Þríhálsbrotnaði lífshættulega en lætur nú drauminn rætast Henning Jónasson hefur verið viðriðinn íþróttir og líkamsrækt frá æskuárum. Fyrir rúmum þremur árum lenti hann í lífshættulegu slysi þegar hann þríhálsbrotnaði við að stinga sér niður af kletti í Suður-Frakklandi. Hann hlaut þar slíka áverka að læknar töldu ljóst að einstaklega gott líkamlegt form hans hafi orðið honum til lífs. 4.1.2022 20:01
Högg að fá fréttir um sig byggðar á misskilningi lögreglu Framkvæmdastjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar segir fréttaflutning um að starfsmenn gistiskýlis hafi látið heimilislausan mann sofa úti í kuldanum mikið högg fyrir starfsfólkið. Það hafi enda verið að gera allt rétt, ólíkt því sem lögregla gaf í skyn í dagbók sinni í morgun. Þetta sé misskilningur af hálfu lögreglunnar. 4.1.2022 11:08
„Við getum ekki tekið fólk með valdi og bólusett það“ Sóttvarnalæknir segir ekkert við ástandið í faraldrinum gefa ástæðu til að ráðast í afléttingar. Hlutfall óbólusettra á meðal alvarlega veikra er mjög hátt. 3.1.2022 12:02
240 milljónir fóru í ráðherrabílana Ríkissjóður greiddi tæplega 240 milljónir í rekstur bifreiða og laun bílstjóra fyrir ráðherra ríkisstjórnarinnar á líðandi ári. Stjórnvöld fjárfestu í þremur nýjum rafmagnsjeppum, þar sem hver bíll kostaði níu milljónir króna. 30.12.2021 13:01
Bjarni fór í Ásmundarsal á Þorláksmessu og keypti sjálfan sig Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra brá ekki út af venjunni á Þorláksmessu í ár og heimsótti árlega listasýningu í Ásmundarsal í miðbæ Reykjavíkur. Þar mun að þessu sinni hafa sést til ráðherrans um eftirmiðdaginn, sem hlýtur að teljast heppilegri tími til listaverkakaupa en á síðkvöldum, eins og dæmin sanna. 28.12.2021 16:20
Smitrakningarteymið breytir um taktík Smitrakningarteymið sér fram á að geta ekki lengur hringt í alla sem greinast með veiruna, eins og hingað til hefur alltaf verið gert. Rúmur fjórðungur þeirra sem fóru í sýnatöku við Covid-19 í gær greindust með veiruna, samtals 664. Hlutfallið hefur aldrei verið eins hátt. 27.12.2021 20:16
Að hætta með sóttkví og einangrun hefði alvarlegar afleiðingar Sóttvarnalæknir segir ótímabært að hrósa happi yfir því að omíkron-afbrigðið hafi enn ekki skilað sér í auknum innlögnum á Landspítala. Næstu dagar skipta sköpum. 664 greindust með veiruna innanlands í gær. 27.12.2021 12:05
„Næstu 100-150 ár verður þetta í gangi“ Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga hefur engan bilbug látið á sér finna yfir hátíðirnar. Spennan í efri skorpunni er að sögn eldfjallafræðings að gefa sig vegna þrýstings og líkur eru taldar hafa aukist á öðru gosi. 26.12.2021 23:57
Stærsta haldlagning á grasi í langan tíma á Íslandi Þrjátíu kíló af marijúana voru haldlögð í tveimur töskum á vikutímabili á Keflavíkurflugvelli í desember. Þetta er langstærsta tilraun til innflutnings á þessum efnum á árinu, en innflutningur á grasi er almennt sjaldgæfur. 26.12.2021 21:41
Líklega þriðji hver smitaður í sögulegri röð Of snemmt er að draga ályktanir um að omíkron-afbrigðið muni ekki valda sjúkrahúskerfinu þungum búsifjum að sögn yfirlögregluþjóns. Veikt fólk beið úti tímum saman eftir sýnatöku á Suðurlandsbraut í dag. 26.12.2021 19:04