Jón Daði ætlar úr frystikistunni: „Þetta gengur náttúrulega ekki“ „Það er alveg á hreinu að ég þarf að koma mér í annað umhverfi og nýjan klúbb. Þetta gengur náttúrulega ekki,“ segir Jón Daði Böðvarsson, landsliðsmaður í fótbolta, sem hefur verið í sannkallaðri „frystikistu“ hjá enska félaginu Millwall á þessari leiktíð. 27.9.2021 11:00
Fulltrúar FIFA fylgjast með stöðunni hjá KSÍ og buðu fram hendur á dekk „FIFA vill bara vera upplýst um stöðuna og býður fram aðstoð eins og þarf,“ segir Ómar Smárason, deildarstjóri samskiptadeildar KSÍ, um komu tveggja fulltrúa FIFA til landsins. Fulltrúarnir sátu fund fráfarandi stjórnar KSÍ á þriðjudag. 24.9.2021 15:00
Vill leyfa áfengi í stúkunni: „Ýtum fólki út í það að drekka hratt í hálfleik“ Bretar skoða það nú að aflétta banni við áfengisdrykkju í stúkunni á fótboltaleikjum. Þingmaður segir bannið stuðla að því að menn þambi hratt fyrir leik og í hálfleik. 24.9.2021 14:31
Engin ákvörðun tekin um starfslokasamning Guðna Fráfarandi stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur ekki ákveðið hvernig starfslokum fyrrverandi formanns, Guðna Bergssonar, verður háttað. 24.9.2021 12:31
Fjölnismenn leituðu ekki langt yfir skammt Fjölnismenn hafa ráðið nýjan þjálfara til að stýra karlaliði félagsins í fótbolta, eftir að Ásmundur Arnarsson hætti fyrr í þessum mánuði. 24.9.2021 11:24
Jón Guðni samdi við Milos um að spila ekki: „Líkaminn orðinn svolítið þreyttur“ Það vakti athygli sænska miðilsins Fotbollskanalen að landsliðsmaðurinn Jón Guðni Fjóluson skyldi ekki spila með Hammarby í 3-0 sigrinum gegn IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Jón Guðni segist einfaldlega hafa þurft hvíld. 24.9.2021 10:30
Helga býður sig fram í stjórn KSÍ Helga Helgadóttir, íþróttastjóri knattspyrnudeildar Hauka og þjálfari, hefur ákveðið að sækjast eftir kjöri í stjórn Knattspyrnusambands Íslands á sérstöku aukaþingi sem haldið verður eftir rúma viku. 24.9.2021 09:30
Koeman sá rautt og sængin nánast uppreidd Staða Ronalds Koeman sem knattspyrnustjóra Barcelona er í lausu lofti og næstu klukkustundir gætu ráðið úrslitum, segir spænska blaðið Marca. 24.9.2021 08:01
Stóðu í skugganum en tæpar tvær milljónir sáu þær mæta Íslandi Einn af vitnisburðum þess hvernig knattspyrnu kvenna hefur vaxið fiskur um hrygg á síðustu árum er snaraukinn áhugi Hollendinga á kvennalandsliði sínu sem mætti Íslandi í vikunni. 24.9.2021 07:30
Varaforsetinn útdeildi seðlum í klefanum Knattspyrnusamband Norður- og Mið-Ameríku, Concacaf, hefur hafið rannsókn vegna myndbands sem sýnir hinn sextuga Ronnie Brunswijk útdeila seðlum eftir að hafa spilað leik í keppni á vegum sambandsins. 23.9.2021 13:01