Dæmd í þrælkunarvinnu fyrir að þykjast pota í brjóst Móðurlandsins Rússnesk kona hefur verið dæmd til tíu mánaða þrælkunarvinnu fyrir að þykjast snerta brjóst styttu í myndbandi sem hún birti á samfélagsmiðlum. Konan er frá borginni Samara en í júlí í fyrra birti hún myndband á Instagram þar sem hún otar fingri að styttu sem kallast „Móðurlandið kallar“. 5.4.2024 16:21
Sögulegur jarðskjálfti skók austurströndina Íbúar New York og nærliggjandi svæða fundu í dag fyrir sjaldgæfum jarðskjálfta. Jarðskjálfti þessi, sem fannst víða á norðanverðri austurströnd Bandaríkjanna, mældist 4,8 stig og eru upptök hans nærri Lebanon í New Jersey, um áttatíu kílómetra vestur af Manhattan. 5.4.2024 15:09
Starliner á loks að bera geimfara Starfsmenn Boeing stefna að því að skjóta geimförum til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar um borð í geimfarinu Starliner í næsta mánuði. Þróun geimfarsins hefur reynst Boeing erfið og er mörgum árum á eftir áætlun. 5.4.2024 14:09
„Það er ákveðið óvissustig núna“ Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að möguleg ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands, hafi ekki verið til formlegrar umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun. 5.4.2024 11:55
Reka tvo og refsa fleirum vegna árása á hjálparstarfsmenn Tveimur yfirmönnum í ísraelska hernum hefur verið vikið úr starfi í kjölfar rannsóknar á mannskæðum loftárásum á hjálparstarfsmenn World Central Kitchen. Rannsakendur segja alvarleg mistök hafa verið gerð og starfsreglur hersins hafi verið brotnar þegar árásirnar voru gerðar. 5.4.2024 11:21
Bíræfnir þjófar stálu rúmum fjórum milljörðum Bíræfnir þjófar stálu allt að þrjátíu milljónum dala úr peningageymslu í Los Angeles um páskana. Ránið er eitt það stærsta í sögu borgarinnar en þjófarnir brutu sér leið inn í bygginguna á páskadag og komust þar inn í stóra peningahvelfingu, án þess að gangsetja þjófavarnarkerfi. 5.4.2024 10:52
Sóðalegum skilaboðum rignir yfir breska þingmenn Háttsettur þingmaður í Íhaldsmannaflokki Bretlands hefur viðurkennt að senda ókunnugum aðila á stefnumótaforriti persónuupplýsingar þingmanna og annarra. William Wragg, umræddur þingmaður, lét símanúmar annarra þingmanna af hendi eftir að hann sendi nektarmyndir af sjálfum sér á óprútna aðila. 5.4.2024 09:53
„Rússland getur ekki verið skotmark íslamista“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hélt því fram í dag að íslamskir öfgamenn hefðu ekki tilefni til að fremja hryðjuverkaárás í Rússlandi. Eining rússnesku þjóðarinnar á sviðum trúarbragða og þjóðernis og samheldni þjóðarinnar væri svo mikil að ómögulegt væri að öfgamenn fremdu hryðjuverkaárás í landinu. 4.4.2024 17:11
Áhöfn þyrlunnar fann týndan mann á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitir voru kallaðar út í dag til að leita að týndum göngumanni á Fimmvörðuhálsi í dag. Sveitir frá Hvolsvelli og Hellu voru kallaðar út, auk annarra af Suðurlandi og stóð til að notast við hunda við leitina. 4.4.2024 17:04
Felldu þrjá slökkviliðsmenn með drónum í Karkív Að minnsta kosti fjórir létu lífið í nótt þegar sjálfsprengidrónum var flogið á tvö fjölbýlishús og orkuver í Karkív, næst stærstu borg Úkraínu. Rússar hafa látið sprengjum rigna yfir borgina á undanförnum vikum og valdið þar miklum skemmdum og mannfalli. 4.4.2024 15:14