Björgunarsveitir
1 2 3 4 5 6 … 45 ›
Þak fauk nánast af hlöðu Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út fyrr í dag vegna hættu á að þak á hlöðu á bæ rétt suður af Hvolsvelli myndi fjúka. Vel tókst til að tryggja að þakið lyftist ekki af, en 10 manns komu að verkinu sem var lokið um hálf þrjú í dag. Innlent 25.12.2024 16:34
Útköll víða vegna óveðurs Björgunarfélag Akraness var kallað út undir hádegið vegna báts í Akraneshöfn sem var við það að slitna frá bryggju vegna hvassviðris. Innlent 25.12.2024 13:52
Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast á aðfangadagskvöld og jólanótt, en slæm færð og vonskuveður hefur víða einkennt upphaf jólahátíðarinnar. Lokunarpóstar eru við Hellisheiði, og veðurviðvaranir í gildi inn í morgundaginn. Innlent 25.12.2024 11:42
Varað við ferðalögum víða um land Varað er við ferðalögum víða um land í kvöld vegna veðurs og gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi víða í kvöld og í nótt. Sannkallaður jólastormur er í aðsigi og upplýsingafulltrúi Landsbjargar hvetur fólk til að halda sig heima með konfekt í skál í kvöld. Innlent 24.12.2024 13:28
Safnaði fyrir björgunarsveitinni sem kom ömmu úr snjóflóði Hin ellefu ára gamla Emma Sólveig Loftsdóttir veitti björgunarsveitinni Gerpi í Neskaupsstað peningagjöf í síðustu viku að fjárhæð tuttugu þúsund krónur. Peningnum safnaði hún upp á eigin spýtur í þakklætisskyni fyrir að koma ömmu sinni til bjargar, þegar snjóflóð féllu á bæinn í mars á síðasta ári. Snjóflóð hafa fylgt fjölskyldunni en langafi hennar slapp naumlega við snjóflóð sem féll á bæinn fyrir fimmtíu árum og varð tólf manns að bana. Lífið 19.12.2024 20:48
Gera hlé á leitinni í Tálknafirði Hlé hefur verið gert á leit að manni sem staðið hefur yfir í dag í Tálknafirði. Innlent 11.12.2024 20:55
Leita einstaklings í Tálknafirði Björgunarsveitir frá Tálknafirði, Patreksfirði og Bíldudal hafa verið kallaðar út til leitar í Tálknafirði vegna einstaklings sem ekki hefur náðst í um tíma. Innlent 11.12.2024 17:21
Róleg nótt hjá björgunarsveitunum þrátt fyrir leiðindaveður Nóttin var fremur róleg hjá björgunarsveitum landsins þrátt fyrir leiðindaveður og vatnavexti. Innlent 9.12.2024 07:54
Fimm bílar fastir í rúman sólarhring Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og í uppsveitum Árnessýslu voru kallaðar út að Kerlingarfjöllum þar sem hópur fólks á fimm bílum hafði setið fastur í rúman sólarhring. Innlent 8.12.2024 10:48
Tveir fluttir með þyrlu vegna rútuslyssins og einn fluttur vegna veikinda Rúta valt út af veginum á Fróðárheiði á Snæfellsnesi og voru tveir farþegar fluttir með þyrlu á Landspítalann en restin fóru með rútu inn í Ólafsvík þar sem búið er að opna fjöldahjálparmiðstöð. Á sama tíma var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda við Seljalandsfoss. Innlent 30.11.2024 17:53
Þyrlan kölluð út vegna rútuslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna rútuslyss á Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir hafa verið kallaðar á vettvang. Innlent 30.11.2024 16:02
Kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var kölluð út um klukkan 3:45 í morgun vegna fiskibáts hafði misst vélarafl og var þá staddur um 22 sjómílur austur af Barðanum. Fjórir skipverjar voru um borð í fiskibátnum. Innlent 26.11.2024 07:54
Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Umfangsmikil flugslysaæfing var haldin á Keflavíkurflugvelli í dag og voru þátttakendur um 500 talsins. Slíkar æfingar eru með stærstu hópslysaæfingum sem haldnar eru á Íslandi. Innlent 16.11.2024 21:30
Þakplötur fuku af hlöðu í Aðaldal Hjálparsveitir skáta Aðaldal og Reykjadal voru ásamt Björgunarsvetinni Garðari á Húsavík kallaðar út í morgun þar sem þakplötur á hlöðu á bæ í Aðaldal voru farnar að fjúka af. Innlent 13.11.2024 13:23
Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal Björgunarsveitirnar Hérað og Jökull voru kallaðar út um klukkan 18 í kvöld vegna villtra ferðamanna í námunda við Kirkjufoss í Fljótsdal. Mennirnir fundust á gönguleið frá skála í Laugarfelli. Innlent 10.11.2024 23:47
„Þetta var hræðilegt slys“ Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir um hræðilegt slys að ræða. Innlent 4.11.2024 18:38
Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu. Maðurinn hét Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson en hann var formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ. Hann var 36 ára. Innlent 4.11.2024 14:55
Málið komið á „endastöð“ og rannsókn lokið Rannsókn lögreglu á falsboði sem þeim barst í sumar, þegar tilkynnt var um að tveir ferðamenn væru fasti í helli, er nú lokið og er málið óupplýst. Lögreglan ræddi við nokkra einstaklinga í Bretlandi í tengslum við rannsókn málsins. Innlent 4.11.2024 10:33
Banaslys við Tungufljót Banaslys varð í dag þegar karlmaður á fertugsaldri féll í Tungufljót nálægt Geysi. Innlent 3.11.2024 20:42
Maðurinn kominn upp úr fljótinu Maður féll út í Tungufljót í Árnessýslu skammt frá Geysi síðdegis. Lögreglan á Suðurlandi var með töluverðan viðbúnað, straumvatnsbjörgunarmenn voru sendir á vettvang og þyrla landhelgisgæslunnar var ræst út. Innlent 3.11.2024 16:59
Björgunarsveitum tókst að losa bátinn Rétt fyrir klukkan 18 í gær tókst björgunarsveitum á Vestfjörðum að losa fiskibátinn sem strandaði í mynni Súgandafjarðar í gærmorgun. Innlent 29.10.2024 10:16
Áhöfn smábáts sem strandaði hífð upp í þyrlu Tveir menn sem voru um borð í smábát sem strandaði í utanverðum Súgandafirði í morgun voru hífðir upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar og fluttir til Suðureyrar í morgun. Báturinn situr enn fastur á strandstaðnum. Innlent 28.10.2024 09:25
Grindavíkurbær nú opinn almenningi Grindavíkurbær opnaði klukkan sex í morgun, en aðgengi að bænum hefur verið verulegum takmörkunum háð síðustu misserin vegna eldsumbrota. Ferðir fólks eru á eigin ábyrgð. Innlent 21.10.2024 07:55
Nýja skipið mun betra Landsbjörg fékk nýtt björgunarskip afhent á föstudag. Gestir og gangandi geta skoðað skipið í Reykjavíkurhöfn í dag. Innlent 13.10.2024 09:43
Útkall vegna bílveltu í uppsveitum Árnessýslu Björgunarsveitir, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, hafa verið kallaðar út vegna bílveltu í uppsveitum Árnessýslu þar sem einn slasaðist. Innlent 12.10.2024 16:05
Nýtt björgunarskip Landsbjargar formlega afhent Fjórða björgunarskip sem Slysavarnafélagið Landsbjörg lætur smíða í Finnlandi var í gær afhent formlega. Innlent 12.10.2024 14:00
Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Kona á fertugsaldri, erlendur ferðamaður sem var á ferð í Stuðlagili við annan mann, fannst látin í Jökulsá skammt neðan við Stuðlagil skömmu fyrir klukkan fimm í dag. Hún var þá látin. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi. Innlent 9.10.2024 15:53
Margir í vandræðum í Kömbunum Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út í kvöld til að aðstoða fjölda ökumanna sem lentu í vandræðum í Kömbunum í kvöld. Þar hafði myndast talsverð hálka og snjór á veginum sem gerði að verkum að margir komust ekki sinnar leiðar. Innlent 8.10.2024 21:50
Nýtt björgunarskip komið til landsins Björg, nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var hífð frá borði Brúarfoss, skipi Eimskipafélagsins í Sundahöfn í um hádegi í dag. Björg mun leysa af hólmi skip með sama nafni á Rifi á Snæfellsnesi, sem er orðið 38 ára gamalt. Innlent 30.9.2024 16:18
Umhugsunarefni hve margir ferðamenn fái ekki að snúa aftur heim Talsmaður Landsbjargar segir nauðsynlegt að grípa til aðgerða til þess að gera ferðamönnum betur grein fyrir þeim hættum sem víða leynast á Íslandi. Það sé of algengt að ferðamenn komi hingað en fái ekki að snúa heim til að segja ferðasöguna. Innlent 25.9.2024 19:50