Óvíst hvort KR fái undanþágu frá sóttkví KR-ingar fljúga nú eftir hádegi til Skotlands þar sem þeir keppa við meistara Celtic annað kvöld í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Óvíst er hvort þeir þurfi að fara í sóttkví við komuna aftur til Íslands. 17.8.2020 11:30
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Þór/KA | María tryggði Þór/KA stig Stjarnan og Þór/KA gerðu 1-1 jafntefli í fyrstu umferð Pepsi Max deildar kvenna eftir að deildin fór aftur af stað eftir kórónuveiruhlé. 16.8.2020 18:55
„Vantar „guts“ þegar það er verið að dæma leiki hjá konum“ Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var ómyrkur í máli þegar hann ræddi um rauða spjaldið sem líklega hefði átt að fara á loft þegar Stjarnan og Þór/KA gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi Max-deild kvenna í dag. 16.8.2020 18:28
Umfjöllun og viðtöl: KR - FH 1-2 | Daníel og Þórir afgreiddu Íslandsmeistarana Daníel Hafsteinsson skoraði mörk FH, í bæði skiptin eftir undirbúning Þóris Jóhanns Helgasonar, þegar liðið vann dísætan 2-1 útisigur á KR í fyrsta leiknum eftir hléið í Pepsi Max-deildinni í fótbolta. 14.8.2020 19:50
Úrvalsdeildarlið vildu Björn en hann valdi Lilleström Björn Bergmann Sigurðarson var 17 ára gamall þegar hann skrifaði fyrst undir samning við norska knattspyrnufélagið Lilleström. Nú snýr hann aftur til félagsins, 29 ára gamall. 14.8.2020 16:45
Kolbeinn í botnbaráttu í fyrsta sinn: „Erfitt að vera utan vallar“ Landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson sneri aftur til keppni í gær en náði ekki að koma í veg fyrir enn eitt tap AIK sem er einu stigi frá botnsæti sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 14.8.2020 16:30
Allir leikir í Pepsi Max-deildunum í beinni útsendingu um helgina Það verður sannkölluð fótboltaveisla á Stöð 2 Sport og Vísi um helgina nú þegar íslenski boltinn byrjar að rúlla að nýju eftir hlé vegna kórónuveirufaraldursins. 14.8.2020 15:45
Tekur við Englandi en stýrir Hollandi á ÓL Sarina Wiegman, þjálfari Evrópumeistara Hollands, mun taka við enska kvennalandsliðinu í fótbolta af Phil Neville næsta sumar. 14.8.2020 13:45
Hálfan milljarð vantaði upp á og þörf íþróttafélaganna aukist Alls bárust ÍSÍ umsóknir um yfir 700 milljónir króna frá íþróttafélögum og sérsamböndum vegna fjárhagslegs tjóns af völdum kórónuveirufaraldursins í vor. ÍSÍ hefur hins vegar 150 milljónir til að deila út. 14.8.2020 11:00
Stjarnan næst titlinum og KR ekki í fallsæti Boltinn byrjar aftur að rúlla í Pepsi Max-deild karla í fótbolta þar sem segja má að Stjarnan sé næst titlinum. Breiðablik stendur vel að vígi í Pepsi Max-deild kvenna þar sem heil umferð fer fram á sunnudag og mánudag. 14.8.2020 08:00