NBA dagsins: Tatum tryggði Boston fjórða sigurinn í röð, Durant og Kuzma fóru fyrir sínum liðum Í NBA dagsins má meðal annars finna allt það helsta úr frábærum leik Boston Celtics og Portland Trail Blazers. Sigrar Brooklyn Nets og Los Angeles Lakers ásamt tilþrifum næturinnar eru einnig á boðstólnum. 14.4.2021 16:30
The Pogmentary: Heimildarþættir frá Amazon um líf Paul Pogba Knattspyrnumaðurinn Paul Pogba hefur skrifað undir samning við streymisveitu Amazon Studios um að gera heimildarþætti um líf hans. Munu þeir kallast The Pogmentary. 14.4.2021 15:30
Sendu skýr skilaboð fyrir leik Leik Brooklyn Nets og Minnesota Timberwolves var frestað um sólahring eftir að svartur maður var skotinn til bana af lögreglu á sunnudag. Þegar liðin mættust í nótt klæddust leikmenn liðanna stuttermabolum með skýrum skilaboðum. 14.4.2021 15:01
Sjáðu ótrúlegt mark Taremi, mark Bayern og skot Neymar sem höfnuðu í marksúlunum Porto og Bayern unnu 1-0 sigra á Chelsea og PSG í gærkvöld. Það dugði ekki til þar sem bæði liðin féllu úr leik en mörk gærkvöldsins má finna í fréttinni. Mark Porto er með flottari mörkum Meistaradeildarinnar í ár. 14.4.2021 14:30
Segir að Flick muni taka við Þýskalandi og Bayern hafi talað við Nagelsmann Lothar Matthäus segir það svo gott sem staðfest að Hans-Dieter Flick, þjálfari Bayern München, muni taka við þýska landsliðinu í sumar. Matthäus segir einnig að Bayern hafi nú þegar rætt við Julian Nagelsmann um að taka við liðinu. 14.4.2021 13:01
Skipting sem staðfesti óreiðuna hjá Bayern Ríkjandi Evrópumeistarar Bayern München verja ekki titil sinn eftir að liðið féll úr leik gegn PSG í gærkvöld. Einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu endaði 3-3 en Parísarliðið fór áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. 14.4.2021 10:31
Chelsea oftast enskra liða í undanúrslit Þrátt fyrir 0-1 tap á heimavelli gegn Porto í gær í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu komst Chelsea samt sem áður í undanúrslit keppninnar. Er þetta í áttunda sinn sem Chelsea kemst þangað en engu liði hefur tekist það oftar. 14.4.2021 09:31
Vonir Denver dvína með meiðslum Murray Ekki nóg með að Denver Nuggets hafi tapað gegn Golden State Warriors á aðfaranótt þriðjudags heldur hefur liðið misst aðra af stjörnum sínum í meiðsli, og það til lengri tíma. 14.4.2021 09:01
Kom ekki heim til sín í mánuð Rut Jónsdóttir, leikmaður KA/Þór í Olís-deild kvenna og íslenska landsliðsins, hefur ekki komið heim til sín síðan í byrjun mars vegna anna með landsliðinu, æfingabanns hér á landi og fleira. 14.4.2021 08:30
Telur sína menn ekki líklegasta til sigurs þó þeir hafi slegið út Evrópumeistarana Mauricio Pochettino tók ekki undir þá fullyrðingu að hans menn í Paris Saint-Germain væru líklegastir til að vinna Meistaradeild Evrópu eftir að liðið sló ríkjandi meistara Bayern út í gærkvöld. 14.4.2021 08:01