
Landbúnaður

Vorverkin í sveitinni í janúar
Bændur á Suðurlandi eru farnir að vinna vorverkin vegna góðrar tíðar síðustu vikurnar. Á bænum Sólheimum í Hrunamannahreppi er t.d. verið að girða en ekkert frost er í jörðu.

Samstöðuvaka fyrir dýrin við sláturhús SS á Selfossi
Samstöðuvaka var haldin við sláturhúsið á Selfossi í dag fyrir dýrini sem slátrað er í húsinu. Þetta er í annað skipti á stuttum síma sem Reykjavík Animal save stendur fyrir samstöðuvöku við sláturhúsið á Selfossi.

Telur kjötskatt gott lýðheilsu- og loftslagsmál
Stjórnarþingmaður telur að sérstakur kjötskattur gæti verið rökrétt skref, jafnt til að bregðast við áhrifum kjötneyslu á heilsufar en ekki síður sem liður í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum.

Kúabændur byggja og byggja
Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda er ánægð með hvað kúabændur eru duglegir að byggja.

„Biggi bratti“ byggir gróðurhús í Hveragerði
Fyrsta gróðurhúsið sem byggt hefur verið í Hveragerði á síðustu tuttugu árum er nú í byggingu. Það verður notað undir ræktun á pottalöntum.

Ragnheiður Inga nýr rektor Landbúnaðarháskólans
Dr. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir hefur verið skipuð rektor Landbúnaðarháskóla Íslands til fimm ára frá 1. janúar 2019.

Afkoma sauðfjárbænda dróst saman um rúman helming vegna falls á afurðaverði
Afkoma sauðfjárbænda dróst saman um rúman helming á milli áranna 2016 og 2017.

McDonald's ætlar að draga duglega úr notkun sýklalyfja
Hamborgarastórveldið McDonald's tilkynnti í gær að það ætli sér að leggja ríkari kvaðir á birgja sína um að þeir dragi úr notkun sýklalyfja við framleiðslu nautakjötsins sem þeir selja hamborgarakeðjunni.

Uppstoppaður Hrútshaus í jólagjöf
Brynja Davíðsdóttir á Selfossi er einn færasti uppstoppari landsins og eina konan sem vinnur við fagið á Íslandi.

Vinna að því að fá leyfi til að flytja íslenskt hrútasæði inn á evrópskan markað
Sauðfjársæðingastöð Suðurlands vinnur nú að því að fá leyfi til flytja íslenskt hrútasæði til landa Evrópusambandsins vegna mikils áhuga á íslensku sauðkindinni.

Tíu ára prjónasnillingur
Helgi Reynisson sem er aðeins tíu ára og býr á bænum Hurðarbaki í Flóahreppi hefur prjónað sokka, vettlinga, húfu og lopapeysu á sig.

Rýir sex þúsund fjár á Suðurlandi
Jón Bjarnason sauðfjárbóndi í Hrunamannahreppi fer á milli bæja og rýir fé fyrir bændur og búalið á Suðurlandi.

Gunnar, Eiríkur, Fannar og Raxi eru í nýrri Hrútaskrá
Í nýrri Hrútaskrá sem var að koma út eru kynntir 44 hrútar sem notaðir verða til sæðinga í vetur á Sauðfjársæðingastöð Vesturlands og Suðurlands.

Vilja hundruð milljóna til baka
Framkvæmdastjóri hjá Ellingsen telur innflutningsfyrirtæki með sterka stöðu gegn tollstjóra í máli fyrir yfirskattanefnd. Tollstjóri segir tollamál ekki inni í EES og hann því ekki bundinn bindandi álitum ESB.

Segir ríkið vera að skapa sér sjálfkrafa skaðabótaskyldu
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að bregðist stjórnvöld ekki strax við dómi Hæstaréttar um innflutning á fersku kjöti sé ríkið að skapa sér skaðabótaskyldu.

Kjötframleiðslu engin vorkunn að samkeppni
Framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda líst illa á frumvarp um að afurðastöðvar í kjötiðnaði verði undanskildar samkeppnislögum.

Miklar áskoranir framundan í íslenskri skógrækt
Um 36 þúsund plöntum verður plantað næstu fimm árin á Íslandi vegna kolefnisverkefnis ríkisstjórnarinnar.

Hefja útflutning á íslensku lambakjöti til Indlands
Endanlega var gengið frá heilbrigðisvottorði snemma í september, fyrsta sendingin fór til Indlands nú í byrjun október og fleiri sendingar eru fyrirhugaðar á næstu vikum.

Um 100 birkiplöntur skemmdar í Þjórsárdal eftir hermennina
Hermennirnir sem voru við æfingar í Þjórsárdal um helgina skemmdu um eitt hundrað birkiplöntur.

Blákolóttur lambhrútur vekur athygli
Blákolóttur lambhrútur kom nýlega fram á litasýningu sauðfjár en liturinn þykir mjög sérstakur.

Ekki Bjössi á mjólkurbílnum heldur Guðrún á mjólkurbílnum
Fyrsta konan hefur tekið til starfa sem mjólkurbílstjóri en hennar hlutverk er að aka um á stórum mjólkurbíl og sækja mjólk til bænda.

Kúariða á skoskum bóndabæ
Skoska heimastjórnin hefur staðfest að kúariða (BSE) hafi greinst á bóndabæ í austurhluta landsins.

Vonar að hin frjálslyndari öfl á Alþingi þori að taka sig saman
Þingflokkur Viðreisnar auk tveggja þingmanna Pírata hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagðar eru til viðamiklar breytingar á búvörulögum. Er frumvarpinu ætlað að auka frelsi og sjálfræði framleiðenda.

Óþarfi að óttast aukinn innflutning á kjöti
Aukinn innflutningur á kjöti mun ekki kúvenda íslenskum kjötborðum að mati framkvæmdastjóra Krónunnar.

Hægt að auka verðmætasköpun í landbúnaði þrátt fyrir aukna samkeppni
Landbúnaðarráðherra telur mögulegt að auka verðmætasköpun í íslenskum landbúnaði og þá geti vel farið saman stækkun sauðfjárbúa og auknir möguleikar smærri framleiðenda með nýsköpun og sérhæfingu.

Hrútasýningar um allt land: Bændur raða fénu upp í gæðaröð
Hrútasýningar standa nú yfir um allt land en þá er verið að dæma hrúta og gimbrar fyrir sauðfjárbændur.

Mótmælendur mótmæltu mótmælendunum
Samstöðuvaka var haldin í dag við sláturhús Sláturfélags Suðurlands á Selfossi fyrir lömbin sem er slátrað þar í sláturtíðinni.

Gráflekkóttur hrútur kom í heiminn í morgun
Sauðburði er nú loks lokið á bænum Möðruvöllum 3 í Hörgárdal þegar litill fallegur hrútur kom þar í heiminn í morgun.

Boða til samstöðuvöku fyrir lömbin við sláturhúsið á Selfossi
Boðað hefur verið til samstöðuvöku fyrir utan sláturhúsið á Selfossi á föstudaginn 5. október á milli 14:00 og 16:00 en ætlunin er að fylgjast með því þegar lömb og kindur eru sendar til slátrunar.

Foreldrar gáttaðir á mjólkurgjöf í grunnskólum
Fátt virðist vera því til fyrirstöðu að fyrirtæki gefi börnum merktar vörur í grunnskólum borgarinnar – að því gefnu að vörurnar séu notaðar innan veggja skólans og standist siðferðismat skólastjórnenda.