Landhelgisgæslan

Fréttamynd

Knapi datt af baki

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna slyss á hestbaki.

Innlent
Fréttamynd

Slasaðist á fæti uppi á há­lendi

Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar sækir göngumann á hálendi sem slasaðist á fæti í nágrenni við Laugaveg. Maðurinn er milli Hrafntinnuskers og Álftavatns.

Innlent
Fréttamynd

Yfir­heyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæslu­varð­hald

Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Yfirheyrslur fóru í gær fram yfir öllum tuttugu og einum áhafnarmeðlimum. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Paul Watson afar á­nægður með hand­tökuna

Paul Watson fer ekki í grafgötur með að helsti tilgangur aðgerða Bandero er að ná athygli heimsins. Myndavélarnar eru hans helsta vopn og það að Gæslan hafi ráðist til uppgöngu gráir fyrir járnum skaffaði honum myndefnið sem hann þurfti.

Innlent
Fréttamynd

Aldrei liðið að öryggi sjó­manna sé ógnað

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir aðgerðir Landhelgisgæslunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra í gærkvöldi sem beindust að Bandero, sem hrelldi hvalveiðiskipið Hval 9 í gærkvöldi, ekki snúast um afstöðu fólks til hvalveiða, heldur um öryggi þeirra sem sækja sjóinn við Íslandsstrendur.

Innlent
Fréttamynd

Myndi glaður sjá réttar­höld yfir skip­verjum Bandero

Paul Watson hvalaverndunarsinni hvers skip, Bandero, stefndi í dag að hvalveiðiskipinu Hval 9 þannig að Landhelgisgæslan greip inn í, segir að honum sé sama þó áhöfn skips hans yrði handtekin og réttað yfir þeim hér á landi. Slíkt myndi einungis auka athyglina á málefninu sem hann berst fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Brot­lenti í djúpu gili

Aðstæður voru erfiðar þegar maður sem hrapaði í svifvæng sunnan við Mýrdalsjökul í dag var sóttur af Landhelgisgæslunni. Hann hafði brotlent í djúpu gili. Hann var með meðvitund þegar hann fannst.

Innlent
Fréttamynd

Flug­maðurinn er fundinn

Björgunarsveitir og þyrla landhelgisgæslunnar voru kallaðar út til leitar og björgunar eftir að flugmanni svifvængs hlekktist á og hann varð viðskila við samferðamenn sunnan Mýrdalsjökuls. Hann hefur nú verið fluttur á Landspítalann til skoðunar og aðhlynningar á bráðamóttöku.

Innlent
Fréttamynd

Þúsund sjúkra­flug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“

Sjúkraflugferðum hefur fjölgað umtalsvert á milli ára en slökkviliðsstjóri á Akureyri segir ástæðurnar vera margar. Það hafi hátt í níutíu flugferðir verið skráðar það sem af er liðnum júlímánuði, sem sé met, en gott veður víða um land, ferðamannastraumur og minni heilbrigðisþjónusta í boði á landsbyggðinni sé meðal þess sem valdi miklum fjölda ferða. Það sé nauðsynlegt að auka fjármagn til að tryggja góða þjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Ferða­maðurinn fundinn heill á húfi á Suður­landi

Allar björgunarsveitir frá höfuðborgarsvæðinu og austur á Höfn voru kallaðar út til að leita erlends ferðamanns sem nú hefur fundist heill á húfi. Hann hafði farið af stað í göngu í nótt ofan við Foss á Síðu á Suðurlandi en skilaði sér ekki til baka.

Innlent
Fréttamynd

Fiski­bátur varð afl­vana við Stykkis­hólm

Engan sakaði þegar fiskibátur varð aflvana skammt utan hafnarinnar í Stykkishólmi í dag og rak í átt að landi. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um atvikið skömmu eftir hádegi.

Innlent
Fréttamynd

Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit

Landhelgisgæslan fann göngumann sem hafði lent í hremmingum í Sveinsgili við Torfajökul í nótt eftir fimm klukkutíma leit. Manninn sakaði ekki og var fluttur með þyrlu gæslunnar til Reykjavíkur, blautur og kaldur.

Innlent
Fréttamynd

Bráð veikindi á Fimm­vörðu­hálsi

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið ræst út og er á leið að Fimmvörðuhálsi vegna alvarlegra veikinda sem upp komu hjá göngumanni. Aðgerðir eru enn yfirstandandi.

Innlent
Fréttamynd

Kominn á sjúkra­hús eftir krefjandi ferð

Veikur einstaklingur sem sóttur var af Landhelgisgæslunni um borð í skemmtiferðaskip sem var statt á milli Grænlands og Vestfjarða í kvöld er kominn á Landspítalann. Þyrla og flugvél gæslunnar lentu í Reykjavík um klukkan 22 og var hann í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús.

Innlent
Fréttamynd

Land­helgis­gæslan til taks - í heila öld

Landhelgisgæsla Íslands fagnar í dag 100 ára afmæli. Í heila öld hefur hún staðið vörð um öryggi lands og þjóðar, verndað íslenska hagsmuni á hafi og komið fólki til bjargar við erfiðustu aðstæður.

Skoðun