Kauphöllin
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 78 ›
Tenging við rússneskan ólígarka tafði kaup Rapyd á Valitor Yfirtaka fjártæknifélagsins Rapyd á Valitor tafðist í meðförum fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands eftir að í ljós kom að einn stærsti eigandi Rapyd væri tengdur rússneskum ólígarka og samkvæmt heimildum Innherja var gerð krafa um að tengslin yrðu rofin. Einn af stofnendum Target Global lét af störfum undir lok síðasta árs. Innherji 20.1.2023 08:05
Mikilvægt að almenningur fái aðgang að raunatímagögnum líkt og stærri fjárfestar „Við teljum að það skipti almenna fjárfesta miklu máli, rétt eins og á við um stofnanafjárfesta, að vera með aðgang að réttum markaðsupplýsingum í rauntíma og geta þannig tekið ákvarðanir um kaup og sölu hlutabréfa á jafnræðisgrunni með öllum öðrum fjárfestum í Kauphöllinni,“ segir Hannes Árdal, framkvæmdastjóri og einn eigenda ACRO verðbréfa. Innherji 19.1.2023 10:53
Markaðurinn var „mun dramatískari“ en vaxtahækkanir og rekstur gaf tilefni til Fjöldi vaxtahækkana hjá erlendum seðlabönkum ásamt áframhaldandi hækkun vaxta Seðlabanka Íslands hafð neikvæð áhrif á verðmatsgengi margra félaga í Kauphöllinni á síðustu mánuðum ársins 2022, að sögn hlutabréfagreinenda. Eftir talsverðar verðlækkanir á hlutabréfamarkaði á síðustu misserum er hins vegar mikill meirihluti félaga talin vera vanmetin um þessar mundir, eða að meðaltali um rúmlega 16 prósent, en fasteignafélögin eru einkum sögð verulega undirverðlögð. Innherji 18.1.2023 11:57
Telur Icelandair „verulega undirverðlagt“ og vill sjá umfangsmeira kaupréttarkerfi Bandarískt fjárfestingafélag, sem eru á meðal tíu stærsta hluthafa Icelandair, segir að miðað við núverandi verðlagningu á íslenska flugfélaginu á markaði sé það „verulega undirverðlagt“ borið saman við önnur alþjóðleg flugfélög. Það væri til bóta ef Icelandair myndi bæta úr upplýsingagjöf sinni til fjárfesta, meðal annars með tíðari afkomuspám, og þá ætti félagið að koma á fót umfangsmeira kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur þess. Innherji 17.1.2023 17:41
Helgi látinn fara og markmiðið að gera VÍS að „vænlegri fjárfestingakosti“ Helgi Bjarnason, sem hefur stýrt VÍS frá árinu 2017, hefur verið sagt upp störfum en stjórn tryggingafélagsins telur að „nú sé rétti tíminn til að gera breytingar á hlutverki forstjóra“. Markmiðið sé að gera VÍS að „enn vænlegri fjárfestingakosti á markaði með skýrri sýn á vöxt, þróun og fjármagnsskipan.“ Innherji 10.1.2023 20:25
Metur Síldarvinnsluna fimmtungi undir markaðsgengi Í nýjasta verðmati Jakobsson Capital á Síldarvinnslunni er verðmat félagsins hækkað, en er engu að síður ríflega 20 prósent undir markaðsgengi félagsins. Greinandi Jakobsson Capital gagnrýnir Síldarvinnsluna fyrir skort á upplýsingagjöf í tengslum við yfirtökuna á Vísi í Grindavík. Innherji 9.1.2023 15:00
Óvíst með skráningu Arctic Adventures eftir kaup fjárfesta á nærri helmingshlut Hópur fjárfesta, leiddur af fyrrverandi forstjóra Arctic Adventures, er að kaupa rúmlega 40 prósenta hlut í íslenska ferðaþjónustufyrirtækinu eftir að hafa nýtt sér forkaupsrétt og gengið inn í tilboð sem fjárfestingafélagið PT Capital frá Alaska gerði í byrjun desember. Kaupsamkomulagið er með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar en ólíklegt þykir, samkvæmt heimildum Innherja, að boðuð skráning Arctic Adventures á hlutabréfamarkað síðar á árinu verði að veruleika með þeim breytingum sem nú verða á hluthafahópnum. Innherji 9.1.2023 07:01
