Að ræða um kulnunareinkennin þín Sem betur fer hefur öll umræða um kulnun aukist til muna. Í dag skiljum við í hverju kulnun felst og erum meðvituð um hversu mikilvægt það er að forðast kulnun. Því miður er það þó algengt að fólk opnar ekki umræðuna um sín eigin kulnunareinkenni eða líðan, fyrr en of seint. Þegar í raun kulnunin er hafin. 18.8.2021 07:01
Vinnan og áhrifin af því að sofa of lítið Sumir trúa því að þeir þurfi minni svefn en ráðlagt er. Að það að sofa sjö til níu klukkustundir hverja nótt sé hreinlega óþarfi. Sex tímar er alveg nóg segja margir. Sumir jafnvel minna. Síðan tölum við um A og B týpur og alls konar skýringar til að rökstyðja hvers vegna við sofum minna en ráðlagt er. 16.8.2021 07:01
Þegar að yfirmaðurinn fer á grátt svæði Það getur verið erfitt að standa frammi fyrir því að yfirmaðurinn fari á grátt svæði og biðji starfsmann um að gera eitthvað sem er í rauninni rangt. Ekki endilega ólöglegt en svo sannarlega á gráu svæði. 13.8.2021 07:00
Fjórða bylgjan: Einmana í fjarvinnu Margir sáu fyrir sér í hillingum að í kjölfar sumarfría myndu vinnufélagar hittast á ný í ágúst. Á mörgum vinnustöðum eftir langa fjarveru teyma. En nú blasir við fjórða bylgjan og aftur stefnir í að fjöldi fólks fari inn í haustið í fjarvinnu. 11.8.2021 07:02
Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Aukinn sveigjanleiki í starfi hefur svo sannarlega fengið nýja merkingu í kjölfar Covid. Fjarvinna að öllu leyti eða að hluta er komin til að vera og nú er talað um „hybrid” fyrirkomulagið, eða hið blandaða fyrirkomulag, þar sem mörg störf verða unnin í bland: Í fjarvinnu og á vinnustaðnum. Þetta breytta vinnuumhverfi, auk aukinnar sjálfvirknivæðingar, kallar á nýjar hæfniskröfur. 9.8.2021 07:00
Að vera óánægður í nýju vinnunni Á tímum heimsfaraldurs upplifa flestir þakklæti fyrir það að hafa vinnu og framfærsluöryggi. Og þeir sem hafa upplifað atvinnuleysi, eru ekki síst þakklátir þegar þeir fá loksins starf. En hvað ef okkur líður þannig að við erum svo óánægð í nýju vinnunni? 5.8.2021 07:00
Aftur til vinnu eftir frí: Sex góð ráð Eftir dásamlegt frí, jafnvel sólardaga, er komið að því: Við þurfum að byrja aftur að vinna! Og þá gildir um marga að fá smá hnút í magann. Finna jafnvel til þess að „nenna” varla. Þótt við séum almennt ánægð í vinnunni okkar. 3.8.2021 07:01
Fjórða bylgjan og óttinn við að missa vinnuna Nú þegar fjórða bylgjan er hafin er ekki laust við að gamalkunnur Covid-hnútur geri vart við sig hjá sumum: Mun ég missa starfið mitt? Hvernig mun vinnustaðnum mínum reiða af? Verður mér sagt upp um næstu mánaðamót? Eða í haust eða vetur? 28.7.2021 07:01
Að forðast baktalið í vinnunni Við tökum öll þátt í kjaftagangi einstaka sinnum. Heyrum einhverja djúsí kjaftasögu og berum hana á milli. Eða veltum okkur upp úr henni. Þetta er mannlegt og í raun þarf enginn að skammast sín því rannsóknir hafa sýnt að smá kjaftagangur er flestum eðlislægur. Þó ekki nema stundum í góðra vina hópi. 26.7.2021 07:01
Alls konar markmið í vinnunni en sömu góðu ráðin Áskoranirnar í vinnunni okkar eru af öllum toga. Allt frá því að vera stórtæk og snúa að starfsframanum okkar, eða bara lítil og góð þar sem okkur langar sjálfum til að bæta okkur í einhverju. Til dæmis að brosa oftar. Eða mæta alltaf á réttum tíma. 23.7.2021 07:00