Íslandsvinir

Fréttamynd

Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöld­verð með Björk

Hvernig tilfinning ætli það sé að stoppa Alexander Skarsgård á leiðinni í mat með Björk og segja honum að hann sé hvergi nærri búinn að veita viðtal? Það er óþægileg tilfinning enda þekki ég það frá fyrstu hendi frá fundi okkar á Edition-hótelinu í fyrrakvöld. Í lokin neyddist ég til að viðurkenna fyrir honum að ég kæmist ekki á hátíðarsýningu nýju kvikmyndar hans því ég ætti stefnumót vegna sölu á notuðu teppi.

Lífið
Fréttamynd

Danskur stór­leikari þakk­látur á Ís­landi

Dansk-írakski leikarinn Dar Salim er staddur á landinu og virðist njóta þess vel miðað við færslu hans á samfélagsmiðlum. Hann segist þakklátur fyrir frídag og virðist því líka vera hér við vinnu miðað við færsluna.

Lífið
Fréttamynd

Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum

Raunveruleikaþáttastjarnan Dani Bowman er stödd á Íslandi ásamt kærasta sínum Henry Andrade. Bowman gerði garðinn frægan sem þátttakandi í þáttunum Love on the Spectrum þar sem fólk á einhverfurófinu leitar að ástinni.

Lífið
Fréttamynd

Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur

Tökur standa nú yfir á Íslandi á þriðju þáttaröð af Netflix þáttunum Four Seasons, en mikill viðbúnaður er á Skólavörðustíg og Klapparstíg þar sem tökur fara fram í dag. Barnabókahöfundarnir Gunnar Theodór Eggertsson og Linn Janssen vissu ekki hvar á sig stóð veðrið þegar Hollywood stjarnan Tinna Fey kíkti í útgáfuhóf þeirra í gær.

Lífið
Fréttamynd

Candace Owens hitti fjand­mann Blake Lively í Kefla­vík

Ótrúleg tilviljun varð til þess að bandaríski aktívistinn Candace Owens hitti bandaríska leikarann Justin Baldoni á Keflavíkurflugvelli síðasta föstudag. Owens hefur verið einn ötulasti stuðningsmaður leikarans í deilum hans við leikkonuna Blake Lively.

Lífið
Fréttamynd

Nicole er fyrir norðan

Síðustu daga og vikur hafa fjölmargar stórstjörnur lagt leið sína til landsins en meðal þeirra er ástralsk-bandaríska leikkonan Nicole Kidman. Hún er stödd í sólinni á Akureyri ef marka má Instagram-færslu í hringrás hennar.

Lífið
Fréttamynd

Hunter Schafer al­sæl eftir Ís­lands­för

Bandaríska stjarnan Hunter Schafer var stödd hér á landi á dögunum. Miðað við myndir hennar hefur dvöl hennar hérlendis verið ævintýri líkust og leikkonan virðist lítið hafa kippt sér upp við það þótt veðrið hafi ekki alltaf leikið við hana meðan á dvöl hennar stóð.

Lífið
Fréttamynd

Fræg feðgin snæddu kvöld­mat á Horninu

Bandaríski leikarinn Jason Bateman, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í gamanþáttunum „Arrested Development“, var meðal gesta á veitingastaðnum Horninu um helgina. Hann var þar ásamt dóttur sinni Francescu Nora en hann á tvær dætur með eiginkonu sinni, leikkonunni og kvikmyndaframleiðandanum Amandu Anka.

Lífið
Fréttamynd

Euphoria-stjörnur á Ís­landi

Euphoria-stjörnurnar Alexa Demie og Hunter Schafer eru mættar til landsins til að fagna fjölbreytileikanum og fanga almyrkvann með berum augum. 

Lífið
Fréttamynd

Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur

Bandaríska poppstjarnan Olivia Rodrigo dvaldi hér á landi á dögunum og vakti nokkra kátínu meðal íslenskra aðdáenda sinna. Söngkonan lenti í Keflavík árla morguns fimmtudaginn 17. júlí eftir næturflug á fyrsta farrými með Icelandair frá Portland.

Lífið
Fréttamynd

Olivia Rodrigo á Ís­landi

Poppstjarnan Olivia Rodrigo kom til landsins í morgun eftir að hafa flogið með Icelandair frá Portland samkvæmt heimildum fréttastofu. Stjarnan gaf út plötuna you seem pretty sad for a girl so in love í síðasta mánuði og fer á umfangsmikið tónleikaferðalagi í haust.

Lífið
Fréttamynd

Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur

Níu Bandaríkjamenn hafa verið ákærðir fyrir mannrán og vopnað rán eftir að hafa lokkað nokkra tónlistarmenn inn í upptökuver í Dallas, frelsissvipt þá og rænt af þeim fjármunum og lausafé fyrr á þessu ári. Meðal fórnarlamba er rapparinn og Íslandsvinurinn Gucci Mane. 

Lífið
Fréttamynd

Alan Carr á Ís­landi

Breski grínistinn og sjónvarpsmaðurinn Alan Carr er staddur á Íslandi og hefur ferðast víða um landið undanfarna daga.

Lífið
Fréttamynd

Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Ís­lands

Brigitte Bardot heimsótti Ísland tvívegis með skömmu millibili árið 1977. Heimsóknirnar vöktu mikla athygli fjölmiðla hér á landi og var önnur þeirra kallað „leyniferðlag“ í Dagblaðinu. Um var að ræða tvær stuttar millilendingar á Reykjavíkurflugvelli þegar hún flaug frá heimalandi sínu, Frakklandi, til Nýfundnalands og svo til baka.

Lífið
Fréttamynd

Juli­an Ass­an­ge í heim­sókn á Ís­landi

Julian Assange, blaðamaður og stofnandi Wikileaks, er staddur á Íslandi í stuttri heimsókn. Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segir að Assange hafi komið hingað í frí en auðvitað komi vinnan eitthvað til tals.

Innlent
Fréttamynd

Hug­mynd Chris Hemsworth að synda í kringum Ís­land

Það var einn maður sem varði sumrinu á Íslandi og var ekki svo heppinn að eiga afslappað sumar: Sundkappinn Ross Edgley sem setti heimsmet þegar hann kom í land í Nauthólsvík eftir að hafa synt 1600 kílómetra í kringum landið á 115 dögum.

Lífið
Fréttamynd

Ís­land land númer 197

Maður sem lauk ferðalagi sínu til allra landa heimsins á Íslandi, segist feginn að vera búinn með þennan kafla í sínu lífi. Ævintýrið fjármagnaði hann allt með dagvinnu í heimalandinu og nýtti helgar og aðra frídaga til að ferðast um heiminn.

Innlent
Fréttamynd

Heim­sótti heimaslóðirnar 52 árum eftir nauðlendinguna

Flugmaðurinn Greg Fletcher, sem nauðlenti Douglas Dakota-flugvél á Sólheimasandi árið 1973 og bjargaði þannig lífi allra um borð, heimsótti í gær gamlar heimaslóðir á Ásbrú í Reykjanesbæ. Með honum í för var Halla Tómasdóttir forseti Íslands. 

Innlent