Gengi Marels hækkar í kjölfar verðmats ABN Amro Hollenski bankinn ABN Amro heldur því fram í nýlegri greiningu á Marel að verðlagning félagsins sé orðin „aðlaðandi“ og mælir með kaupum í félaginu. Það sem af er degi hefur gengi bréfa Marels hækkað um tæp þrjú prósent. Innherji 6.1.2023 13:05
Íslenski markaðurinn ekki lækkað meira frá því í hruninu Íslenski hlutabréfamarkaðurinn lækkaði um 16,8% á nýliðnu ári sem er mesta lækkun frá því í bankahruninu árið 2008. Lækkunin nam 2,6% í desember síðastliðnum sem er svipað og að meðaltali í helstu viðskiptalöndum. Viðskipti innlent 6.1.2023 10:35
Verður þriðja stærsta sjávarútvegsfyrirtækið mælt í veltu Fyrirhugaður samruni Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma á Siglufirði er nýjasti gjörningurinn í þeirri samrunahrinu sem hafin er í íslenskum sjávarútvegi. Mælt í veltu verður sameinað félag þriðja stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi miðað við rekstrartölur ársins 2021. Innherji 6.1.2023 07:55
Eigum að horfa meira til framkvæmdastjóraskipta og nýrra aðila í stjórn „Ég kalla eftir samstarfi við háskólasamfélagið eða aðra rannsóknaraðila því hér er mikið til af raungögnum umfram það sem þekkist víða erlendis og því væri hægt að rannsaka það frá ýmsum hliðum hvort einhver munur er á rekstri fyrirtækja eftir því hvort framkvæmdastjóri er karl eða kona,“ segir Dr. Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður Greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo. Atvinnulíf 6.1.2023 07:02
Sesselía úr stjórn í nýja framkvæmdastjórastöðu hjá Vodafone Sesselía Birgisdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðsmála Vodafone. Sesselía hefur setið í stjórn Sýnar hf. frá mars 2022 og mun í framhaldinu víkja úr stjórn þess. Fram að aðalfundi 2023 mun varamaður í stjórn verða kallaður inn í hennar stað. Viðskipti innlent 5.1.2023 16:55
Bætir við sig þremur áfangastöðum á Jótlandi og einum í Þýskalandi Flugfélagið Play mun frá miðjum júní á næsta ári fljúga sex sinnum í viku milli Keflavíkurflugvallar til Jótlands í Danmörku. Flugferðirnar skiptast á milli þriggja flugvalla – Billund, Árósa og Álaborgar. Þá verður einnig flogið til Düsseldorf í Þýskalandi. Viðskipti innlent 5.1.2023 09:05
Hundruð karlmanna forstjórar en sautján ár á milli kvenráðninga „Sautján ár liðu á milli ráðninga á konu í forstjórastól í skráðu félagi á Íslandi. Á sama tíma hafa karlmenn sem gegnt hafa stöðu forstjóra í skráðum félögum skipta hundruðum,“ segir Ásta Dís Óladóttir dósent við Háskóla Íslands og formaður Jafnvægisvogar FKA en nýlega birti hún, auk Þóru H. Christiansen, Sigrúnar Gunnarsdóttur og Erlu S. Kristjánsdóttur, grein í TVE-Tímariti um viðskipti og efnahagsmál þar sem er rýnt er í skýringar á því hvers vegna þróun á ráðningum kvenstjórnenda í forstjórastöður er jafn hægfara og raun ber vitni. Atvinnulíf 4.1.2023 07:01
Skásta afkoman hjá Arðgreiðslusjóði Stefnis á erfiðu ári á markaði Nýliðið ár var langt frá því að vera ásættanlegt með tilliti til ávöxtunar á hlutabréfamarkaði. Gengi fjölmargra skráðra félaga í íslensku kauphöllinni lækkaði en mismikið þó. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar (OMXI10) lækkaði um nærri 27 prósent á árinu 2022. Öllum innlendum hlutabréfasjóðum tókst að skila skárri afkomu en Úrvalsvísitalan gerði, þó þeim hafi tekist misvel til, en margir skiluðu lakari ávöxtun en Heildarvísitala Kauphallarinnar sem lækkaði um 16,5 prósent. Innherji 3.1.2023 17:30
