Fréttir
324 325 326 327 328 329 330 331 332 … 334 ›
Staðan óbreytt í Suðvesturkjördæmi við fimmtu tölur Staðan í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi er óbreytt eftir að fimmtu tölur bárust nú klukkan níu. Búið er að telja 4900 atkvæði. Þorgerður Katrín Gunnarsdótti, menntamálaráðherra og varaformaður flokksins, er sem fyrr í fyrsta sæti, Bjarni Benediktsson í öðru sæti, Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, er í þriðja sæti. Innlent 11.11.2006 21:07
Steinunn Valdís tryggir sér áttunda sætið Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, virðist hafa tryggt sér áttunda sætið á lista Samfylkingarinnar, en búið er að telja 4538 atkvæði af 4842. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er í sjötta sæti eins og þegar síðustu tölur voru birtar en Guðrún Ögmundsdóttir er á leið út af þingi. Innlent 11.11.2006 20:46
Ragnheiður Ríkharðsdóttir dotttin niður í sjötta sæti Staðan í sætum 4-6 er fljót að breytast í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi því nú er Jón Gunnarsson einn í fjórða sæti, Ragnheiður Elín Árnadóttir í því fimmta og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, er komin niður í sjötta sæti, en hún var í fjórða sæti eftir fyrstu tölur. Búið er að telja 4300 atkvæði. Innlent 11.11.2006 20:33
Kjörstöðum hjá sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi lokað Talning atkvæða í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi hófst klukkan fimm en flestum kjörstöðum í kjördæminu var lokað nú klukkan átta. Talning fer fram í Tryggvaskála á Selfossi og þar verða fyrstu tölur lesnar upp klukkan tíu. Til stendur að fljúga með atkvæði frá Vestmannaeyjun nú á níunda tímanum en ekki ef verður fært í lofti verða atkvæðin flutt sjóleiðina. Innlent 11.11.2006 20:17
Samgöngurráðherra vill skoða styttingu vegar á þremur stöðum Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vill skoða styttingu þjóðvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur á þremur stöðum, samtals um allt að tuttugu kílómetra, samkvæmt svari við fyrirspurn Halldórs Blöndals, fyrrverandi samgönguráðherra. Halldór segir hugmyndir Sturlu óraunhæfar, vegur um Stórasand sé miklu vænlegri leið tl styttingar. Innlent 11.11.2006 20:09
Fjöldagröf finnst nærri Srebrenica Enn ein fjöldagröfin hefur fundist sem geymir jarðneskar leifar fórnarlamba fjöldamorðanna í Srebrenica árið 1995. Erlent 11.11.2006 18:27
Jón og Ragnheiður jöfn í 4.-5. sæti Jón Gunnarsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir eru jöfn í 4.-5. sæti þegar 3200 atkvæði hafa verið talin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturtkjördæmi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er í fyrsta sæti, Bjarni Benediktsson í öðru sæti, Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, er í þriðja sæti. Innlent 11.11.2006 19:16
Staðan óbreytt eftir þriðju talningu Staðan átta efstu manna er óbreytt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar um 3200 af um 4800 atkvæðum hafa verið talin. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, virðist hafa hlotið örugga kosningu í fyrsta sætið, Össur Skarphéðinsson er í öðru sæti og Jóhanna Sigurðardóttir í því þriðja. Innlent 11.11.2006 19:06
Ákærur gegn Rumsfeld íhugaðar Donald Rumsfeld, fráfarandi landvarnaráðherra Bandaríkjanna, gæti átt yfir höfði sér ákærur í Þýskalandi vegna illrar meðferðar á föngum í Abu Ghraib og Guantanamo-fangelsunum. Erlent 11.11.2006 18:24
