Sjósettu kafbát sem borið getur kjarnorkuvopn Kim Jong Un, einræðisherra Norður Kóreu opinberaði í vikunni nýjan kafbát sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Kóreumenn hafa lengi unnið að þróun slíkra kafbáta. 8.9.2023 15:10
Barist um Wagner-veldið Eftir að rússneski auðjöfurinn og stríðsherrann Jevgení Prígósjín dó í Rússlandi í síðasta mánuði hafa mismunandi fylkingar í Rússlandi barist um yfirráð yfir viðskiptaveldi hans. Barátta þessi fer fram í þremur heimsálfum en verðmætasti hluti veldis Prígósjíns var í Afríku. 8.9.2023 12:45
Tugir borgara féllu í árás hryðjuverkamanna í Malí Herforingjastjórn Malí segir að 49 borgarar og fimmtán hermenn hafi fallið í árásum hryðjuverkamanna í norðurhluta landsins í gær. Hryðjuverkamenn sem tengjast al-Qaeda eru sagðir hafa ráðist á ferju nærri Timbuktu og á varðstöð í Gao-héraði. 8.9.2023 10:57
Starfield: Stærsti leikur ársins er ekki sá besti en ég elska hann Fárra leikja hefur verið beðið af jafn mikilli eftirvæntingu og Starfield. Það er fyrsti leikur fyrirtækisins Bethesda, sem eru þekktastir fyrir Fallout og Elder Scrolls leikina, sem gerist í nýjum söguheimi í nokkra áratugi. 8.9.2023 08:47
Masterson dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir nauðgun Danny Masterson, leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í That ´70 Show, hefur verið dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. Masterson var sakfelldur í vor fyrir að nauðga tveimur konum á árum áður. 7.9.2023 19:10
Slökkti á Starlink fyrir árás Úkraínumanna Elon Musk, auðugasti maður heims, skipaði starfsmönnum sínum að slökkva á netþjónustu Starlink undan ströndum Krímskaga í fyrra. Það gerði hann til að stöðva leyniárás Úkraínumanna á rússneska flotann, þar sem notast var við dróna sem stýrt var með nettengingu í gegnum Starlink. 7.9.2023 14:56
Fundu vel varðveitt rómversk sverð í helli Fornleifafræðinar í Ísrael tilkynntu í gær að fjögur 1.900 ára gömul rómversk sverð hefðu fundist í helli nærri Dauðahafinu. Sverðin þykja merkilega vel varðveitt eftir veruna í hellinum en auk þeirra fannst spjótsoddur, sem Rómverjar kölluðu pilum. 7.9.2023 11:21
Framkvæmdastjóri VG fer til Landverndar Björg Eva Erlendsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Landverndar. Hún starfar nú sem framkvæmdastjóri Vinstri grænna en hefur störf hjá Landvernd í október. 6.9.2023 15:30
Sextán borgarar féllu í árás Rússa Að minnsta kosti sextán borgarar létu lífið og 31 særðist þegar eldflaug lenti á markaði í borginni Kostiantynivka í austurhluta Úkraínu í dag. Ráðamenn í Úkraínu segja Rússa hafa skotið eldflauginni en sprengingin náðist á myndband. 6.9.2023 15:13
Segir að Kim muni gjalda fyrir vopnasendingar Jake Sullivan, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og ríkið allt muni gjalda fyrir mögulega vopnasendingar til Rússlands. Hann segir að sendi Kóreumenn vopn til Rússlands sem notuð yrði í Úkraínu, kæmi það niður á Norður-Kóreu á alþjóðasviðinu. 6.9.2023 14:27