Segist vera víkingur en vill nýja legghlíf Danski miðjumaðurinn Pierre-Emile Höjbjerg í liði Tottenham erfir það ekki við Joshua Dasilva að hafa tæklað hann til blóðs í enska deildabikarnum í gærkvöld. Atvikið má sjá hér í greininni. 6.1.2021 15:30
Guðbjörg fékk veiruna og finnur enn enga lykt Guðbjörg Gunnarsdóttir þarf ekki að fara í sóttkví við komuna til síns nýja knattspyrnufélags Arna-Björnar í Noregi, frá Svíþjóð, vegna þess að hún smitaðist af kórónuveirunni um miðjan nóvember. 6.1.2021 14:00
Bayern festir kaup á Karólínu Karólína Lea Vilhjalmsdóttir, landsliðskona í fótbolta, hefur náð samkomulagi um samning til þriggja og hálfs árs við þýska stórveldið Bayern München. 6.1.2021 11:30
Ótrúlega stolt að hafa fætt tvö börn og fengið strax samning hjá nýju félagi Innan við ári eftir að hafa fætt tvíbura í Stokkhólmi hefur landsliðsmarkmaðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir nú skrifað undir samning við nýtt félag, norska úrvalsdeildarfélagið Arna-Björnar. 6.1.2021 10:50
Meistarar Breiðabliks kveðja máttarstólpa Sonný Lára Þráinsdóttir, landsliðsmarkmaður í fótbolta, er hætt hjá Íslandsmeisturum Breiðabliks. 5.1.2021 16:54
Norska „neyðarliðið“ mátti sín lítils Til þess að trufla ekki undirbúning sinn fyrir HM í Egyptalandi tefla Norðmenn fram varaliði í leikjum sínum við Hvíta-Rússland í undankeppni EM í handbolta. 5.1.2021 16:13
Solskjær í Manchester-slaginn án afsakana Ole Gunnar Solskjær segir að það yrði stórt skref fyrir lið sitt að landa titli en Manchester United mætir Manchester City í undanúrslitum enska deildabikarsins í fótbolta annað kvöld. 5.1.2021 15:45
Báðir þjálfararnir með veiruna Óvíst er hvort Tékkar mæta á HM í handbolta í Egyptalandi í næstu viku með þjálfara sína tvo en þeir eru báðir með kórónuveiruna. 5.1.2021 14:31
Patrik skiptir um lið í toppbaráttunni Patrik Gunnarsson mun verja mark Silkeborg í Danmörku á því spennandi vori sem framundan er hjá U21-landsliðsmarkmanninum. 5.1.2021 13:46
Leyfa fimmtánhundruð áhorfendur á leikjum Íslands Egyptar hafa ákveðið að leyfa áhorfendur á leikjunum á heimsmeistaramótinu í handbolta, þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn. 5.1.2021 13:31