Sjáðu mörkin í naumum sigri Blika á Keflvíkingum Kristinn Steindórsson kom Breiðabliki til bjargar með tveimur mörkum á síðustu tíu mínútunum í 3-2 sigri á Keflavík í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í fótbolta í kvöld. 25.6.2020 21:40
Reginn vísar á bug fullyrðingum um óviðunandi ástand vallarins í Egilshöll Fasteignafélagið Reginn hefur vísað á bug fullyrðingum um að gervigrasið í Egilshöll uppfylli ekki kröfur eða að viðhaldi vallarins sé ekki sinnt með fullnægjandi hætti. 25.6.2020 20:20
Dómarar, Blikar og KR-ingar í sóttkví en ekki Selfyssingar Dómarar, leikmenn og þjálfarar í leik Breiðabliks og KR í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta síðasta þriðjudag þurfa að fara í sóttkví eftir að leikmaður Breiðabliks greindist með kórónuveirusmit í dag. 25.6.2020 19:52
Sterkasta fólk Íslands krýnt á þjóðhátíðardaginn Sterkasta fólk Íslands reyndi með sér í veðurblíðu í Mosfellsbæ á þjóðhátíðardaginn. Keppt var um titlana „stálkonan“ og „sterkasti maður Íslands“ í tveimur þyngdarflokkum hjá hvoru kyni. 25.6.2020 19:30
Leikmaður Breiðabliks smitaður Leikmaður kvennaliðs Breiðabliks í fótbolta hefur greinst með kórónuveirusmit. Liðsfélagar og þjálfarar hennar, sem og leikmenn og þjálfarar KR, þurfa nú að fara í tveggja vikna sóttkví. 25.6.2020 17:49
Martin spilar um þýska meistaratitilinn í beinni á Stöð 2 Sport Stöð 2 Sport hefur tryggt sér sýningarréttinn á úrslitaleikjum Alba Berlín og Ludwigsburg um þýska meistaratitilinn í körfubolta. 25.6.2020 17:05
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þór/KA 6-0 | Íslandsmeistararnir settu upp sýningu Þór/KA átti aldrei möguleika gegn Íslandsmeisturum Vals að Hlíðarenda í kvöld. Lokatölur 6-0. 24.6.2020 21:00
Hlín dregur þjálfarann fram úr rúminu eldsnemma: „Tilbúin að æfa endalaust“ „Hlín er einstakur leikmaður,“ segir Eiður Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Vals í fótbolta, um Hlín Eiríksdóttur sem skoraði þrennu í 6-0 sigrinum á Þór/KA í kvöld. 24.6.2020 20:22
Yfirlýsing Þórs: Þungbær en réttmæt niðurstaða Knattspyrnudeild Þórs biður KSÍ, knattspyrnuáhugamenn og félagsmenn Þórs afsökunar á framferði sínu í tengslum við auglýsingu á erlendu veðmálafyrirtæki, bæði í viðtölum og á árskortum á heimaleiki liðsins. 24.6.2020 15:39
Þór fékk fimmtíu þúsund króna sekt Knattspyrnudeild Þórs hefur verið sektuð um 50.000 krónur vegna framkomu þjálfara og tveggja leikmanna eftir sigur á Grindavík síðasta föstudag, „derhúfumálsins“ svokallaða. 24.6.2020 15:10