Halldór hættir sem framkvæmdastjóri VISA Halldór Guðbjarnason hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri VISA Ísland og hefur Höskuldur H. Ólafsson verið ráðinn í staðinn. Halldór segir starfslok sín í fullri sátt við fyrirtækið. Innlent 11.11.2006 18:57
Ásta Ragnheiður í sjötta og Steinunn í áttunda Mikil tíðindi hafa orðið samkvæmt öðrum tölum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ásta Ragnheiður Jóhannessdóttir er komin í sjötta sætið og Steinun Valdís Óskarsdóttir í áttunda sætið en Kristrún Heimisdóttir í níunda sæti en var samkvæmt fyrstu tölum í sjötta. Innlent 11.11.2006 18:40
Össur í öðru og Jóhanna í þriðja - Ágúst Ólafur í fjórða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, virðist hafa hlotið örugga kosningu í fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur þegar 2200 atkvæði af 4800 hafa verið talin. Össur Skarphéðinsson er í öðru sæti og Jóhanna Sigurðardóttir í því þriðja. Innlent 11.11.2006 18:16
Þorgerður og Bjarni efst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson alþingismaður skipa tvö efstu sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmis, samkvæmt fyrstu tölum. Innlent 11.11.2006 18:10
Rafmagnslaust á Reykjanesi Rafmagnslaust varð á Reykjanesi eftir að eldingu sló niður í Suðurnesjalínu nú á sjötta tímanum. Rafmagn fór af í byggðum og af báðum virkjununum á Reykjanesi, Reykjanesvirkjun og virkjuninni í Svartsengi. Innlent 11.11.2006 18:09
Bandaríkin beita neitunarvaldi gagnvart ályktun um Ísrael Bandaríkin beittu í dag neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í atkvæðagreiðslu um ályktun þar sem árás Ísraelshers á íbúðabyggð í Beit Hanoun fyrr í vikunni er fordæmd og Ísraelar hvattir til að kalla herlið sitt frá svæðinu. 18 manns féllu í árásinni, þar á meðal konur og börn. Erlent 11.11.2006 17:47
Rúmlega 4300 höfðu kosið í prófkjöri Samfylkingar kl. 17 4342 höfðu kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík nú klukkan fim samkvæmt tilkynningu frá flokknum, þar af 1087 utan kjörfundar. Þá var aðeins um klukkustund þar til kjörstaðnum í Þróttarheimilinu yrði lokað. Innlent 11.11.2006 17:37
Fimm ráðherrar segja sig úr ríkisstjórn Líbanons Fimm ráðherrar úr röðum Hizbollah-samtakanna og stuðningsflokksins Amal-hreyfingarinnar, hafa sagt sig úr ríkisstjórn Líbanons eftir að viðræður stjórnmálafylkinga Líbanons um valdaskiptingu í landinu fóru út um þúfur í dag. Kröfum Hizbollah-samtakanna um að fá aukinn hlut í stjórn landsins var hafnað og því slitnaði upp úr viðræðunum. Erlent 11.11.2006 17:11
Heildarafli dregst saman um 355 þúsund tonn Heildarafli í lok október var ríflega 1,1 milljón tonna en það er 355 þúsund tonnum minni afli en á sama tíma í fyrra þegar aflinn var tæplega ein og hálf milljón tonna. Þetta kemur fram í tölum Fiskistofu. Samdráttur í afla milli ára stafar af minni loðnuafla í ár. Innlent 11.11.2006 16:52
Eimskip fær nýtt frystiskip Eimskip tók í dag við nýju frystiskipi sem hljóta mun nafnið Storfoss á morgun. Þetta er annað nýja frystiskipið sem félagið fær afhent á einu ári. Innlent 11.11.2006 16:39
Borgarráð samþykkir samning um sölu á hlut borgar í Landsvirkjun Borgarráð samþykkti á fundi sínum á þriðja tímanum í dag söluna á hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun til ríkisins, en samningar þar að lútandi voru undirritaðir 1. nóvember síðastliðinn. Þetta þýðir að borgarstjórn á nú aðeins eftir að leggja blessun sína yfir samninginn. Innlent 11.11.2006 16:27
