fyrir áramót. 29.12.2020 14:23
Asahláka morgundagsins gæti ógnað stöðugleika í hlíðunum Þrátt fyrir að veðurútlitið fyrir daginn í dag sé með besta móti og að stöðugleiki í hlíðum Seyðisfjarðar hafi aukist til muna er veðurspáin fyrir morgundag, aðfangadag, alls ekki hagstæð. Blessunarlega er þó ekki útlit fyrir verulega úrkomu á Seyðisfirði samfara hlýindum sunnanáttarinnar. 23.12.2020 14:16
„Maður er bara klökkur vegna stórkostlegra Íslendinga sem hjálpa okkur“ Múlasýsludeild Rauða krossins hefur borist liðsauki frá Akureyri við áfallahjálparteymið fyrir austan vegna náttúruhamfaranna. Berglind Sveinsdóttir, formaður deildarinnar segir ásóknina í þá aðstoð sem er í boði vera til marks um það mikla áfall og erfiðleika sem Seyðfirðingar glíma við um þessar mundir. Hún kveðst vera meyr vegna samstöðu og hjálpsemi sem Íslendingar hafi sýnt. 22.12.2020 17:39
Látinn laus eftir samræður við lögreglu Lögreglan á Austurlandi telur ekki ástæðu til frekari aðgerða gagnvart manninum sem sagður er hafa hótað Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í dag. 22.12.2020 16:22
Ljóst að sumir Seyðfirðingar fá ekki að snúa heim fyrir jól Þrátt fyrir að aðstæður á Seyðisfirði hafi farið hratt batnandi eftir að rigningu slotaði og kólna tók í veðri er gert ráð fyrir að hlýni að nýju, í skamman tíma þó, á aðfanga-og jóladag. Þá mun hlána en ekki er útlit fyrir mikla úrkomu á svæðinu. 22.12.2020 13:34
Stór jarðskjálfti við Bárðarbungu Jarðskjálfti að stærð 3,9 varð við Bárðarbungu á tólfta tímanum í dag. Nákvæm staðsetning er 5,0 km SSA af Bárðarbungu. Minniháttar skjálfti fylgdi síðan í kjölfarið. 21.12.2020 14:20