Ætti að vera „auðsótt“ fyrir markaðinn að ráða við útgáfuþörf ríkissjóðs Áætluð lánsfjárþörf ríkissjóðs á árinu 2023, sem hefur boðað útgáfu ríkisbréfa fyrir samtals um 140 milljarða, ætti ekki að valda miklum erfiðleikum fyrir innlendan skuldabréfamarkað, að sögn sérfræðinga, sem setja samt spurningamerki við litla áherslu á verðtryggða skuldabréfaútgáfu. Frekari sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka mun skipta höfuðmáli um hvort fjárþörf ríkissjóðs verði endurskoðuð til hækkunar eða lækkunar á árinu. Innherji 3.1.2023 16:03
Héldu áfram að selja í verðbréfasjóðum þrátt fyrir hækkanir á mörkuðum Hreinar innlausnir fjárfesta í innlendum verðbréfasjóðum á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2022 nema samanlagt yfir 37 milljarðar króna á tímabili sem hefur einkennst af mikilli óvissu og hræringum á mörkuðum um allan heim. Ekkert lát var á útflæðinu í nóvember, meðal annars í hlutabréfasjóðum, sem hafa skroppið saman um 30 milljarða frá því í ársbyrjun 2022. Innherji 3.1.2023 07:00
LSR byggir upp stöðu í fjarskiptafélaginu Nova Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) er orðinn einn allra stærsti hluthafi Nova eftir að hafa sópað upp bréfum í fjarskiptafélaginu á síðustu dögum ársins 2022. Hlutabréfaverð Nova, sem hefur átt undir högg að sækja frá því að það var skráð á markað um mitt síðasta ár, hefur farið hækkandi undanfarnar vikur og ekki verið hærra frá því um miðjan september. Innherji 2.1.2023 09:03
Ávöxtun sjóðsins endurspeglar að eignamarkaðir hafa átt erfitt uppdráttar Árið 2022 hefur einkennst af miklum breytingum í hagkerfum heimsins og þar hefur innrás Rússlands í Úkraínu sem hófst í febrúar spilað stóran þátt. Eignamarkaðir hafa átt undir högg að sækja allt árið og virðist sem fáir eignaflokkar hafi farið varhluta af ótryggum ytri aðstæðum. Innherji 1.1.2023 14:00
Árið á verðbréfamarkaði – raðirnar þéttar Undangengin útboð og öflugar nýskráningar og markvissar umbætur hafa átt helstan þátt því að við erum komin á þennan stað, bæði hvað varðar FTSE flokkunina og aukinn áhuga á markaðnum að öðru leyti. Til að við getum gert enn betur sem og aukið líkur á að færa okkur ofar í gæðaflokkun bæði hjá FTSE og MSCI verður að eiga sér stað áframhaldandi samtal við markaðsaðila og stjórnvöld um markaðsumbætur, sem meðal annars krefjast laga- og reglugerðabreytinga. Umræðan 31.12.2022 13:00
LSR fyrsti af stóru lífeyrissjóðunum sem fjárfestir í Alvotech Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) var í hópi innlendra fjárfesta, ásamt meðal annars þremur öðrum lífeyrissjóðum, sem komu að fjármögnun á líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech fyrr í þessum mánuði með kaupum á skuldabréfum sem eru breytanleg í almenn hlutabréf að einu ári liðnu, samkvæmt heimildum Innherja. Á meðal þriggja langsamlega stærstu lífeyrissjóða landsins – LSR, LIVE og Gildis – er LSR fyrsti sjóðurinn sem kemur að fjármögnun á Alvotech en það er í dag orðið verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni. Innherji 29.12.2022 10:31
Blómaskeið er framundan í fjarskiptum með frekari snjallvæðingu Með frekari snjallvæðingu telur Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, að blómaskeið sé framundan í fjarskiptum. „Tækifærin eru svo sannarlega til staðar hjá okkur með sterka innviði og með þeim miklu breytingum sem hafa verið undanfarið á fjarskiptamarkaðnum. Nova er sterkt innviðafyrirtæki og það er spennandi og skemmtilegt ár fram undan,“ segir hún. Innherji 25.12.2022 14:14