Kjörsókn í prófkjöri Samfylkingarinnar meiri en síðast Liðlega 3750 höfðu kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík laust fyrir klukann fjögur, þar af 1087 utan kjörfundar. Kjörsóknin er þegar orðin betri en í prófkjöri flokksins fyrir síðustu þingkosningar en þá kusu alls, 3605. Innlent 11.11.2006 16:06
Slasaðist við vinnu við helluslípivél Lögregla og slökkvilið voru kölluð að húsnæði BM Vallár á Bíldshöfða rétt fyrir klukkan eitt í dag vegna vinnuslyss. Þar hafði maður slasast á brjóstkassa þegar hann klemmdist í svokallaðri helluslípivél. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans en við rannsókn kom í ljós að meiðsli hans voru ekki mikil. Innlent 11.11.2006 15:55
Tvennt slapp vel í bílveltu við Kúagerði Tvennt slapp án teljandi meiðsla þegar bíll valt á Reykjanesbraut til móts við Kúagerði laust fyrir klukkan þrjú í dag. Ekki er ljóst hvers vegna bíllinn valt en báðir farþegar voru komnir út úr bílnum þegar lögreglu bar að garði. Bíllinn mun hins vegar vera nokkuð skemmdur. Innlent 11.11.2006 15:49
Vill leggja niður mannanafnanefnd Björn Ingi Hrafnsson varaþingmaður hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að mannanafnanefnd verði lögð niður og að lögboðið hlutverk nefndarinnar verði flutt til dómsmálaráðherra sem skera úr álitamálum sem upp kunni að koma í tengslum við nafngiftir og nafnritun. Innlent 11.11.2006 15:10
Ríflega 3100 hafa kosið hjá Samfylkingu í Reykjavík Klukkan 14.45 höfðu 3118 kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þar af eru 1087 utankjörfundaratkvæði. Sem fyrr segir er kosið í félagsheimili Þróttar í Laugardal og lýkur kjörfundi klukkan 18 og þá verða fyrstu tölur birtar. Innlent 11.11.2006 15:00
Um 20 prósenta kjörsókn hjá sjálfstæðismönnum í Suðvesturkjördæmi Um tuttugu prósent þeirra sem eru á kjörskrá í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi höfðu neytt atkvæðsréttar síns nú um klukkan þrjú, en á bilinu 11-12 þúsund manns eru á kjörskrá. Innlent 11.11.2006 14:57
Amfetamín líklega orsökin Lausn ráðgátunnar um hvers vegna um 1.500 evruseðlar af ýmsum verðgildum molnuðu í sundur skömmu eftir að hafa verið teknir út úr hraðbönkum í Þýskalandi kann að vera fundin. Erlent 11.11.2006 14:55
Jeppar fuku út af Suðurlandsvegi Lögreglan í Vík varar ökumenn við hálku og sterkum vindhviðum á Suðurlandsvegi austan við Kirkjubæjarklaustur. Tvö umferðaróhöpp áttu sér stað í morgun á þessum slóðum þar sem að jeppabifreiðar fuku af veginum og skemmdust talsvert en engin slys urðu á fólki. Innlent 11.11.2006 14:47
Al-Kaída fagnar afsögn Rumsfeld Í hljóðupptöku sem sögð er af ræðu Abu Hamza al-Muhajir, einnig þekktur sem Abu Ayyub al-Masri, höfuðsmaður al-Kaída hryðjuverkanetsins í Írak, lýsir hann ánægju sinni með afsögn Donalds Rumsfeld, landvarnaráðherra Bandaríkjanna. Erlent 11.11.2006 14:42
Um 20 prósenta kjörsókn í Suðurkjördæmi á hádegi Kjörsókn í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi var um 20 prósent upp úr hádegi en um 6000 manns eru á kjörkskrá. Töluvert er um nýskráningar í flokkinn en þar berjast 13 manns um sæti á lista flokksins fyrir komandi þingkosningar. Innlent 11.11.2006 14:31
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent