Verður þriðja stærsta sjávarútvegsfyrirtækið mælt í veltu
![Frá verksmiðjunni á Þórshöfn, sem Ísfélag Vestmannaeyja rekur. Hugsanlegt er að frekari uppbygging bolfiskvinnslu eigi sér stað þar.](https://www.visir.is/i/F9610AC708802AED5662A178EC99703733D0AE9AD85F4AD6D5A65DFCCC160AAC_713x0.jpg)
Fyrirhugaður samruni Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma á Siglufirði er nýjasti gjörningurinn í þeirri samrunahrinu sem hafin er í íslenskum sjávarútvegi. Mælt í veltu verður sameinað félag þriðja stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi miðað við rekstrartölur ársins 2021.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/1788E0B444374CAA9994A24701D99B63138CD03554704D0BBF47A744B073465E_308x200.jpg)
Ísfélag Vestmannaeyja og Rammi sameinast
Stjórnir Ísfélags Vestmannaeyja hf. og Ramma hf. í Fjallabyggð hafa skrifað undir samkomulag um samruna félaganna undir nafninu Ísfélagið hf.. Sameiginleg aflahlutdeild félaganna tveggja er átta prósent heildarkvótans. Stefnt er að því að skrá félagið á markað.
![](https://www.visir.is/i/F11B00EACF96DFF8A22C72F7EE119B4AE87126D12F982C6A805F4B0D610500CE_308x200.jpg)
Síldarvinnslan blæs til sóknar og samlegðar
Kaup Síldarvinnslunnar á Vísi eru um margt merkileg. Ekki aðeins vegna stærðargráðunnar – heildarkaupverðið nemur 31 milljarði að teknu tilliti til vaxtaberandi skulda að upphæð 11 milljarða – heldur eins að þau eru að meirihluta (70%) fjármögnuð með hlutabréfum í Síldarvinnslunni. Eigendur Vísis munu þannig verða fimmti stærsti hluthafinn í útgerðarrisanum fyrir austan með liðlega 8,5 prósenta hlut þegar viðskiptin klárast.