Yfirlýsing Þórs: Þungbær en réttmæt niðurstaða Knattspyrnudeild Þórs biður KSÍ, knattspyrnuáhugamenn og félagsmenn Þórs afsökunar á framferði sínu í tengslum við auglýsingu á erlendu veðmálafyrirtæki, bæði í viðtölum og á árskortum á heimaleiki liðsins. 24.6.2020 15:39
Þór fékk fimmtíu þúsund króna sekt Knattspyrnudeild Þórs hefur verið sektuð um 50.000 krónur vegna framkomu þjálfara og tveggja leikmanna eftir sigur á Grindavík síðasta föstudag, „derhúfumálsins“ svokallaða. 24.6.2020 15:10
Þrjátíu milljónir í nýja velli, búningsklefa og bætta aðstöðu - Breiðablik hlaut mest Knattspyrnusamband Íslands hefur úthlutað tæplega þrjátíu milljónum króna til aðildarfélaga sinna vegna ýmiss konar framkvæmda. Breiðablik fær mest í sinn hlut eða 7.350.000 krónur. 24.6.2020 14:45
Samstarf Þórs og Coolbet ekki nýtt af nálinni Samstarf Þórs og Coolbet hófst ekki með því að leikmenn og þjálfari karlaliðs félagsins í fótbolta klæddust derhúfu með merki veðmálafyrirtækisins í myndbandsviðtölum á föstudaginn. Yfirlýsing knattspyrnudeildar félagsins frá því í gær heldur ekki vatni. 24.6.2020 12:25
Ferli Gunnars hugsanlega lokið því ekki mátti færa leikinn: „Þessu hefur margoft verið neitað“ KR-ingar og Vængir Júpiters vildu spila bikarleik sinn á Meistaravöllum í gær en var það óheimilt samkvæmt reglugerð KSÍ. Því spiluðu þau inni í Egilshöll, á gervigrasvelli sem þykir slæmur, og það gæti hafa orðið til þess að ferli leikmanns KR sé lokið. 24.6.2020 12:00
Castillion kemur ekki: „Skrýtið að knattspyrnusamband geti ekki svarað“ Sóknarmaðurinn Geoffrey Castillion mun ekki spila með Fylki í sumar eins og vonir stóðu til. Málið strandar á indónesíska knattspyrnusambandinu. 24.6.2020 10:10
Handboltinn snýr aftur tíunda september - Patrekur byrjar gegn Íslandsmeisturunum sínum Það verða stórleikir á dagskrá þegar Íslandsmótið í handbolta hefst í september en HSÍ hefur birt leikjadagskrá fyrir tímabilið. 23.6.2020 16:45
Lögbrot sem varðað getur hálfs árs fangelsi - Mál Þórsara til aganefndar Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur vísað til aga- og úskurðarnefndar máli Þórsara á Akureyri sem auglýstu erlent veðmálafyrirtæki í viðtölum. Um lögbrot er að ræða sem varðað getur sektum eða allt að hálfs árs fangelsi. 23.6.2020 15:15
Langri og erfiðri bið Framara lýkur 2022 - Taka á móti ÍR í bikarnum í kvöld Ef allt gengur eins og í draumi hjá karlaliði Fram í fótbolta í sumar gæti liðið „þurft“ að leika á Laugardalsvelli á næstu leiktíð. Sumarið 2022 standa vonir hins vegar til að ný og glæsileg aðstaða í Úlfarsárdal verði tilbúin fyrir liðið. 23.6.2020 14:00
Þrír leikmannahópar fljúga saman í Mjólkurbikarleiki Lið HK, Leiknis Reykjavík og Reynis Sandgerði munu ferðast saman í leiki sína í Mjólkurbikarnum í fótbolta karla. 23.6.2020 11:30