Fréttamaður

Tómas Arnar Þorláksson

Tómas Arnar er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum

270 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín í Suðurhluta Evrópu. Gróðureldar geisa enn víð í Frakklandi og á Spáni og hafa langar bílaraðir myndast víða. Við ræðum við Íslending sem býr tuttugu mínútum frá Madríd en hún aðstoðaði tengdasystur sína við að flýja heimili sitt í gær. 

„Ef læknir myndi skjóta sjúk­ling þá mætti ekki á­kæra hann“

Lögmaður dóttur konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar læknis segir héraðsdóm setja varhugavert fordæmi með því að vísa máli læknisins frá. Skúli var ákærður fyrir manndráp en lögmaðurinn segir niðurstöðuna brjóta gegn Mannréttindasáttmála Evrópu.

„Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“

Ástarsvik hafa verið sérstaklega algeng hér á landi síðustu vikur samkvæmt upplýsingum frá bönkunum. Teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð segir of lítið hlutfall þeirra sem lenda í ástarsvikum leita sér hjálpar. Þolendur geti misst aleiguna og skuldsett sig um margar milljónir. 

Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon

Framkvæmdastjóri  True North segir Ódysseifskviðu frábæra landkynningu og koma Íslandi enn á ný á kortið sem frábæran tökustað. Hápunktur tökutímabilsins hafi verið að sjá 450 Íslendinga hlaupa á eftir stórstjörnunni Matt Damon.

„Fólk bara skammast sín svo rosa­lega mikið“

Sakleysislegu daðri og samskiptum á stefnumótasíðunni Einkamál.is lauk með því að maður á áttræðisaldri missti aleigu sína í hendur svikara og sérsveitin var kölluð á heimili hans. Ástarsvik hafa verið sérstaklega algeng síðustu vikur samkvæmt Landsbankanum sem hvetur fólk til að varast grunsamleg samskipti á stefnumótaforritum.

Sjá meira