Trompaðist eftir að LeBron James sló hann til blóðs LeBron James var rekinn út úr húsi eftir að hafa slegið andstæðing til blóðs í sigri Los Angeles Lakers á Detroit Pistons í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. 22.11.2021 07:31
Horfir jákvæðum augum á heimavallarvandann og fagnar komu Martins og Jóns Axels Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, fagnar að sjálfsögðu endurkomu Martins Hermannssonar í landsliðið fyrir komandi leiki gegn Hollandi og Rússlandi í undankeppni HM. 18.11.2021 16:01
Sara Björk orðin mamma Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, og Árni Vilhjálmsson, leikmaður Breiðabliks, eignuðust son á þriðjudaginn. 18.11.2021 14:00
Upphitun fyrir stórleikinn og næstu umferð: „Krefjandi fyrir dómarana“ Stefán Árni Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson hituðu að vanda vel upp fyrir komandi leiki í Olís-deild karla í handbolta og skoðuðu sérstaklega risaleik kvöldsins á milli Hauka og Vals. 18.11.2021 13:00
Ekki náð hálftíma í vetur en valinn í landsliðið: „Getur gefið okkur gæðamínútur“ Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, segist sannfærður um að liðið þurfi á Ragnari Nathanaelssyni að halda vegna komandi landsleikja. Ragnar hefur aðeins spilað 22 mínútur samtals með Stjörnunni í Subway-deildinni í vetur. 18.11.2021 12:00
„Leyfiskerfi KSÍ er ekkert nema sýndarmennska“ Breytingar á leyfiskerfi KSÍ, sem mæta þörfum félaga á borð við Kórdrengi, Þrótt Vogum og KV, bitna á grasrótarstarfinu í íslenskum fótbolta. Þær stuðla að því að fjármagn fari enn frekar í starf meistaraflokka í stað þess að byggja upp íslenskan fótbolta með skýrum kröfum um öflugt yngri flokka starf. 18.11.2021 11:00
Tjón vegna staks leiks getur numið hundruðum þúsunda: „Ofboðslega vont fyrir hreyfinguna“ „Það er ofboðslega vont fyrir hreyfinguna að fá þetta áhorfendabann enn einu sinni, því þetta er ekkert annað en tekjutap fyrir félögin okkar,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður körfuknattleikssambands Íslands. Þungt hljóð er í forsvarsmönnum körfu- og handboltafélaga landsins. 18.11.2021 10:00
Leyfa fólki að fylla íþróttahúsin gegn bólusetningarvottorði Svíar munu geta fyllt íþróttahús sín af áhorfendum þrátt fyrir hertar sóttvarnaaðgerðir sem boðaðar hafa verið vegna kórónuveirufaraldursins. 17.11.2021 16:30
Ísland í HM-umspilið (ef UEFA hefði valið sanngjarnari leið) Íslenska karlalandsliðið í fótbolta verður ekki með í umspilinu um sæti á HM í Katar. Ísland hefði hins vegar verið með ef að UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, hefði haldið sig við sams konar reglur og fyrir síðasta Evrópumót. 17.11.2021 09:01
Keflavík endurheimtir Sindra frá ÍA Keflavík hefur fengið góðan liðsstyrk en miðjumaðurinn Sindri Snær Magnússon hefur skrifað undir samning við félagið sem gildir út næstu þrjár leiktíðir. 16.11.2021 17:31