Hampiðjan fer í vísitöluna First North 25 við upphaf nýs árs Hampiðjan mun fara í vísitöluna First North 25 við upphaf nýs árs. Um er að ræða vísitölu þeirra fyrirtækja sem eru stærst og mest viðskipti er með á Nasdaq First North og First North Premier mörkuðunum á Norðurlöndunum. Þau lönd sem tilheyra þessum mörkuðum eru Danmörk, Finnland, Ísland og Svíþjóð. Innherji 23.12.2022 10:10
Alvotech skákar Marel sem verðmætasta félagið eftir 40 prósenta hækkun í dag Markaðsvirði Alvotech hefur rokið upp í dag og er nú meira en Marels sem hefur verið verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni frá fjármálahruni ef undanskilin eru fáein ár þar sem Össur var líka skráð á markað hérlendis. Innherji 22.12.2022 11:00
Alvotech færist nær því að fá markaðsleyfi fyrir stærsta lyf sitt í Bandaríkjunum Bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA) hefur lokið umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir líftæknilyfjahliðstæðu með útskiptileika við gigtarlyfið Humira í háum styrk, sem er mest selda lyf í heimi, og staðfest að framlögð gögn íslenska félagsins sýni fram á að allar kröfur séu uppfylltar. Veiting markaðsleyfis í Bandaríkjunum er nú háð fullnægjandi niðurstöðu endurúttektar eftirlitsins á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík. Innherji 22.12.2022 09:41
Vanguard komið í hóp tíu stærstu hluthafa Íslandsbanka Sjóðir í stýringu bandaríska félagsins Vanguard bættu verulega við eignarhlut sinn í Íslandsbanka undir lok síðustu viku þegar þeir fjárfestu í bankanum samtímis því að fram fór önnur uppfærsla á íslenska markaðinum í flokk nýmarkaðsríkja hjá vísitölufyrirtækinu FTSE Russell. Vanguard er núna á meðal tíu stærsta hluthafa Íslandsbanka. Innherji 21.12.2022 10:40
Sjóðastýringarrisinn Vanguard tvöfaldar stöðu sína í Arion banka Bandaríska sjóðastýringarfélagið Vanguard fjárfesti í Arion banka fyrir liðlega 2,5 milljarða króna í sérstöku lokunaruppboði sem fór fram síðasta föstudag samhliða öðrum áfanga við uppfærslu íslenska markaðarins í flokk nýmarkaðsríkja. Vanguard er núna langsamlega stærsti einstaki erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Arion. Innherji 21.12.2022 09:36
Gengið frá kaupum Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. undirrituðu í dag kaupsamning um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna. Viðskipti innlent 20.12.2022 17:32
Lífeyrissjóðir farnir að horfa til Alvotech eftir 1,6 milljarða kaup á víkjandi bréfum Að minnsta kosti þrír íslenskir lífeyrissjóðir komu að fjármögnun á líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech í liðinni viku með kaupum á skuldabréfum fyrir tæplega tvo milljarða sem eru breytanleg í almenn hlutabréf að rúmlega einu ári liðnu. Áður hafði Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, sem var jafnframt í hópi þeirra sjóða sem tóku þátt í nýafstöðnu skuldabréfaútboði, fram að því verið eini lífeyrissjóðurinn hér á landi sem hafði fjárfest í eigin nafni í Alvotech. Innherji 20.12.2022 10:34
Sveiflur á markaði ekki „jafn ýktar“ núna og í fyrstu uppfærslu FTSE Russell Önnur uppfærsla íslenska hlutabréfamarkaðarins í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE Russell gekk betur á föstudaginn en sú fyrsta hinn 16. september. Talsvert færri erlendir fjárfestar seldu hlutabréf sín nú en þá. Þetta herma heimildir Innherja. Flest félögin sem voru í vísitölumenginu lækkuðu engu að síður á föstudaginn. Möguleg má það rekja til þess að erlendir markaðir hafa farið lækkandi að undanförnu og íslensk hlutabréf hafa fylgt þeirri þróun, að mati viðmælanda Innherja. Innherji 19.12.2022 16:01