Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Ótrúleg tilviljun varð til þess að bandaríski aktívistinn Candace Owens hitti bandaríska leikarann Justin Baldoni á Keflavíkurflugvelli síðasta föstudag. Owens hefur verið einn ötulasti stuðningsmaður leikarans í deilum hans við leikkonuna Blake Lively. 1.9.2026 08:55
Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Hannes Hólmsteinn Gissurarsson prófessor emeritus í stjórnmálafræði segir fréttir af því að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna vera úr lausu lofti gripnar. Styrkir sem hann hafi útvegað hafi farið í bókaútgáfu en ekki í baráttu fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. 1.9.2026 08:17
Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að setja körlum sem ætla sér að nýta sínar eigin kynfrumur í frjósemismeðferðir á vegum ríkisins aldurstakmark. Aldurstakmarkið verður 55 ár en fyrir konur er það fjörutíu ár. Nýja aldurstakmarkið tekur gildi um áramótin. 1.9.2026 07:36
Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Logi Einarsson menningar- og nýsköpunarráðherra segir áfall að heyra að kvöldfréttir Sýnar verði lagðar niður en síðasti sjónvarpsfréttatíminn fer í loftið í kvöld, eftir tæplega fjörutíu ára sögu. 31.8.2026 12:03
Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Það gæti orðið minni munur á milli Já og Nei þegar talið verður upp úr kjörkössunum á laugardaginn heldur en skoðanakannanir benda til núna, að mati stjórnmálafræðings. Skoðanakannanir benda til þess að úrslitin verði hnífjöfn, svo jöfn að örfá atkvæði gætu skilið að. Dæmi frá Bretlandi og Bandaríkjunum sýni að fylgi annarrar hliðar geti verið vanmetin. 28.8.2026 07:01
Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Farið verður yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í fjórða og síðasta Pallborði Vísis fyrir kosningar. Auk þess verður kosningabaráttan hingað til gerð upp af álitsgjöfum. 27.8.2026 12:40
Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Víða hafa verið haldnir fundir, pallborð og kappræður nú þegar þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu nálgast óðfluga. Félag fólks með þroskahömlun stóð fyrir einum slíkum í dag, þann 26. ágúst, og leit fréttamaður Sýnar þar við. 26.8.2026 23:21
Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Fjöldauppsagnirnar hjá Reykjavíkurborg munu bitna á viðkvæmustu hópunum að mati fyrrum fagstjóra sem segir það lítilsvirðingu að tala um annað. Gærdagurinn hafi verið sorglegur og ljóst sé að farið var af stað í miklum hamagangi. 26.8.2026 20:38
Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Þrjátíu og tveimur starfsmönnum Reykjavíkurborgar sem fengu boð um ný eða breytt störf við hópuppsögn í gær var boðið lakari kjör að sögn formanns Sameykis sem segir starfsmennina hafa fengið afar skamman tíma til að ákveða næstu skref. 26.8.2026 12:02
Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Nýjar auglýsingar frá Mjólkursamsölunni með ostastráknum Gotta hafa verið teknar úr birtingu en þær vöktu hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum þar sem útlit er fyrir að gervigreind hafi verið nýtt til verksins. 25.8.2026 19:02