Þjóðadeild karla í fótbolta

Fréttamynd

„Mikael Ander­son kom inn með því­líka orku“

„Þetta var sterkur sigur,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari eftir annan 3-0 sigur Íslands í röð. Liðið vann Búlgaríu í dag á Laugardalsvelli og er efst í sínum riðli með sjö stig eftir þrjá leiki í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Fótbolti
Fréttamynd

„Lærði bara mikil­væga reglu“

„Þetta var drulluskemmtilegt. Gaman að spila á Laugardalsvelli með svona mikið af fólki og strákarnir í gírnum. Þetta var geggjað,“ sagði Orri Steinn Óskarsson eftir frábæra frammistöðu í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

„Erum að spila á móti of­boðs­lega slöku liði“

„Tja, það er fjölbreytni í leiknum…“ sagði Bjarni Guðjónsson á Sýn Sport í hálfleik, ekkert sérstaklega hrifinn af frammistöðu manna í fyrri hálfleik í leik Íslands við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli.

Fótbolti
Fréttamynd

„Ég get al­veg sagt þér að hann er ekki sáttur“

„Áhættusamt. Óhætt að segja það,“ sagði Kári Árnason í umræðum á Sýn Sport um það byrjunarlið sem Arnar Gunnlaugsson hefur valið fyrir leikinn við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í dag. Kári botnar lítið í þeirri ákvörðun að taka Gylfa Þór Sigurðsson út úr byrjunarliðinu.

Fótbolti
Fréttamynd

Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis

Sérkennilegar spurningar ísraelskra blaðamanna, þar á meðal einhverjar sem áttu ekkert skilt við fótbolta, ollu því að blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var slitið snemma. Þá þurfti að koma einum blaðamanni burt í öryggisfylgd.

Fótbolti
Fréttamynd

Klopp býður við rasískum á­sökunum

Fullyrðingar fulltrúa öfgahægriflokksins AfD í Þýskalandi um að landslið Þjóðverja sé ekki nægilega hvítt á hörund fylla landsliðsþjálfarann Jürgen Klopp viðbjóði.

Fótbolti
Fréttamynd

Er katastrófa að vinna ekki í dag?

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, segir mikilvægt fyrir leikmenn liðsins að mæta einbeittir til leiks gegn Búlgaríu í dag og hleypa engu vanmati að.

Fótbolti
Fréttamynd

Étur hatt sinn vegna um­mæla um Gylfa

Stefán Árni Pálsson játaði að hann þyrfti að éta hatt sinn vegna ummæla sem hann hefur viðhaft um Gylfa Þór Sigurðsson, landsliðsmann karla í fótbolta í Besta sætinu.

Fótbolti
Fréttamynd

Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið

Kristall Máni Ingason á við meiðsli að stríða og hefur neyðst til að draga sig úr íslenska landsliðshópnum fyrir leikina tvo sem eftir eru í yfirstandandi törn í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Fótbolti
Fréttamynd

Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo

Danski framherjinn Rasmus Höjlund fagnaði marki sínu gegn Portúgal í gær að hætti Cristiano Ronaldo og ýtti svo við þjálfara Portúgals, Jorge Jesus, eftir leik og gaf honum illt augnaráð.

Fótbolti
Fréttamynd

Skellur fyrir Arsenal og Grikk­land

Christos Tzolis, leikmaður Arsenal, fór meiddur af velli þegar aðeins fimmtán mínútur voru búnar af leik Grikklands og Hollands. Þrátt fyrir það var Grikkland nálægt því að vinna Holland þar sem gestirnir jöfnuðu undir lok leiksins og endaði hann jafn 2-2.

Fótbolti