SA og VÍ svara Samkeppniseftirlitinu: „Verða settar skorður á Seðlabankann að tjá sig um verðlag í landinu?“ Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands segja engin ákvæði samkeppnislaga banna samtökum fyrirtækja þátttöku í opinberri umræðu. Það sé ekki úr lausu lofti gripið að verðhækkanir séu líklegar og það sé í raun óumflýjanlegt að hagsmunasamtök fyrirtækja láti sig verðlag í landinu varða. 22.10.2021 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö í kvöld segjum við frá því að lögregla er ósammála héraðsdómara um að hún hafi ekki gætt hlutlægni í rannsókn sinni í Rauðagerðismálinu. Vinnubrögð hennar voru harðlega gagnrýnd í dómsal í gær. 22.10.2021 18:00
Baldwin segist niðurbrotinn vegna dauða Halyna Hutchins Leikarinn Alec Baldwin segist niðurbrotinn vegna dauða Halyna Hutchins sem dó eftir að hann hleypti af byssu við tökur á kvikmynd í Nýju Mexíkó í gær. Hutchins var kvikmyndatökustjóri en auk hennar særðist Joel Souza leikstjóri. 22.10.2021 17:29
Þingmenn vilja ákæra Bannon Meirihluti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings greiddi í kvöld atkvæði með því að ákæra Steve Bannon, fyrrverandi aðstoðarmann Donalds Trump, fyrrverandi forseta, fyrir að sýna þinginu vanvirðingu. Bannon hefur neitað að mæta á fund þingnefndar sem rannsakar árásina á þinghúsið þann 6. janúar og svara spurningum þingmanna. 21.10.2021 23:48
Jóhannes uppljóstrari verðlaunaður í Svíþjóð Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari og fyrrverandi stjórnandi hjá Samherja í Namibíu, fékk sjálfbærnisverðlaun Gautaborgar í dag, sem kallast Win Win. hann fékk um fimmtán milljónir króna í verðlaunafé. 21.10.2021 22:37
Bergþór og Laufey eiga von á barni Laufey Rún Ketilsdóttir starfsmaður Sjálfstæðisflokksins og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, eiga von á barni. Laufey tilkynnti þetta á Instagram í kvöld og sagði að von væri á barninu í byrjun sumars. 21.10.2021 22:10
Hótaði að myrða trúboðana Leiðtogi glæpagengis sem rændi sautján trúboðum og fjölskyldumeðlimum þeirra á Haítí fyrr í mánuðinum, birti í dag myndband þar sem hann hótaði að myrða fólkið. Það myndi hann gera ef ekki yrði gengið að kröfum hans. 21.10.2021 21:51
Húsasmiðjunni lokað á Dalvík og Húsavík Verslunum Húsasmiðjunnar á Dalvík og Húsavík verður lokað um næstu áramót. Starfsmönnum fyrirtækisins í bæjunum verður boðið að vinna í nýrri verslun á Akureyri sem opna á á Freyjunesi á næsta ári. 21.10.2021 19:22
Origo hagnaðist um 365 milljónir Origo hagnaðist um 365 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi. Hagnaður fyrirtækisins á árinu er 612 milljónir. Í fyrra var hagnaðurinn 90 milljónir á þriðja ársfjórðungi og 461 milljón á fyrstu níu mánuðum ársins. 21.10.2021 18:31
Sony birtir fyrstu stiklu Uncharted Sony birti í dag fyrstu stiklu kvikmyndarinnar Uncharted með þeim Tom Holland, Mark Wahlberg, Titu Gabrielle og Antonio Banderas í aðalhlutverkum. Myndin byggir á og ber sama nafn og hin gífurlega vinsæla tölvuleikjasería eftir Naughty Dog. 21.10.2021 17:34